Þar sem heiðni og kristni mættust 6. ágúst 2004 00:01
Við bæinn Hrísbrú í Mosfellsdal fer fram mikill fornleifauppgröftur, en þar hafa fundist mannvistarleifar allt frá upphafi byggðar hér. Vísbendingar í Egilssögu urðu til þess að Jesse Byock, fornleifafræðingur og norrænufræðingur við Kaliforníuháskóla, fann þar eina af elstu kirkjum landsins, frá þjóðveldisöld. "Hérna var höfðingjasetur og kirkjan hefur sjálfsagt verið mikilfengleg, en hóllinn sem hún stóð á hefur lækkað mikið frá því á söguöld," segir hann. Rétt við stafkirkjustæðið forna er smáhæð þar sem er að finna eina brunakumlið sem fundist hefur hér á landi. Þannig eru vísbendingar um byggð bæði í heiðni og kristni þarna á sama stað og jafnvel talið að nálægð greftrunarstaðanna gæti bent til að heiðni og kristni hafi þarna verið stunduð samhliða um einhvern tíma. Kumlið þykir mjög merkilegt en hæðin er með skipslagi og vísar út að skipalæginu í Leiruvogi. Jesse Byock segir að ekki hafi áður fundist kirkja þar sem viðurinn hefur verið í jafngóðu ástandi og í stafkirkjunni við Hrísbrú. "Kirkjan var yfirgefin og skilin eftir og hægt að sjá hvernig viðarhlutar hennar eru á sínum stað," segir hann og telur einna merkast að sjá svokallað grunntré kirkjunnar. Hann segir fundinn kenna okkur mikið um hvernig kirkjubyggingum var háttað fyrr á öldum, en byggingarlagið er í stíl við fornar stafkirkjur sem fundist hafa í Noregi. Jesse segir sérstakt við þennan fornleifauppgröft hversu afmarkað tímabil sé verið að fást við. "Kirkjan var byggð og svo yfirgefin, en látin standa þegar sú nýja var tekin í notkun, þannig að tímabilið markast af 150 til 200 árum, frá upphafi tíundu aldar fram á elleftu öld." Hann segir tímamælingar á staðnum standast við rannsóknir á öskulögum sem sýni að kirkjan var byggð eftir árið 926. Rannsóknir á beinum sem grafin hafa verið upp við kirkjustæðið hafa leitt í ljós sjúkdóma á borð við krabbamein og berkla. "Hér fáum við miklar og góðar upplýsingar sem fylla í sjúkdómasögu þjóðarinnar," segir Jesse, en þarna kunna að vera fyrstu dæmin um berkla hér á landi. Hann segir rannsóknir á beinunum jafnframt leiða í ljós margvíslegar upplýsingar um mataræði og lifnaðarhætti fólks. Aðspurður taldi Jesse ekki miklar líkur á að meðal beinagrindanna sem grafnar hafa verið upp við Hrísbrú væru bein Egils Skallagrímssonar, en bein hans er sögð hafa verið grafin upp og flutt annað. Björn Þráinn Þórðarson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs Mosfellsbæjar, segir að bæjarfélagið hafi mikinn áhuga á að nýta sér þessar merku fornminjar sem fundist hafa þarna í Mosfellsdal með einhverjum hætti. Nefnir hann möguleika á að stofna fræðasetur þar sem fólki gæfist kostur á að kynna sér minjarnar og sögu landsins. Hann segir þessar hugmyndir tengjast áætlunum um menningarhús til minningar um Halldór Laxness. Björn telur stofnun minjaseturs mögulega í kringum fornleifauppgröft í Mosfellsdal, forn skipalægi í Leiruvogi og minningarsetur um ritun, ritstörf og menningu í dalnum allt frá tímum Egils Skallagrímssonar til daga nóbelskáldsins frá Laxnesi.
Fréttir Innlent Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira