Lífið
Egilsstaðarokk til LA Þungarokksveitin Bad Carburetor frá Egilsstöðum á lag á safndisknum Riot on Sunset Vol. 19 sem plötuútgáfan 272 Records í Los Angeles gefur út. Útgáfan sérhæfir sig í að finna hljómsveitir á netinu og safna saman lögum frá þeim. Áður hafa Atómstöðin og Vax, báðar frá Egilsstöðum, átt lög á diskum í röðinni sem og hljómsveitin Foreign Monkeys frá Vestmannaeyjum. Bad Carburetor skipa þeir Davíð Logi Hlynsson trommari, Hafþór Máni Valsson, söngvari og gítarleikari, og Ari Frank Inguson bassaleikari og þeir ætla sér stóra hluti í framtíðinni. Lífið 16.12.2009 02:45
Madonnu sagt upp Madonna hefur verið andlit tískurisans Louis Vuitton undanfarið, en nú hefur tískuhúsið ákveðið að segja upp samningi sínum við söngkonuna og ráða í hennar stað yngri fyrirsætu. Lífið 16.12.2009 02:45
Hurt Locker best Kvikmyndin The Hurt Locker, sem fjallar um sprengjusérfræðinga í Írak, var kjörin besta myndin af samtökum gagnrýnenda í Los Angeles. Leikstjóri myndarinnar, Kathryn Bigelow, fékk einnig viðurkenningu. Þrátt fyrir góða dóma víðast hvar þegar myndin var sýnd í sumar fékk hún heldur dræma aðsókn og þénaði aðeins þrettán milljónir dollara vestanhafs. Lífið 16.12.2009 02:15
LeAnn er sár Söngkonan LeAnn Rimes hefur baðað kærasta sinn, leikarann Eddie Cibrian, í gjöfum frá því þau tóku saman. Samkvæmt vini Rimes hefur hún keypt handa honum armbandsúr frá Hermes, armbönd, flíkur og annað slíkt til að gleðja sinn heittelskaða á erfiðum tímum. Annar vinur söngkonunnar segir sambandið ganga vel en eitt skyggi þó á gleði þeirra. Lífið 16.12.2009 02:15
Tiger segir skilið við golfið í bili Tiger Woods sendi frá sér tilkynningu fyrir helgi þar sem hann viðurkennir að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni og segist jafnframt ætla að taka hlé frá atvinnumennsku um óákveðinn tíma svo hann geti sinnt fjölskyldu sinni betur. „Ég er meðvitaður um þann sársauka sem ég hef valdið konu minni og börnum. Mig langar að biðjast afsökunar og bið þess að mér verði fyrirgefið,“ sagði Woods. Lífið 16.12.2009 02:00
Undarlegt að fá verðlaun Hjartaknúsarinn Johnny Depp segist alltaf eiga jafn erfitt með að venjast því að fá leiklistarverðlaun. Depp fékk verðlaun fyrir æviframlag sitt til leiklistarinnar á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni á Bahamaeyjum. Lífið 16.12.2009 02:00
Sjálfstæð kærasta Hjartaknúsarinn George Clooney hefur fundið ástina í örmum hinnar ítölsku Elisabettu Canalis. Þau hafa verið saman frá því í sumar og nýlega kynnti Clooney hana fyrir móður sinni. Vinir leikarans hafa þó tekið eftir því að Elisabetta lætur Clooney ekki stjana mikið við sig. Lífið 16.12.2009 01:45
Elskar eggjapúns Nicole Richie frumsýndi nýja skartgripalínu sína, House of Harlow, fyrir stuttu. Á kynningarkvöldinu skartaði Richie að auki nýrri hárgreiðslu og dekkri háralit en áður. Lífið 16.12.2009 01:15
Tjáir sig ekki við fjölmiðla Spænska leikkonan Penelope Cruz gerir hvað hún getur til að halda fjölmiðlum fjarri ástarsambandi sínu með leikaranum Javier Bardem. Hún óttast að sambandið versni um leið og hún fer að tjá sig opinberlega. Lífið 16.12.2009 01:00
Up in the Air með flestar Golden Globe-tilnefningar Nýjasta mynd George Clooney, Up in the Air, hlaut flestar tilnefningar til Golden Globe-verðlaunanna. Íslendingar lögðu sitt af mörkum til nokkurra mynda sem voru tilnefndar. Lífið 16.12.2009 01:00
Trúlofuð Nýjar fregnir herma að leikarinn Orlando Bloom hafi beðið kærustu sinnar til þriggja ára. Leikarinn hefur átt í sambandi við áströlsku fyrirsætuna Miröndu Kerr undanfarin ár og á hann að hafa beðið hennar á meðan þau dvöldu í Marokkó. Lífið 16.12.2009 00:30
Stórtónleikar í Vídalínskirkju Þriðjudaginn 15. desember næstkomandi munu fara fram stórtónleikar í Vídalínskirkju. Lífið 15.12.2009 17:38
Laug að mömmu á jólunum „Svo man ég að mamma hringir í mig klukkan sex 24. des. Ég hleyp inn í stofu og set músik í græjurnar og hún spyr mig hvernig ég hefði það," segir Logi Geirsson handboltakappi í viðtali við Jól.is. „Þá laug ég að henni að ég væri í svaka jólaveislu hjá þjálfaranum sem bauð mér í mat og hvaðeina." Viðtalið við Loga. Lífið 15.12.2009 16:00
Skemmtilegt og fræðandi barnaefni „Hugmyndin varð til þegar kisurnar okkar Glingló og Dabbi sem nú eru 11 ára voru kettlingar," svarar Selma aðspurð út í sögurnar. Lífið 15.12.2009 11:30
Einkapartí fyrir útvalda - myndir Gunnar Traustason veitingamaður, sem oftast er tengdur við Apótekið, opnaði nýjan skemmtistað í Pósthússtræti um helgina sem ber nafnið „P". Eins og sjá má á myndunum var góð stemning í lokuðu einkapartí sem hann hélt fyrir nokkra vel valda gesti. Lífið 15.12.2009 06:45
Beðið eftir hvíta tjaldinu Fyrir jólin berast iðulega fregnir af því að kvikmyndafyrirtæki kaupi kvikmyndarétt að skáldsögum. Ef kvikmynd ratar á hvíta tjaldið getur það haft mikið auglýsingagildi. Lífið 15.12.2009 06:00
Arftaki Sigga Storms hleypur maraþon Ásamt því að flytja fréttir af veðrinu hefur veðurfréttakonan Elísabet Margeirsdóttir hlaupið fimm maraþon á síðustu fjórum árum. Lífið 15.12.2009 06:00
Stefán Karl sýnir fyrir stjörnurnar í Hollywood „Þetta farið framúr mínum björtustu vonum því Los Angeles er engin sérstök leikhúsborg," segir Stefán Karl Stefánsson. Hann hefur nú leikið í fimmtíu sýningum af söngleiknum How the Grinch Stole Christmas í Pantages Theatre. Stefán leikur aðalhlutverkið, sjálfan Trölla en tímabilið hjá honum er hvergi nærri búið, enn eru eftir þrjátíu sýningar. Lífið 15.12.2009 06:00
Endurútgefur Páls Óskars-plötu „Mér fannst yndislegt að vinna þetta upp á nýtt,“ segir kontratenórinn Sverrir Guðjónsson. Hann, í samvinnu við Skálholtsútgáfu, hefur endurútgefið plötuna „Og það varst þú“ sem hann tók upp með Páli Óskari Hjálmtýssyni fyrir 25 árum. Lífið 15.12.2009 05:00
Drengirnir og Diddú Sigrún Hjálmtýsdóttir ásamt blásarasextett, í daglegu tali Diddú og drengirnir, heldur sína árlegu aðventutónleika í Mosfellskirkju í kvöld kl. 20.30. Efnisskrá er með hefðbundnum hætti, klassískir tónar og jólalög. Þar verður söngkonan mætt með sitt glaða fas og mun blanda saman hátíðleika og hispursleysi og blásarasveitin þarf að leika bæði milt og blítt en vísast puðra vel í hornin sér til svölunar og gestum til hressingar. Miðasala er í Þjónustuveri Mosfellsbæjar.- pbb Lífið 15.12.2009 05:00
Í sjokki yfir grein Politiken „Ég er eiginlega í sjokki, ég vissi ekki að þetta yrði svona mikið," segir rithöfundurinn Þórarinn Leifsson. Á laugardaginn birtist við hann tveggja blaðsíðna viðtal í bókmenntakálfi danska dagblaðsins Politiken vegna barnabókar hans Leyndarmálið hans pabba. Einnig var heilsíðu teikning eftir hann birt í blaðinu „Ég hélt að þetta myndi fá hálfsíðu. Þetta var eins og köld vatnsgusa framan í mig því það er mjög óvenjulegt að barnabók fái svona mikla umfjöllun. Ég yrði sáttur við svona umfjöllun einu sinni á tíu árum," segir Þórarinn sigri hrósandi. Lífið 15.12.2009 04:00
Konur eiga orðið 2010 Það var góð stemning í bókaútgáfunni Sölku á föstudagskvöld þar sem dagatalsbókinni Konur eiga orðið 2010 var fagnað. Bókinni er ritstýrt af Kristínu Birgisdóttur og Myrra Leifsdóttir hannaði og myndskreytti, en í henni eru alls 64 hugrenningar kvenna á öllum aldri og úr öllum þjóðfélagsstéttum. Síðustu tvö árin rann hluti af ágóða sölunnar til rannsókna á þunglyndi kvenna á Íslandi en í ár rennur hluti ágóðans til Mæðrastyrksnefndar. Fjöldi kvenna kom saman til að fagna útgáfunni sem er nú orðin árlegur viðburður hjá Sölku. - ag Lífið 15.12.2009 03:00
Mel afskiptalaus faðir Oksana Grigorieva, kærasta stórleikarans Mels Gibson, er ósátt við það hversu lítinn tíma Gibson eyðir með dóttur þeirra. Parið eignaðist sitt fyrsta barn saman í nóvember og stuttu síðar sagði Oksana í viðtali við Hello! að Gibson væri hinn fullkomni maki og faðir. En nú er tíðin önnur því Oksönu þykir Gibson ekki standa í stykkinu. Lífið 15.12.2009 02:00
Stjörnusamböndin sem standast tímans tönn Þrátt fyrir gjálífi margra Hollywood-stjarna eru einnig til þær stjörnur sem eiga í ástríkum samböndum sem endast út ævina. Leikarinn Paul Newman var einnar konu maður og sagði eitt sinn að heimskulegt væri að fara út að borða hamborgara þegar maður ætti góða steik heima. Lífið 15.12.2009 01:00
Kappklædd - myndir Sex and the City stjarnan, leikkonan Sarah Jessica Parker, 44 ára, og sonur hennar, James Wilkie Broderick, 7 ára, voru á ferðinni í New York í gærdag. Eins og myndirnar sýna voru þau bæði kappklædd. Lífið 14.12.2009 19:00
Hreyfing yfir hátíðarnar mikilvæg „Ég ráðlegg fólki að breyta ekki miklu frá hversdagsleikanum. Þá á ég við í mataræði og æfingum," svarar Garðar Sigvaldason einkaþjálfari aðspurður um góð heilsuráð yfir hátíðarnar á Jól.is. Lífið 14.12.2009 18:00
Aleinn á jólunum „Ég hef verið á ýmsum stöðum um jól, jafnt í margmenni sem fámenni, og oftast liðið vel," segir Hemmi Gunn í viðtali við Jól.is. „Eitt skiptið hélt ég aðfangadaginn heilagan með sjálfum mér. Eldaði frábæran mat, fór einn í kirkju og naut kvöldsins í algjörum friði, sem var alveg frábært," segir Hemmi. „En fáir vina og kunningja skyldu að þetta væri mögulegt." Skoða viðtalið við Hemma í heild sinni hér. Lífið 14.12.2009 16:00
Sálin á Nasa - myndir Sálin hans Jóns míns vægast sagt tryllti gesti á skemmtistaðnum Nasa um helgina. „Við æfum nú ekki reglulega, mörg laganna eru í blóðinu og fara ekkert þaðan," sagði Stefán aðspurður hvort meðlimir hljómsveitarinnar þurfi nokkuð að æfa sig lengur. Sígildir slagarar hljómsveitarinnar vöktu lukku og stemningin var gríðarlega góð eins og myndirnar, sem Þorgeir ljósmyndari tók, sýna greinilega. Lífið 14.12.2009 11:45
Gyðjur á B5 - myndir Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar Gyðja collection fagnaði á veitingastaðnum B5 á laugardaginn þar sem gestum var boðið að ganga rauða dregilinn. En viðburðurinn var einnig með góðgerðarívafi því hluti af ágóða á allri sölu Gyðju í desember rennur í átakið „Á Lífið 14.12.2009 08:15
Þreyttur Páll Óskar þráir frí „Ég þrái að liggja uppi í rúmi með tærnar upp í loftið og horfa á DVD. Það móment kemur bara ekki nógu oft,“ segir konungur poppsins, Páll Óskar Hjálmtýsson. Lífið 14.12.2009 06:00