Bannar birtingu kosningaúrslitanna 25. nóvember 2004 00:01
Hæstiréttur Úkraínu hefur bannað birtingu úrslita forsetakosninganna og skoðar kæru leiðtoga stjórnarandstöðunnar um kosningasvik. Urður Gunnarsdóttir, talsmaður ÖSE, segir mikinn baráttuvilja í almenningi í Úkraínu. Hundruð þúsunda héldu áfram að mótmæla úrslitum forsetakosninganna í Kænugarði í dag, fjórða daginn í röð, en mikil reiði og ólga hefur verið meðal almennings eftir að Viktor Janúkóvits forsætisráðherra var lýstur sigurvegari kosninganna. Viktor Jútsjenkó, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, sem sakað hefur stjórnvöld landsins um víðtæk kosningasvik, kærði meint svik til hæstaréttar Úkraínu og hefur rétturinn ákveðið að banna birtingu kosningaúrslitanna. Mótmælendur hafa verið hvattir til að hindra aðgang að þinghúsinu og öðrum opinberum byggingum. Urður Gunnarsdóttir, talsmaður Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, sem hefur verið við kosningaeftirlit í Kænugarði síðustu daga, segir ástandið í borginni óvenjugott miðað við aðstæður. Hún segir alla fara um með appelsínugula borða á sér eða á bílum sínum til að lýsa yfir stuðningi við Júsjenko. Janúkovítsj hafi hins vegar lítinn stuðning í Kænugarði og að sögn Urðar hafa stuðningsmenn hans nánast algjörlega haldið sig til hlés. Urður segir það eiga eftir að koma í ljós hvort almenningur fari í allsherjarverkfall eins og skorað hafi verið á þá að gera. Enn sem komið er séu engin merki verkfallsins sjáanleg. Forseti Rússlands vísar því á bug að stjórnvöld í Moskvu hafi þrýst á úkraínsk stjórnvöld fyrir kosningarnar. Í dag sagði Vladimir Pútín, forseti Rússlands, að þau hefðu engan siðferðilegan rétt til að hrekja stórt evrópskt ríki út í svo alvarlega upplausn.
Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Fleiri fréttir Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Sjá meira