Sívinsæll Laddi fagnar hundruðustu sýningunni 5. maí 2008 14:44 Björgvin Halldórsson var meðal þeirra sem kom Ladda á óvart.
Ekkert lát virðist á vinsældum hins löngu sextuga Ladda. Hundraðasta sýningin á afmælisverki hans, Laddi 6-tugur fór fram síðastliðinn miðvikudag og að venju var fullt út úr dyrum. Óvæntir gestir tóku þátt í sýningunni, Ladda og áhorfendum að óvörum.Bryndís Schram kom hlaupandi utan úr sal til að spjalla við Þórð Húsvörð og í HLH seríunni birtust Björgvin Halldórsson og Sigga Beinteins og tóku lagið með Ladda og hljómsveitinni. Fyrr um daginn hafði farið fram leynileg æfing á þessum uppákomum án vitneskju Ladda. Á sviðinu í miðri sýningu urðu til stórskemmtileg atriði, þar sem Laddi missti ekki úr einn einasta takt og spann af fingrum fram með leynigestunum. Þrátt fyrir að sýningarnar séu orðnar hundrað er Laddi hvergi nærri af baki dottinn. Fjórar sýningar eru fyrirhugaðar í maí. Þegar er uppbókað á sýningu þann níunda, og stefnir í að hinar fyllist á næstunni.
Mest lesið Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Menning „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ Lífið Valdi hættur að spila í neðri deildunum Lífið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Heillandi arkitektúr í Garðabæ Lífið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Lífið Die Antwoord og M.O.P. ásamt fleirum á Secret Solstice Lífið Velti mér ekki upp úr vandamálum Lífið Fleiri fréttir Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira