Tíska og hönnun

Fágun og frumleiki

Þeir sem heimsótt hafa Kringluna að undanförnu hafa eflaust tekið eftir því að verið er að kynna haust- og vetrartískuna í verslunum. Þar eru gínur úti um öll gólf og gefið var út sérstakt tímarit fyrir stuttu til að kynna tískuna enn fremur.

Til að kóróna þessa tískudaga fékk Kringlan fyrirtækið Base Camp til að sjá um veglega tískusýningu fyrir sig föstudagskvöldið 24. september síðastliðinn. Base Camp er ungt fyrirtæki á uppleið sem skipuleggur stórar uppákomur, gerir sjónvarpsauglýsingar sem og að vinna tilfallandi verkefni fyrir stór fyrirtæki hér á landi og erlendis.

Base Camp fékk Katrínu Hall og Íslenska dansflokkinn með sér í lið til að sýna tískuna á nýstárlegan máta. Katrín hannaði um það bil þriggja mínútna innkomu fyrir hverja verslun en alls tóku ellefu verslanir Kringlunnar þátt í sýningunni. Kraftmikil tónlist fylgdi með og falleg spor dansaranna heilluðu áhorfendur upp úr skónum. Fötin voru þó í aðalhlutverki en dansflokkurinn sá um að kynna þau á eftirminnilegan og öðruvísi hátt. Ekki þarf að minnast á að sýningin gekk eins og í sögu þetta fallega föstudagskvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×