Menning

Úrval-Útsýn í erlent samstarf

Octopustravel býður vandaða gistingu á góðu verði um allan heim og hefur gert samninga við 19.000 hótel í 3.300 borgum og bæjum í 112 löndum. Einnig er hægt að bóka 1.700 skoðunarferðir í öllum verðflokkum og hefur Octopustravel látið skrifa ferðahandbækur um 200 vinsælustu áfangastaði heims til að auðvelda viðskiptavininum valið.

Vefsíðan octopustravel.com hefur það markmið að auðvelda viðskiptavininum að bóka ferðir og er mjög þægilegt að fikra sig áfram á síðunni og bóka gistingu og ferðir sem hentar. Vefsíðan er öll á ensku og eru mjög ítarlegar lýsingar á öllum gististöðunum sem í boði eru og fylgja myndir yfirleitt með. Einnig er hægt að sjá staðsetningu á vinsælustu gististöðunum á þar til gerðu korti.

Allar leiðbeiningar er að finna á vefsíðunni en einnig er hægt að hafa samband við Úrval-Útsýn á urvalutsyn.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×