Líklega yfir 100 þúsund látnir 30. desember 2004 00:01
Fátt gefur ástæðu til bjartsýni við Indlandshaf, tala látinna hélt áfram að hækka í gær og var kominn í 77 þúsund. Yfirvöld á flóðasvæðunum búast við að talan fari upp í hundrað þúsund áður en langt um líður. Þá er vitað um hálfa milljón manns sem hafa slasast. Eyjan Súmatra í Indónesíu sem var hvað næst upptökum skjálftans er nánast öll í rúst. Talið er að um tíu þúsund hafi látist þar og er þá áætluð tala fallinna í Indónesíu komin upp í 55 þúsund. Þetta er líklega mannskæðasta flóðbylgja í sögunni. Tuga þúsunda er enn saknað og Rauði krossinn telur að mannfallið muni aukast. Pete Ress, aðgerðastjóri Rauða krossins, segir að það kæmi sér ekki á óvart ef rúmlega hundrað þúsund manns hefðu fallið í valinn. "Við eygjum ekki mikla von, fyrir utan kannski einstök kraftaverk," segir Jean-Marc Espalioux, formaður hótelkeðjunnar Accor ,um þær þúsundir ferðamanna sem leitað er að meðfram ströndum Taílands. Þar af eru um tvö þúsund Norðurlandabúar. Fréttamenn flugu yfir Súmötru og sáu lítið lífsmark nema á ströndinni þar sem eftirlifendur leituðu að einhverju ætilegu. Rúmlega þúsund lík voru grafin í fjöldagröfum víða á eyjunni en það skiptir sköpum að jarðsetja hina látnu sem fyrst til að stemma stigu við farsóttum. Í Indlandi hafa um sjö þúsundir manna dáið og enn er átta þúsunda saknað. Á Srí Lanka eru um 22.500 látnir og 1.800 í Taílandi. Fórnarlömb flóðbylgjunnar eru um 300 í Malasíu, Mjanmar, Bangladess, Maldív-eyjum, Sómalíu, Tansaníu og Kenía. Hjálparstarfsmenn gera hvað þeir geta til að sporna við kóleru og malaríu sem getur borist um í óhreinu vatninu. 175 tonn af hrísgrjónum bárust til Súmötru í gær sem og hundrað læknar. Víða hefur fólk þó þurft að stela öllu steini léttara til að hafa í sig og á. Á suðurströnd Indlands er byrjað að bólusetja 65 þúsund manns sem komust lífs af og klór er dreift á ströndum sem lík hafa verið fjarlægð af.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Sjá meira