Tíska og hönnun

Nælur eru ekki asnalegar lengur

Nýjasta nýtt í tískuheiminum er nælur. Þó ótrúlegt megi virðast þá eru jafnt ungir sem aldnir að skreyta sig með nælum þótt áður fyrr hafi bara mömmur, ömmur og langömmur borið þær.

Nú eru nælurnar settar hvar sem er; á töskur, hatta, skó og jafnvel gallabuxur. Gleymdu fortíð nælanna sem þú berð! Nú eru engar reglur um hvernig þær eigi að vera og hvað. Reyndu bara að finna litríkustu og fallegustu næluna sem hentar þér og smelltu henni hvar sem er. Prófaðu að kíkja í Kolaportið og reyndu að finna einhverjar gamlar og sætar eða skelltu þér í næstu snyrtivöruverslun til að finna einhverja hefðbundnari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×