Eyðileggingin mest á Sri Lanka 29. desember 2004 00:01
Tala látinna vegna flóðbylgjunnar á Indlandshafi nálgast nú sjötíu þúsund manns. Flestir hafa látið lífið í Aceh héraði á Indónesíu en eyðileggingin er hvað mest á Sri Lanka þar sem allt stjórn- og efnahagskerfi er lamað. Tala látinna hækkar dag frá degi og nú er talið er að um þriðjungur þeirra sem fórust í þessum hamförum hafi verið börn. Margir foreldrar hafa sagt frá því hvernig flóðbylgjan hrifsaði börnin þeirra úr höndunum á þeim. Mjög er nú óttast að farsóttir kvikni í kjölfarið því rotnandi lík liggja nú alls staðar á hamfarasvæðunum og björgunarmenn og íbúar verða að hylja vit sín vegna lyktarinnar. Eyðileggingin í Ache héraði í norðurhluta Indónesíu sem liggur næst miðju jarðskjálftans er nú fyrst að koma í ljós þar sem björgunarmenn eru í fyrsta sinn að fara um marga afskekktari staði héraðsins. Svo virðist sem eyðileggingin þar sé skelfileg og verri en nokkurn óraði fyrir. Yfirvöld búast við því að um fjörutíu þúsund manns hafi látið þar lífið. Ache hefur verið í heljargreipum borgarastyrjaldar í lengri tíma og erfitt um vik með björgunarstarf. Svo virðist hins vegar sem jarðskjálftinn og flóðbylgjan sem fylgdi í kjölfarið hafi haft hvað verst áhrif á Sri Lanka þar sem allt stjórnkerfi landsins er í algjöru lamasessi. Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Svíþjóð er einnig sendiherra fyrir Sri Lanka og hefur verið í stöðugu símasambandi við þarlend yfirvöld. Hann segir fólk og híbýli hafa farið með flóðunum og eins hafi stofnanir hrunið, svo sem sjúkrahús og skólar. Hann segist telja að ástandið á Sri Lanka vera með því versta sem um getur. Sri Lanka er eyja og Svavar segir að ástæðan fyrir því að landið hefur orðið svo illa úti er að áhrifanna gætti nánast alls staðar. Hann segir að flóðaldan snerti meira en helminginn af landinu. Öll norðurhlið landsins, sem og austurhliðin og suðuroddinn séu meira eða minna í rúst. Því sé ástandið þar líklega enn verra en í löndunum í kring. Jarðskjálftinn sem olli þessari flóðbylgju var svo öflugur að vísindamenn telja nú að hann hafi fært jarðflekana undir Indlandshafi um þrjátíu metra. Meira að segja lítil eyja nærri Súmötru á Indónesíu hefur hreinlega færst úr stað. Þá hafði skjálftinn áhrif á möndulhreyfingar jarðarinnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Sjá meira