Vistir safnast upp á flugvöllum 30. desember 2004 00:01
Hjálparsamtök og erlend ríki kappkosta við að senda mat og lyf til hamfarasvæðanna við Indlandshaf, en dreifing vistanna er óskilvirk vegna samgönguerfiðleika og birgðirnar safnast upp á flugvöllum. Tafirnar eru þegar farnar að auka á hörmungar flóðsins í Indónesíu þar sem hreint vatn og matur er af skornum skammti. Yfirvöld á Srí Lanka segja að mislingar og niðurgangur hafi gert vart við sig og Indverjar eru byrjaðir að bólusetja tugþúsundir manna. Jan Egeland, aðgerðastjóri neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna, segir að víða geti það tekið allt að því tvo til sex sólarhringa þar til hjálp berst fólki sem þurfi á henni að halda ekki seinna en í dag eða í gær. "Ég held að fólk eigi eftir að verða mjög reitt á næstu dögum og vikum," segir hann. Hjálparsamtök eru flest vön að vinna á einu eða tveimur hamfarasvæðum í einu en nú er um tólf stór svæði að ræða. Óttast er að fjöldi látinna sé þegar orðinn eitt hundrað þúsund en Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að sú tala geti tvöfaldast ef farsóttir breiðast út. "Það er allt í rúst," segir Achmad Hiayat hershöfðingi í Indónesíska hernum. "Sjúkrahúsin og neyðarhjálpin eru í algjörri óreiðu. Hjálparstarfsmenn eru velkomnir en þeir verða að útvega sér sín eigin farartæki." Indónesíski herinn reynir að senda vistir til þeirra staða sem ekki er hægt að nálgast landleiðina en vitað er til að matvæli sem var varpað úr flugvélum lentu þar sem fólk náði ekki til þeirra og fóru til spillis. Sumir óttast að spilltir embættismenn muni reyna að hagnast á ástandinu og muni reyna að draga undan neyðarbirðgðunum til eigin afnota. Ríkisstjórnir um heim allan hafa lagt fram um fimmtán milljarða króna til aðstoðar við fólks á hamfarasvæðinu við Indlandshaf. Rauði krossinn telur sig þurfa um þrjá milljarða króna til björgunar- og uppbyggingarstarfs á flóðasvæðunum.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Sjá meira