Taka Flugleiðir yfir easyJet? 22. nóvember 2004 00:01
Breskir fjölmiðlar spá í morgun yfirtökutilboði frá Flugleiðum í lággjaldaflugfélagið easyJet. Gengi bréfa í félaginu hækkaði vegna sögusagnanna, en búist er við lækkun og hugsanlegu yfirtökutilboði í kjölfar þess að afkomutölur verða birtar á morgun. Mikil harka er á lággjaldaflugmarkaðinum sem stendur og af þeim sökum sem og vegna hás olíuverðs er búist við slökum afkomutölum frá easyJet á morgun. Gert er ráð fyrir tæplega 30% minni hagnaði á fyrri helmingi þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Fyrir vikið er því spáð að gengi bréfa í félaginu gætu lækkað og það orðið girnilegt yfirtökuskotmark fyrir vikið. Flugleiðir keyptu ríflega tíu prósenta hlut í easyJet í síðasta mánuði og hafa látið að því liggja, að frekari hlutafjárkaup kæmu til greina. Hannes Smárason, stjórnarformaður Flugleiða, sagði á sínum tíma að gengi bréfa í easyJet hefði lækkað af þessum sökum og því teldu Flugleiðamenn þau góða fjárfestingu. Blaðið Independent segir nú allt krökt af sögusögnum á fjármálamarkaði þess efnis, að búist sé við yfirtökutilboði frá Flugleiðum, reynist afkoma easyJet jafn slök og spáð er. Sögusagnirnar urðu til þess að gengi bréfa í easyJet hækkaði um 3,4% á föstudaginn. Fundur Hannesar Smárasonar með Stelios Haji-Ioannou í Lundúnum á miðvikudaginn var olía á eld spámanna, en samkvæmt yfirlýsingu Haji-Ioannou, sem á ríflega fjörutíu prósent í easyJet, ræddi þeir Hannes meðal annars hvort að til greina kæmi að taka félagið af markaði og hvort að Haji-Ioannou gæti hugsað sér að selja hlut sinn í félaginu, sem hann þvertók fyrir. Talsmenn easyJet segjast ekki vitað til þess að frekari kaup Flugleiðamanna séu fyrirhuguð, og talsmenn Flugleiða sögðu ekkert að frétta í morgun.
Erlent Fréttir Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Sjá meira