Staðfest að 125 þúsund hafa látist 30. desember 2004 00:01
Staðfest er að 125 þúsund manns séu látnir eftir hamfarirnar í Indlandshafi. Óttast er sú tala eigi eftir að tvöfaldast. Talið er að í Indónesíu einni hafi hundrað þúsund manns farist. Ömurlegar afleiðingar hamfaraflóðanna blasa alls staðar við í Suðaustur-Asíu, en flóðin, sem urðu af völdum risajarðskjálftans við Súmötru, á öðrum degi jóla, rústuðu heilu bæjunum og þorpunum. Afleiðingarnar eru skelfilegar, því auk þess sem mannfall er gríðarlegt, hafa milljónir manna glatað heimilum sínum og misst lífsviðurværi sitt. Þúsunda er enn saknað vegna flóðanna. Staðfest hefur verið, að að minnsta kosti 4500 manns hafi farist í Tælandi, þar af 2200 erlendir ferðamenn. Mannfallið er langmest á Indónesíu, en þar hafa tæplega áttatíu þúsund lík fundist. Óttast er að allt að hundrað þúsund manns hafi látist á Indónesíu, langflestir í Aceh-héraði, sem er skammt frá upptökum jarðskjálftans á Súmötru. Skorað hefur verið á stærstu iðnríki heims og Sameinuðu þjóðirnar að boða til leiðtogafundar vegna hamfaraflóðanna. Á Sri Lanka er ástandið einnig skelfilegt, en yfirvöld landsins hafa staðfest að rúmlega 27 þúsund manns hafi farist vegna flóðbylgjunnar, og á Indlandi hafa rúmlega 7000 lík fundist, en um 6000 er enn saknað. Skelfing greip um sig á Indlandi í morgun vegna fregna um að yfirvöld landsins hefðu tilkynnt um hættu á frekari flóðbylgjum, en indversk stjórnvöld vísuðu síðar þeim fréttum á bug. Tugmilljónir manna við Indlandshaf eiga um sárt að binda og vofir hungursneið og farsóttir yfir. Matar og vatnsskortur hefur þegar víða gert vart við sig.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Sjá meira