Guðjón tekur ekki við Keflavík 30. nóvember 2004 00:01
Guðjón Þórðarson tekur ekki við liði Keflvíkinga í Landsbankadeild karla í knattspyrnu eins og búist var við. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Að sögn Rúnars Arnarsonar formanns knattspyrnudeildar Keflavíkur hefst ný leit að þjálfara strax í fyrramálið. Guðjón hafði fékk upphaflega frest til mánudags til að svara Keflvíkingum sem í gær veittu honum svo viðbótarfrest í sólarhring. Að sögn Rúnars hafði hann ekkert heyrt frá Guðjóni í dag og því muni félagið fara á fullt í fyrramálið að ræða við aðra menn. Guðjón Þórðarson var í löngu og ítarlegu símaviðtali í íþróttaþættinum "Mín skoðun með Valtý Birni" á útvarpsstöðinni Skonrokki FM90,9 í dag þriðjudag, þar sem hann útskýrði hvað tefði hann svo í Bretlandi. Ástæðan er ekki sú sem margir halda að hann sé að bíða eftir svari frá knattspyrnuklúbbum þar í landi vegna starfs heldur á hann óuppgert mál við knattspyrnufélagið Barnsley sem Guðjón stýrði í fyrra. Guðjón sagðist nú þegar vera búinn að taka þá ákvörðun um að flytja heim til Íslands og ætlaði í raun að koma heim fyrir síðustu helgi. Starfslokasamningur hans hefur hins vegar legið ófrágenginn hjá Barnsley og sagði Guðjón það vera gríðarlega mikilvægt fyrir sig að vera til staðar á meðan menn á hans vegum væru að vinna í málinu. Grindvíkingar bíða einnig eftir svari frá Guðjóni sem hafði í haust gert munnlegt samkomulag við félagið um að stýra liðinu með Milan Stefán Jankovic sér til aðstoðar. Ekki er að merkja miklar hreyfingar í aðgerðum Grindvíkinga í þjálfaramálum þar sem Milan Stefán sér um æfingar meistaraflokks félagsins á meðan þjálfaramálin skýrast þar á bæ. Aðalstarf hans hjá félaginu er þó að þjálfa 2. flokk auk þess að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks. Það verður því spennandi að sjá hvað gerist þegar Guðjón gerir þegar hann loks kemur frá Bretlandi en rétt er að benda á að Grindavík er eina félagið í Landsbankadeild karla sem ekki hefur gengið frá sínum þjálfaramálum fyrir næsta tímabil.
Íslenski boltinn Mest lesið Söknuður af æskufélaganum: „Áttum að vera gömlu karlarnir“ Körfubolti „Við vorum algjörlega týndir“ Enski boltinn Eitt vandræðalegasta kvöldið í sögu Manchester United Enski boltinn „Ég er ekki Hitler“ Fótbolti United banarnir drógust á móti Leeds bönunum Enski boltinn Eir Chang fær norrænan styrk fyrir efnilegt íþróttafólk Sport Æfðu miðjuskotin: Síðasta æfing strákanna fyrir stóru stundina í myndum Körfubolti Isak gæti spilað fyrsta leikinn sinn á tímabilinu Enski boltinn EM í dag: Ætli Katowice sé enn versta borg í heimi og leðurjakki í hitabylgju Körfubolti Finnar byrjuðu EM á naumum sigri í Norðurlandaslag Körfubolti Fleiri fréttir Æfðu miðjuskotin: Síðasta æfing strákanna fyrir stóru stundina í myndum Söknuður af æskufélaganum: „Áttum að vera gömlu karlarnir“ „Við vorum algjörlega týndir“ „Ég er ekki Hitler“ United banarnir drógust á móti Leeds bönunum Eir Chang fær norrænan styrk fyrir efnilegt íþróttafólk Eitt vandræðalegasta kvöldið í sögu Manchester United Uppgjörið: Valur - Braga 1-3 | Valskonur töpuðu og mæta Ceciliu Rán og Karólínu Leu Finnar byrjuðu EM á naumum sigri í Norðurlandaslag Amanda og félagar mæta Blikum Strákarnir hans Guðjóns Vals byrja tímabilið vel Freyr stýrði Brann inn í riðlakeppni Evrópudeildarinnar með stæl Davíð Snær lagði upp mark í bikarsigri Isak gæti spilað fyrsta leikinn sinn á tímabilinu „Margir tittir í þessum hópi og máttum ekki við því að missa stóran mann“ Setji skugga á fyrsta leik að hann sé við Ísrael Þrír íslenskir kastarar keppa á HM í Tókýó Diljá og Karólína skoruðu báðar EM í dag: Ætli Katowice sé enn versta borg í heimi og leðurjakki í hitabylgju Svona var EM-Pallborðið Myndir: Áfallalaus æfing fyrir utan að Hilmar fékk bolta í punginn Ísabella Sara lagði upp í Meistaradeild Evrópu Segir Daníel ekki líkan pabba sem leikmanni en hafi Guðjohnsen-svægið Uppgjörið: Breiðablik - Athlone Town 3-1 | Tvö mörk á tveimur mínútum og Blikar unnu Tveir nýliðar í landsliðshópnum Arnar kynnti fyrsta hópinn í undankeppni HM Strákarnir ekki fengið neinar hótanir Albert bjartsýnn á að Eze sé lokapúslið: „Komin þvílík breidd í þetta“ Ástin sögð ástæða þess að Sancho vilji ekki Roma „Hefur komið með stál og styrk og þekkingu inn í varnarleik Stjörnunnar“ Sjá meira