Lífið

Aniston gæti tekið við Pitt að nýju

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jennifer Aniston og Brad Pitt þegar allt lék í lyndi.
Jennifer Aniston og Brad Pitt þegar allt lék í lyndi.
Þokkagyðjan Jennifer Aniston segist alveg geta hugsað sér að taka upp samband að nýju við fyrrverandi elskuhuga.

Slúðurblaðið OK segir að þessi orð hennar veki menn til umhugsunar um það að hún gæti tekið saman aftur við fyrrverandi eiginmann sinn, Brad Pitt.

Ástarsambönd Aniston hafa ævinlega vakið mikla athygli. Hún var gift Pitt um skeið. Síðan átti hún í sambandi við Vince Vaughn og svo John Mayer.

Eins og flestir vita skipti Brad Pitt Aniston út fyrir Angelinu Jolie. Sagan segir að sambúð þeirra sé orðin mjög stirð um þessar mundir og því líklegt að Pitt sé farinn að hugsa sér eitthvað til hreyfings í ástarlífinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×