Janukovitsj lýstur sigurvegari 24. nóvember 2004 00:01
Yfirkjörstjórn forsetakosninganna í Úkraínu staðfesti í gær að Viktor Janukovitsj, forsætisráðherra landsins, hefði borið sigurorð af Viktor Júsjenko. Mikil spenna ríkir í landinu og er óttast að til átaka geti komið vegna yfirlýsingar yfirkjörstjórnarinnar. Tugir þúsunda stuðningsmanna Júsjenko, hafa mótmælt á götum Kiev og annarra borga síðan á mánudaginn. Búist er við því að þeir sætti sig ekki við þessa niðurstöðu enda hefur Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, Evrópuþingið og Atlantshafsbandalagið tilkynnt að framkvæmd kosninganna hafi ekki verið í samræmi við lýðræðislegar reglur. Þeir þingmenn sem styðja Janukovitsj fögnuðu gífurlega þegar niðurstaðan var kynnt en þeir sem styðja Júsjenko hrópuðu: "hneisa, hneisa!" Þá kom beinlínis til átaka milli þingmanna og skiptust einhverjir þeirra á hnefahöggum. Petro Poroshenko, þingmaður sem styður Júsjenko, segir að yfirkjörstjórnin hafi með yfirlýsingu sinni tekið þátt í valdaráni Janukovitsj. "Nú mun fólkið á götunni láta vilja sinn í ljós," segir Poroshenko. Tilkynning yfirkjörstjórnarinnar kom eftir að Leonid Kuchma, fráfarandi forseti, hafði sagt að reynt yrði að ná sáttum með einhvers konar málamiðlun. Mykola Tomenko, þingmaður sem styður Júsjenko, sagði þúsundum stuðningsmanna hans hins vegar að málamiðlun kæmi ekki til greina. "Við erum aðeins tilbúnir að semja um einn hlut - valdaframsal til Júsjenko," sagði hann. Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir að ef úkraínsk stjórnvöld heimili ekki hlutlausa rannsókn á framkvæmd kosninganna geti það haft afrdifaríkar afleiðingar. Evrópusambandið muni þá endurskoða pólitísk og viðskipaleg tengsl sitt við landið. "Við hörmum að úkraínsk stjórnvöld skuli ekki hafa notað tækifærið til að sýna ábyrgð sína gagnvart framþróun lýðræðisins," segir Barroso.
Erlent Fréttir Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Sjá meira