Lífið

Una leikur Glefsur og svítu Schnittkes

Á morgun kl. 12.30 verða hádegis-tónleikar í Norræna húsinu þar sem verk Alfreds Schnittke og Unu Sveinbjarnardóttur verða flutt. Eru þetta fyrstu tónleikar af nokkrum á fárra vikna bili þar sem verk Rússans Alfreds Schnittke heyrast, en Kammersveit Reykjavíkur flytur tvö verka hans þann 27. mars. Ísafold flytur sinfóníu þann 5. apríl.

Lífið

Titanic sýnd í þrívídd

Leikstjórinn James Cameron ætlar að endursýna stórmynd sína Titanic á hvíta tjaldinu í þrívídd. Stefnt er á sýningar eftir tvö ár þegar hundrað ár verða liðin síðan skipið sökk.

Lífið

Stóraukin netsala í Bretlandi

Á síðasta ári voru tekjur af sölu tónlistar á Netinu í Bretlandi í fyrsta sinn meiri en sem nam tekjulækkun af sölu á geisla- og mynddiskum í verslunum. Þetta er skýrt dæmi um þá þróun sem hefur átt sér stað víða um heim þar sem netsala hefur fært sig upp á skaftið á kostnað hefðbundinnar geisla- og mynddiskasölu.

Lífið

Kate og Sam að skilja

Óskarsverðlaunaleikkonan Kate Winslet og eiginmaður hennar, leikstjórinn Sam Mendes, eru að skilja eftir sex ára hjónaband samkvæmt breskum fjölmiðlum. Sam Mendes leikstýrði meðal annars kvikmyndinni American Beauty sem hlaut fjölmörg óskarsverðlaun á sínum tíma.

Lífið

Jessica Simpson opnaði sig fyrir Opruh

Leikkonan og söngkonan Jessica Simpson var aðeins 23 ára þegar hún birtist í raunveruleikaþættinum Newlyweds ásamt þáverandi eiginmanni sínum, Nick Lachey. Jessica varð brátt fræg fyrir „ljóskulegar" athugasemdir sínar í þættinum eins og þegar hún ruglaðist á kalkún og kjúklingi. Hún

Lífið

Barrymore hafnar bótoxi

Kvikmyndastjarnan Drew Barrymore hefur verið að leika síðan hún var 12 mánaða og hefur bókstaflega alist upp á hvíta tjaldinu. Leikkonan sem er 35 ára segist ekki ætla að leggjast undir hnífinn til þess að laga hrukkurnar eða línurnar sem hafa myndast í kringum munninn hennar og augun.

Lífið

Miley Cyrus ætlar að einbeita sér að leiklistinni

Unglingastjarnan Miley Cyrus ætlar að einbeita sér að leiklistinni á næstunni og setja söngferilinn á pásu. Miley hefur átt góðu gengi að fagna bæði sem söngkona og leikkona í þáttunum Hannah Montana en þessa dagana kynnir hún nýjustu kvikmynd sína The Last Song.

Lífið

Kourtney Kardashian hætt að djamma

Raunveruleikastjörnunni Kourtney Kardashian er alveg sama þó að fólki misbjóði þegar hún gefur ungum syni sínum brjóst á almannafæri. Hún eignaðist sitt fyrsta barn með unnusta sínum Scott Disick í desember. Hún saknar þess ekki að djamma með vinum sínum.

Lífið

Forest Whitaker: Ekki öskra á börnin

Bandaríski leikarinn Forest Whitaker segir að engum finnst gott að láta öskra á sig og alls ekki börnum. Hann á fjögur börn með eiginkonunni sinni Keisha Nash og viðurkennir að þau geti verið afar fyrirferðamikil. Hann hafi þó aldrei hrópað á þau.

Lífið

Cheryl með sama lögfræðing og Karl Bretaprins

Allt stefnir í að hjónaskilnaður breska knattspyrnukappans Ashley Cole og söngkonunnar Cheryl verði ljótur. Þau hittust um helgina til að ræða um hvernig þau eigi að skipta sameiginlegum eignum sínu. Sá fundur endaði hins vegar með látum og hefur Cheryl ráðið stjörnulögfræðinginn Fiona Shackleton til að vinna að málinu. Fiona er einna þekktust fyrir að hafa unnið fyrir Karl Bretaprins og sir Paul McCartney þegar þeir stóðu í sínum skilnuðum.

Lífið

Kóngurinn fagnaði fertugsafmælinu - myndir

Konungur íslenska diskósins, Páll Óskar Hjálmtýrsson, hélt upp á fertugsafmælið sitt með dansleik á veitingastaðnum NASA um helgina. Veislan var fjölsótt enda má segja að Páll Óskar sé eitt af óskabörnum þjóðarinnar.

Lífið

Flipp í Eurovision

Í maí taka 39 lög þátt í Eurovision. Þetta er þremur löndum færra en síðast, Andorra, Tékkland, Ungverjaland og Svartfjallaland draga sig í hlé en Georgía snýr aftur til keppni.

Lífið

Með lag á plötu Jacko

Fyrsta lagið á væntanlegri plötu Michaels Jackson með óútgefnu efni sem hann tók upp áður en hann lést verður eftir Lenny Kravitz. Lagið var tekið upp fyrir tíundu og síðustu hljóðversplötu Jackson, Invincible, sem kom út árið 2001. Það komst þó ekki á plötuna því það þótti of rokkað. Núna er það aftur á móti talið besta óútgefna lagið sem til er með Jackson. Kravitz segir að það hafi verið frábært að vinna með átrúnaðargoði sínu. „Við hlógum allan daginn. Hann var fyndinn náungi og við bárum mikla virðingu hvor fyrir öðrum. Minningin um þetta samstarf er falleg.“

Lífið

Opna markaðinn

„Þetta geta verið rosalega miklar tekjur fyrir íslenskar fjölskyldur, að leigja út sumarbústaði,“ segir frumkvöðullinn Haukur Guðjónsson.

Lífið

Tónlistarveisla á Sódómu - myndir

Eins árs afmæli tónleika-staðarins Sódómu Reykjavíkur var fagnað á föstudagskvöld. Fjöldi hljómsveita skemmti og staðurinn var þéttsetinn af tónlistaráhugafólki. Ljósmyndari Fréttablaðsins tók púlsinn á mannskapnum.

Lífið

Gerir myndina sem aldrei átti að gera

„Maður er að reyna en það gengur misvel, þetta er líklegt en það á eftir að staðfesta nokkra hluti hér og þar,“ segir Ólafur Jóhannesson kvikmyndagerðarmaður.

Lífið

Vonast eftir 15 þúsundum

Um tvö þúsund manns hafa séð kvikmyndina The Good Heart, eftir Dag Kára Pétursson, hérlendis síðan hún var frumsýnd 5. mars. Aðsókn um nýliðna helgi er ekki inni í þessum tölum.

Lífið

Pabbi ánægður að ég fái að leika Jón Grindvíking

„Mér líst mjög vel á þetta, það verður mjög gaman að takast á við þetta hlutverk,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir. Hún hefur tekið að sér hlutverk Jóns Grindvíkings í uppfærslu Þjóðleikhússins á Íslandsklukku Halldórs Laxness. Leikstjórinn Benedikt Erlingsson tekur óneitanlega mikla áhættu með þessu leikaravali sínu því Jón Grindvíkingur er sögulegur í íslenska leikhúsheiminum eftir að Lárus Pálsson fór á kostum í hlutverkinu og gerði það nánast ódauðlegt.

Lífið

Ross í Friends er trúlofaður

David Schwimmer, betur þekktur sem Ross úr sjónvarpsþáttunum Friends er genginn út. Hann og kærastan, ljósmyndarinn Zoe Buckman hafa tilkynnt um trúlofun sína. Talsmaður Schwimmers staðfesti þetta í dag. Hvorugt þeirra hefur verið gift áður, sem telst líklega til tíðinda á meðal stjarnanna í Hollywood.

Lífið

Myndband Lady GaGa bannað á MTV

Nýjasta myndband söngkonunnar Lady GaGa þykir svo svæsið að MTV sjónvarpsstöðin hefur neitað að sýna það. Myndbandinu er leikstýrt af Jonas Åkerlund sem áður hefur gert umdeild myndbönd fyrir sveitir á borð við Rammstein og Prodigy.

Lífið

Lífvörður 50 Cent barði ljósmyndara í Kaupmannahöfn

Rapparinn víðfrægi 50 Cent er nú staddur í Kaupmannahöfn og í gær kom til átaka á milli lífvarða hans og blaðamanna sem sátu um stjörnuna fyrir utan hótel í miðborginni. Lögregla skarst í leikinn og handtók einn lífvörðin sem má búast við ákæru fyrir líkamsárás.

Lífið

Hoffman gerir grínmynd

Dustin Hoffman á í samningaviðræðum um að leikstýra Quarted, mynd um sérstakt heimili fyrir óperusöngvara á eftirlaunum. Eins og lýsingin á myndinni gefur til kynna, er um grínmynd að ræða.

Lífið

Powersýning á Precious styrkir Stígamót

Mentor og Ólafía, nemendafélög BA og MA nema í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, í samstarfi við Myndform, Græna ljósið og Háskólabíó blása til sannkallaðrar POWER sýningar á myndinni Precious þar sem aðalsöguhetjan er hin 16 ára Claireece Precious Jones. Sýningin verður miðvikudaginn 17. mars klukkan 20:00 og rennur allur aðgangseyrir óskiptur til Stígamóta.

Lífið

Sjötta stelpa Loga komin í heiminn

Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður eignuðust barn í nótt þegar stór og sterk stelpa kom í heiminn. Hún er rúmar 17 merkur og 54,5 sentimetrar.

Lífið

Mark Owen í meðferð

Take That stjarnan Mark Owen ætlar í áfengismeðferð. Í síðustu viku viðurkenndi hann að hafa haldið fram hjá eiginkonu sinni, Emmu Ferguson og að hann ætti í erfiðleikum með umgengni við áfengi. Tímaritið Now segir að söngvarinn sé miður sín vegna þess sársauka sem hann hafi valdið fjölskyldu sinni og vinum. Hann vilji koma hjónabandi sínu á réttan kjöl.

Lífið

Twilight stjarna vill snoða sig

Twilight stjarnan Robert Pattinson hefur fengið nóg af lokkunum sem hann er þekktur fyrir að skarta. Hann kynnir nú mynd sem hann leikur og heitir Remember Me og í viðtali segist hann langa til að snoða sig. „Ég er hálf fúll yfir að þurfa að kynna þessa mynd því mér langar að klippa á mér hárið en ég get það ekki á meðan ég er að kynna myndina,“ segir stjarnan og er greinilega með böggum hildar yfir þessu vandamáli.

Lífið