Innlent

Ferðum Iceland Express fækkar

Ferðum Iceland Express til London og Kaupmannahafnar fækkar um þriðjung samkvæmt breyttri vetraráætlun. Forráðamenn félagsins segjast einfaldlega hafa verið of bjartsýnir í áformum sínum en segja fyrirtækið komið til að vera eftir að öflugur fjárfestir gekk til liðs við þá. Samkvæmt breyttri vetraráætlun verður flogið til Kaupmannahafnar á morgnana og í eftirmiðdaginn til London Stansted, alla daga vikunnar. Það er sama áætlun og síðasta vetur. Á sérstökum álagstímum, til dæmis fyrir og eftir jól, verða tvær ferðir á dag til hvors áfangastaðar. Ólafur Hauksson, talsmaður Iceland Express, segir miður að draumurinn um að bjóða upp á tvær ferðir daglega hafi ekki gengið upp. Það reyndist einfaldlega vera of mikið framboð af sætum í þeirri áætlun sem félagið hafi sett upp fyrir veturinn. Í kjölfarið stefndi í verri afkomu en ásættanlegt er að sögn Ólafs. Um fjögur þúsund manns áttu bókað í ferðir sem felldar verða niður en þeir fengu allir tölvupóst í gær um breytta vetraráætlun. Reynt verður að koma til móts við þá farþega sem verða fyrir óþægindum vegna þessa en alls nemur fækkun ferða um 37 prósent af því sem gamla áætlunin gerði ráð fyrir. Það er, ríflega þriðjungur. Ólafur segir fækkun ferða hefjast 1. desember. Þeir farþegar sem áttu bókað í flug sem felld eru niður fá að bóka ókeypis í hvaða flug sem er af þeim sem farin verða. Þeir sem vilja hætta við ferð sína fá endurgreitt og þeir sem ætluðu í framhaldsflug fá aðstoð Iceland Express við að leysa úr þeim málum. Spurður hvort væntanlegir farþegar geti treyst því að félagið verði enn starfandi þegar komi að flugi þeirra segir Ólafur svo vera því sterkur fjárfestir hafi nýverið gengið til liðs við það. Fjárfestirinn sem Ólafur ræðir um heitir Jóhannes Kristinsson sem lengi hefur búið og starfað í Lúxemborg. Hann er nú stjórnarformaður félagsins. Nýr framkvæmdastjóri hefur einnig verið ráðinn en hann heitir Almar Örn Hilmarsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×