Lífið

Engir stjörnustælar í Eurobandinu

Sólveig Birna Gísladóttir förðunar- og Airbrushmeistari sér um að Eurobandið líti glimrandi vel út í Serbíu þegar kemur að förðun en hún hefur átta ára reynslu af að fríkka upp á íslenskar stórstjörnur hjá Sjónvarpinu.

Lífið

Ryan Seacrest gæti tekið við af Larry King

Idol-kynnirinn Ryan Seacrest gæti mögulega skipt gólandi ungmennum út fyrir miðaldra þjóðarleiðtoga á næsta ári. Samkvæmt heimildamönnum innan CNN er Seacrest í viðræðum við stöðina um að taka við af Larry King í lok árs.

Lífið

Enn er verið að dissa!

Frumsýning á fimmtudag í Ríkisleikhúsi íslensku þjóðarinnar. Hvernig stendur á því að Verslunarskólinn heldur ekki áfram að sjá um uppfærslur af þessum toga eins og verið hefur í vinsælum sumarsýningum sem Borgarleikhúsið hefur hýst?

Menning

Beck með nýja plötu

Goðsögnin Beck er farinn aftur af stað eftir nokkurt hlé. Hvorki upplýsingafulltrúi hans né útgáfufyrirtæki vilja staðfesta að nýja plata sé á leiðinni. MTV News segjast þó hafa heimildir fyrir því að ný plata komi út á næstu 4-6 vikum.

Tónlist

Klive gefur út plötu með hversdagslegum hljóðum

Klive gefur næstkomandi fimmtudag [8. maí 2008] út sína fyrstu plötu, Sweaty Psalms. Á henni er að finna ellefu elektrónísk lög unnin úr hversdagslegum hljóðum sem Klive hefur numið úr ferðalögum um Evrópu og Reykjavík.

Tónlist

Bensínpeningunum þínum er vel varið

Olíutunnan er flogin yfir 120 dollarana, og sauðsvartur almúginn á jeppunum sínum og gripaflutninga-pikköppum grætur alla leið á bensínstöðina. Ólíubarónarnir í Persaflóa væla ekki. Alls ekki.

Lífið

24 stundir bæta mestu við sig

Lestur á 24 stundum og Fréttablaðinu eykst samkvæmt nýjustu fjölmiðlakönnun Capacent. Lítillega dregur hinsvegar úr lestri á Morgunblaðinu.

Lífið

Umu-durtur fundinn sekur

Jack Jordan, umsitjandi Umu Thurman var í dag dæmdur sekur um að hafa setið um og áreitt leikkonuna. Hann getur átt yfir höfði sér ársfangelsi. Jordan hafði boðið það að kæran yrði felld niður gegn því að hann játaði sig sekan og yrði vistaður á geðdeild. Hann neitaði því, enda voru réttarhöld eini möguleiki hans á því að hitta átrúnaðargoðið augliti til auglitis.

Lífið

Hefner vill Ásdísi í Playboysetrið

„Það verður gaman að kíkja þarna, ég bjóst nú ekkert við því að fá boð,“ segir fyrirsætan Ásdís Rán, sem hefur verið boðið í partý í hinu fræga Playboysetri.

Lífið

Myndu ekki skaða sig með svindli

Sú uppljóstrun að svindlað hafi verið í kosningu á Vísi um fallegasta rýmið á Hæðinni hefur valdið töluverðu fjaðrafoki í þættinum, og hafa öll pörin bloggað um málið.

Lífið

Eastwood ætlar að drepa Dirty Harry

Clint Eastwood hyggst dusta rykið af Dirty Harry eftir tuttugu ára hlé. Fyrsta myndin um hinn byssubrjálaða Harry Calahan kom út árið 1971, en ekkert hefur sést til hans frá því myndin Dead Pool kom út árið 1988.

Lífið

Vill 38 milljónir fyrir mánuðinn

Blake Fielder Civil ætlar að skilja við Amy og krækja sér í stóran hluta af auðæfum hennar. Þetta hefur hann samkvæmt heimildum The Sun verið að skipuleggja með óþekktri ljósku sem hefur verið dugleg að heimsækja hann í fangelsið.

Lífið

Bauð í trekant með Vince Vaughn

Leikarinn Owen Wilson bauð ungri snót í trekant með sér og öðrum manni sem líklega er leikarinn Vince Vaughn. Tímaritið Miami Herald segir frá þessu í dag. Leikararnir eru staddir við tökur á kvikmynd á Miami þessa dagana og hitti Owen stúlkuna á skemmtistaðnum Purdy Lounge um helgina.

Lífið

Gifting á næstunni!

Leikkonan glæsilega Scarlett Johansson og kærasti hennar Ryan Reynolds ætla að gifta sig á næstunni.. Orðrómur um giftingu hefur verið uppi undanfarið en parið hefur verið að hittast í rúmt ár.

Lífið

Dennis Rodman í meðferð

Körfuknattleiksmaðurinn litríki, Dennis Rodman, er farinn í meðferð. Samkvæmt heimildum vefsíðunnar TMZ innritaði Rodman sig á göngudeild meðferðarstofnunar í Fort Lauderdale í morgun, einungis nokkrum dögum eftir að hann varð kærður fyrir heimilisofbeldi.

Lífið

„Gasmaðurinn" eignast aðdáendasíðu

Lögreglumaðurinn vaski sem mundaði gasbrúsann í óeirðunum við Rauðavatn á dögunum virðist ekki ætla að gleymast í bráð. Myndband af atvikinu hefur notið mikilla vinsælda á YouTube, og hafa hátt í þrjátíu þúsund hoft á það þar. Þá á Gasmaðurinn sína eigin heimasíðu, auk þess sem hringitónn með viðvörunarköllum lögreglumannsins heyrist nú í öðru hverju horni.

Lífið

Nicole Richie saknar djammsins

Móðurhlutverkið er ekki alltaf tekið út með sældinni. Þessu er Nicole Richie að kynnast. Hún hefur ítrekað lýst því yfir að lífið hafi verið betra en frábært eftir fæðingu dóttur hennar í janúar. Heimildamenn Star tímaritsins segja þó að hún sakni djammlífsins sárt.g

Lífið

Aðstoðarmaður Sarkozy gefur út leiðsögubók um franskar konur

Háttsettur starfsmaður ríkisstjórnar Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta hefur gefið út leiðsögubók um París fyrir karlmenn í kvenmannsleit. Í bókinni er farið í gegnum hvert af hverfum borgarinnar, og kostir kvenna þar tíundaðir. Þannig mun Menilmontant vera paradís brjóstaunnenda, en hverfi Cörlu Bruni forsetafrúr, Madeleine, ku vera þar sem fegurstu leggina er að finna.

Lífið

Páll Óskar mokaði inn verðlaunum

Páll Óskar Hjálmtýsson vann öll verðlaun sem hann hugsanlega gat á hlustendaverðlaunum FM 957 í Háskólabíói um helgina. Palli var tilnefndur sem besti söngvari ársins, besti sólóartistinn, bestur á sviði, og fyrir besta lag og plötu ársins og hlaut verðlaunin í öllum þeim flokkum.

Tónlist

Upptökur með Peaches Geldof að kaupa dóp

Lögreglan á Bretlandi ætlar að yfirheyra Peaches Geldof, dóttur sir Bobn Geldof, eftir að hún sást á myndbandsupptöku að kaupa fíkniefni. Svo virðist sem um sama fíkniefnasala sé að ræða og Amy Winehouse verslar við.

Lífið