Lifa ekki af án breytinga 16. apríl 2005 00:01
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna var harðorð í garð Sameinuðu þjóðanna þegar hún ávarpaði fund Samtaka bandaríska ritstjóra fréttablaða. "Það er engin launung að Sameinuðu þjóðirnar geta ekki lifað af sem áhrifamikið afl í alþjóðlegum stjórnmálum ef samtökin verða ekki skipulögð upp á nýtt, ef þau endurskipuleggja ekki stofnanir sínar, ef þau endurskipuleggja ekki yfirstjórn sína og stjórnunaraðferðir," sagði Rice. Rice sagðist hafa valið John R. Bolton sem sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum sérstaklega til að þrýsta á um að samtökin gengju í endurnýjun lífdaga þannig að þau héldu vægi sínu á alþjóðavettvangi. Tilnefning Bolton hefur verið gagnrýnd harðlega þar sem hann hefur lengi verið meðal hörðustu gagnrýnenda Sameinuðu þjóðanna. Eins mikilvæg stofnun og samtökin eru, verður að segjast að sumt í fari þeirra er alls ekki svo mikilsvert," sagði Rice. "Allir gera sér grein fyrir því og við verðum að bæta úr því." Deilur Bandaríkjanna og forystu Sameinuðu þjóðanna hafa að undanförnu komið skýrast fram í átökum um hvernig staðið var að olíusölu Íraka fyrir innrásina í Írak. Hún átti að gera Írökum kleift að kaupa mat og lyf fyrir landsmenn en sýnt hefur verið fram á spillingu í tengslum við áætlunina. Bandarískir þingmenn hafa sótt hart að Kofi Annan, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, og hefur þess meðal annars verið krafist að hann léti af embætti. Hann sneri vörn í sókn í vikunni og sagði að Bandaríkjamenn og Bretar hefðu hunsað olíusmygl frá Írak á síðasta áratug síðustu aldar þegar það hentaði bandamönnum þeirra. Þar braut hann óskráða reglu því hingað til hafa helstu forystumenn Sameinuðu þjóðanna forðast að fara niðrandi orðum um aðildarríki eða einstaklinga.
Erlent Fréttir Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Sjá meira