Lífið

Angelina á enga vini

Angelina Jolie á ekki margar vinkonur eða vini sem hún leitar til. Ef hún þarf á vini að halda þá er unnusti hennar, leikarinn Brad Pitt, til staðar fyrir hana. Leikkonan, sem er stödd í Pakistan, viðurkennir að hlutverk hennar er einmanalegt því hún á fáa vini sem hún getur treyst. Angelina Jolie er velgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna og heimsótti flóðasvæðin í Pakistan þar sem hún vekur athygli á ástandinu og reynir að hafa áhrif. Angelina og Brad eiga sex börn en hún þolir ekki að vera í burtu frá fjölskyldunni. Ég tala við fjölskylduna þegar ég þarf á því að halda, sagði Anglina spuð hvernig hún tekst á við einveruna á ferðlagi hennar. En ég viðurkenni að ég á ekki marga vini sem ég get rætt við. Hann (Brad) er í rauninni eina manneskjan sem ég tala við." Þrátt fyrir söknuðinn þá eru börnin í góðum höndum. Áður en Angelina lagði af stað í ferðina lagði hún mikla áherslu á að útskýra tilganginn fyrir börnunum.

Lífið

Jógvan syngur í kirkju

Jógvan Hansen syngur í Langholtskirkju 2. október ásamt kórnum 17 Sangarar frá Klaksvík í Færeyjum. Flutt verða færeysk lög ásamt íslenskri söngvasyrpu með lögum Sigfúsar Halldórssonar.

Lífið

Vinnur ekki eins og skepna

Leikkonan Julia Roberts, 42 ára, vinnur ekki eins mikið og fólk heldur. Eftir að Julia lék á móti Richard Gere árið 1999 í kvikmyndinni Pretty Woman var ekki aftur snúið þegar kom að heijmsfrægð en síðan þá hefur hún ekki unnið nærri eins mikið eins og margir kunna að halda.

Lífið

Gagnrýnandi Kiljunnar gagnrýnir í Kiljunni

Haukur Ingvarsson, Illugi Jökulsson og Þorgerður E. Sigurðardóttir bætast í hóp gagnrýnenda Kiljunnar sem hefur göngu sína aftur á RÚV í haust. Páll Baldvin Baldvinsson og Kolbrún Bergþórsdóttir verða á sínum stað auk

Lífið

Vandasamasta verk­efni Einars

Heimildarmyndin Norð Vestur sem fjallar um snjóflóðið á Flateyri 1995 verður frumsýnd í október. Einar Þór Gunnlaugsson leikstýrir myndinni, sem tók

Lífið

Víkingur lætur gamminn geisa

Sinfóníuhljómsveit Íslands stefnir á að vera í sínu allra besta formi þegar hún flytur í Hörpu í vor. Hljómsveitin byrjar starfsárið af krafti í kvöld, þar sem Víkingur Heiðar Ólafsson leikur meðal annars öndvegisverk eftir Liszt og Rakmaninoff.

Lífið

Stjörnukokkur fagnar bókaútgáfu

Hrefna Rósa Sætran sjónvarpskokkur og veitingahúsaeigandi fagnaði í kvöld útgáfu bókarinnar Fiskmarkaðurinn sem bókaforlagið Salka gefur út. Bókin hefur að geyma uppáhaldsrétti Hrefnu sem hún framreiðir á veitingahúsinu hennar sem ber einmitt sama nafn og bókin. Eins og meðfylgjandi myndir sýna mætti fjöldi fólks til að fagna með Hrefnu.

Lífið

Of loðinn fyrir tattú

Íslandsvinurinn og leikstjórinn Eli Roth, 38 ára, segist vera allt of loðinn á líkamanum til að vera fær um að fá sér húðflúr. Eli, sem er nýbyrjaður með dóttur Bog Geldof, Peaches Geldof, er hrifinn af húðflúrum en segist ekki geta fengið sér af því að hann er svo loðinn. Nei ég er ekki með tattú. Það hefur ekkert verið sett neitt slíkt á líkama minn. Ef ég gæti það væri ég búinn að setja risa mynd af Darth Vader, Van Halen mynd og Iron Maiden Eddie út um allan líkamann á mér. Ég er mjög loðinn allsstaðar og þegar líkaminn er þakinn hárum þá er einfaldlega ekki pláss fyrir húðflúr," sagði Eli.

Lífið

Grýla í augum trúaðra

Bókin Ranghugmyndin um guð eftir Richard Dawkings kom út í íslenskri þýðingu í byrjun mánaðar. Bókin hefur verið afar umdeild frá því hún kom fyrst út 2006 en í henni ræðst Dawkins á hugmyndina um guð og æðri máttarvöld.

Lífið

Flowers syngur um Las Vegas

Fyrsta sólóplata Brandons Flowers, söngvara The Killers, kemur út í næstu viku. Hún nefnist Flamingo og er nefnd eftir götu í heimaborg hans Las

Lífið

Halle Berry knúsar fransmann

Leikkonan Halle Berry, sem hætti með fyrirsætunni og barnsföður sínum Gabriel Aubry fyrr á þessu ári, sást kyssa franska leikarann Olivier Martinez, sem var með söngkonunni Kylie Minogue, á götum Parísar. Halle og Olivier urðu ástfangin þegar þau léku saman í kvikmyndinni Dark Tide. Síðan þá hafa þau ekki getað verið án hvors annars. Olivier vildi ólmur sýna Halle Parísarborg sem og hún þáði. Halle og Olivier gátu ekki látið hvort annað í friði. Þau voru afslöppuð og leið greinilega vel saman. Það fór ekki á milli mála að Halle beið stöðugt eftir því að hann kyssti hana" sagði sjónarvottur. Parið vekur athygli hvar sem það stígur niður fæti en það ferðast um á mótorhjóli Olivier.

Lífið

Fegurð er vanmetið hugtak

„Ég er ekki safnhaugur, ég er ánamaðkur – garðyrkjustörf með málningu,“ er yfirskriftin á sýningu Magnúsar Helgasonar myndlistarmanns, sem verður opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Magnús segir fegurðina vera sér hugleikna og finnst hún of sjaldan metin að verðleikum.

Lífið

Vinsæll Clooney

George Clooney hefur augljóslega mikið aðdráttarafl því nýjasta kvikmynd hans, The American, fór rakleiðis á toppinn í Bandaríkjunum um síðustu helgi.

Lífið

Aðrir tóku skilnaðinn nærri sér

Leikkonan Susan Sarandon, 63 ára, fann fyrir sorginni sem aðrir upplifðu þegar hún hætti með leikaranum Tim Robbins, 51 árs. Hún hættti með Tim á síðasta ári eftir að hafa verið með honum í 23 ár. Saman eiga þau tvo syni, Jack Henry, 21 árs, og Miles Guthrie, 18 ára. Susan fannst erfitt að takast á við viðbrögð fólks í kjölfar skilnaðarins en samband hennar og Tim var talið eitt það sterkasta í Hollywood. „Þjóðin syrgði. Fjöldinn allur af fólki kom til mín og sagðist taka skilnaðinn gríðarlega nærri sér. Ég fann fyrir ábyrgðinni vissulega því fólk myndar sér skoðanir á manni eins og hvernig maður er og hvernig maður hagar sér," sagði Susan. Í dag reynir Susan að velta sér ekki endalaust upp úr því hvað öðrum finnst heldur hlustar gaumgæfilega á hjarta sitt. „Það skiptir alls engu máli hvernig þessu fólki líður um skilnaðinn okkar. þetta er mitt líf og ég stjórna því," sagði hún.

Lífið

Ótrúlegur Brand

Óskarsverðlaunaleikkonan Helen Mirren segist ekki eiga orð yfir það hversu hæfileikaríkur landi hennar, Russel Brand, sé. Þau tvö leika á móti hvort öðru í kvikmyndinni Arthur en hún er endurgerð á hinni sígildu Dudley Moore-mynd frá árinu 1981.

Lífið

Eltir nornir í næstu mynd

Sænska leikkonan Noomi Rapace er orðuð við hlutverk í hryllingsmynd sem byggð er á ævintýrinu um Hans og Grétu. Rapace, sem skaust upp á stjörnuhimininn eftir hlutverk sitt sem tölvuhakkarinn Lisbet Salander, er nú eftirsótt í Hollywood þar sem hún er stödd um þessar mundir til að freista gæfunnar.

Lífið

Veðjað á Liam Neeson

Svo virðist sem Hollywood ætli að veðja á Liam Neeson. Hann er sagður vera í viðræðum við leikstjórann Joe Carnahan um að leika í spennutryllinum The Grey en þeir tveir gerðu saman A-Team. Hann er einnig orðaður við aðalhlutverkið í þremur öðrum myndum.

Lífið

Óperudíva syngur með Bó

Jólatónleikar Björgvins Halldórssonar verða með glæsilegasta móti í ár en þrír erlendir gestir munu troða upp og flytja jólalög með sínu nefi. Tilkynnt hefur verið um Alexander Rybak og Paul Potts en síðasta púslið er breska óperusöngkonan Summer Watson.

Lífið

Eldgosið hægði á sölunni

Kimi Records heldur upp á þriggja ára afmælið sitt í Havaríi um helgina. Útgáfustjórinn Baldvin Esra segir fyrirtækið í góðum gír eftir dýfu í byrjun ársins vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Lífið

Gæti þetta ekki án mömmu og pabba

Söng- og leikkonan Miley Cyrus, 17 ára, segir að tilhugsunin við að missa foreldra sína særi hana gríðarlega. Þegar Miley vann við gerð kvikmyndarinnar The Last Song fór hún að hugsa hvað hún gerði án foreldra sinna og upplifði mjög slæma tilfinningu bara við að hugsa um það. Ég áttaði mig á því að láta ekki einn einasta dag líða án þess að segja þeim hvað mér þykir vænt um þau. Hjarta mitt skynjaði mikinn sársauka bara við tilhugsunina ef ég missi þau," sagði Miley.

Lífið

Unnið að gerð kvikmyndar um Ronnie

Framleiðendurnir Mark Joseph og Ralph Winter vinna nú hörðum höndum að því að koma af stað kvikmynd um ævi og starf Ronalds Reagan. Samkvæmt Empire-kvikmyndavefnum er Jonas McCord að skrifa handrit eftir tveimur

Lífið

Kórverk Kjartans flutt í New York

„Þetta getur verið djöfulsins vesen en þetta getur verið gaman stundum,“ segir Kjartan Sveinsson, hljómsborðsleikari Sigur Rósar, um kórtónlistina sem hann hefur verið að semja í allt sumar.

Lífið

Opinberar líf Lady GaGa

Verið er að undirbúa útkomu bókar um tónleikaferðalag poppsöngkonunnar Lady GaGa en það er enginn annar en stjörnuljósmyndarinn Terry

Lífið

Tónleikar í Frumleikhúsi

Tónleikar verða haldnir í Frumleikhúsinu í Keflavík í kvöld og annað kvöld til minningar um ungu drengina tvo frá Reykjanesbæ, þá Guðmund Jóhannsson og Sigfinn Pálsson, sem létust úr krabbameini fyrr á árinu.

Lífið

Milla lofar góðum Skyttum

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum stendur til að mynda, enn á ný, ævintýrið um skytturnar D‘Artagnan, Atos, Portos og Aramis sem Alexander Dumas gerði ódauðlega í samnefndri bók. Þeir Matthew Macfadyen, Logan

Lífið

Illa lyktandi í viðtölum

Leikkonan Kristen Stewart segist ekki njóta þess að tala um sjálfa sig í viðtölum. Hún verði svo stressuð að hún svitni og lykti illa. „Þetta lagast með æfing-unni. En ég verð svo stressuð að ég veit ekki hvernig á að takast á við þetta,“ segir leikkonan sem slegið hefur í gegn í Twilight-myndunum. Stewart segir jafnframt að hún reyni að láta þetta ekki há sér. „Ég er mjög utan við mig þegar ég er stressuð. Þá nudda ég saman þumlunum og svitna á höndunum og lykta mjög illa.“

Lífið

Ekki fleiri börn í bili

Leikkonan Katie Holmes, 31 árs, hefur ekki í hyggju að eignast fleiri börn í augnablikinu því hún vill að Suri, 4 ára dóttir hennar og Tom Cruise, fái alla athygli hennar. Katie ræðit opinskátt um barneignir því stöðugar sögusagnir eru á kreiki beggja vegna Atlantshafsins um að hún sé barnshafandi. Kannski vil ég eignast fleiri börn eftir nokkur ár en í dag vil ég vera viss um að vera til staðar fyrir Suri," lætur Katie hafa eftir sér í Marie Claire tímaritinu. Ég er yngst af mínum systkinum. Eldri systir mín er fimm árum eldri en ég og sú sem er næst í röðinni er níu árum eldri en ég. Mér fannst frábært að alast upp líkt og ég væri einbirni því ég fékk alla athygli móður minnar. Ég geri það enn í dag og mér líkar það mjög vel," sagði Katie jafnframt.

Lífið