Lífið
Ferskar tískufyrirmyndir Smekkkonur á borð við Alexu Chung, Daisy Lowe, Chloé Sevigny og Carrey Mulligan þóttu bera af í klæðaburði árið 2010 og voru allar með puttann á púlsinum þegar kom að nýjustu tískustraumum. Nokkur ný andlit hafa nú stigið fram á sjónarsviðið sem vert er að taka eftir. Þar fer fremst í flokki nýr ritstjóri franska Vogue, Emanuelle Alt, sem verður án efa meira í sviðsljósinu núna. Lífið 16.1.2011 07:30
Frönsk hátíð í ellefta sinn Frönsk kvikmyndahátíð verður haldin í ellefta sinn 21. janúar til 3. febrúar í Háskólabíói. Dagana 12. til 16. febrúar verður hún í Borgarbíói á Akureyri. Lífið 15.1.2011 22:00
Engin virðing sýnd Stórleikarinn Michael Douglas greindist með krabbamein í hálsi um mitt síðasta ár og gekk í kjölfarið í gegnum stranga lyfjameðferð. Hann hefur nú náð fullum bata og einbeitir sér að því að ná aftur heilsu og fyrri styrk. Lífið 15.1.2011 19:00
Gerir grín að Charlie Sheen Grínistinn Ricky Gervais ætlar að beina athyglinni að þeim sem eru veikburða og geta ekki varið sig þegar hann kynnir Golden Globe-verðlaunin í annað sinn í næstu viku. Leikararnir Charlie Sheen og Mel Gibson, sem báðir hafa lent í vandræðum í einkalífinu, fá einnig sinn skerf af bröndurum. Lífið 15.1.2011 16:00
Firth nánast öruggur um sigur Golden Globe verðlaunin verða afhent á sunnudagskvöld en það eru samtök erlendra blaðamanna í Hollywood sem standa að þeim. Verðlaunin þykja gefa góða vísbendingu til hverra Óskar frændi fer í heimsókn í ár. Búist er við nokkurri harðri baráttu þótt nokkrir flokkar þyki vera fyrir fram afgreiddir. Colin Firth og Natalie Portman eru þannig sögð örugg um sigur í sínum flokkum. Firth fer á kostum í kvikmyndinni The King‘s Speech sem Georg VI. Lífið 15.1.2011 13:00
Spennandi glíma við menningararfinn Fjalla Eyvindur eftir Jóhann Sigurjónsson gengur í endurnýjun lífdaga í Norðurpólnum í dag. Marta Nordal leikstjóri segir það áskorun að setja upp klassískt verk í hráu rými. Lífið 15.1.2011 10:30
Bieber á sjúkrahús Popparinn Justin Bieber þurfti að fara á sjúkrahús á dögunum vegna öndunarerfiðleika. Um ofnæmisviðbrögð var að ræða sem komu upp þegar hann var í gestahlutverki í sjónvarpsþáttunum CSI. Ungstirnið var útskrifað af sjúkrahúsinu fimmtíu mínútum síðar. Lífið 15.1.2011 09:30
Mikið rétt það var fallega fólkið sem mætti Meðfylgjandi myndir voru teknar á frumsýningu gamanleikritsins AFINN í Borgarleikhúsinu í kvöld. Einn ástsælasti leikari þjóðarinnar Sigurður Sigurjónsson leikur aðalhlutverkið í þessu glænýja íslenska leikriti eftir Bjarna Hauk Þórsson. Eins og myndirnar sýna voru frumsýningargestir áberandi fríðir. Lífið 14.1.2011 20:48
Rachel Zoe hannar eigin fatalínu Ofurstílistinn Rachel Zoe hefur hannað sína fyrstu fatalínu og ber hún heitið The Rachel Zoe Collection. Zoe er einn eftirsóttasti stílistinn í Hollywood og hefur unnið með stórstjörnum á borð við Nicole Richie, Keiru Knightley, Cameron Diaz, Jennifer Garner, Kate Hudson, Kate Beckinsale, Demi Moore og Liv Tyler. Lífið 14.1.2011 11:00
Nýja Lisbeth Salander frumsýnd Fyrsta opinbera ljósmyndin af Rooney Mara í gervi Lisbeth Salander hefur verið birt í tímaritinu W. Kvikmyndin The Girl With The Dragon Tattoo, sem er Hollywood-endurgerð Karlmanna sem hata konur, verður frumsýnd 21. desember og þar leikur Mara hina óútreiknanlegu Salander. Lífið 14.1.2011 10:00
Júlli Kemp gerir breska spennumynd Júlíus Kemp hefur verið ráðinn leikstjóri breska sálfræðitryllisins Bait. Hann hefur lesið handritið og líst ágætlega á, segir myndina vera í svipuðum anda og Sleepy Hollow eftir Tim Burton, bara aðeins nútímalegri. Lífið 14.1.2011 09:00
Kjartan nýtur sín við kornrækt og ferðaþjónustu Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og formaður bankaráðs Landsbankans, hefur sinnt kornrækt og kaffihúsarekstri fyrir vestan undanfarin ár. Hann rær nú á ný mið í ferðaþjónustu. Lífið 14.1.2011 08:00
Erfitt fyrir eldri karla að fá hlutverk Leikarinn Harrison Ford segir að eldri karlar í Hollywood eigi alveg jafn erfitt með að fá góð hlutverk og eldri konur. „Ég skil mjög vel þessar kvartanir um að það séu engin góð hlutverk fyrir eldri konur , en ég vil að það sé ljóst að það eru engin góð hlutverk heldur fyrir eldri karla,“ sagði hann. Lífið 14.1.2011 06:15
Fínasta afþreying Gæludýr er alveg ágætis plata, hvorki meira né minna. Hún líður einfaldlega áfram í eyrunum án þess að ögra hlustandanum. Gagnrýni 14.1.2011 06:00
Tveir risar saman á túr Útlit er fyrir að tvær af stærstu sveitunum í indie-tónlistargeiranum fari saman í tónleikaferðalag í sumar. Um er að ræða Arcade Fire og Portishead. Fréttir af þessu hafa farið sem eldur í sinu um tónlistarheima síðustu daga en engar dagsetningar hafa verið staðfestar. Lífið 13.1.2011 23:15
Sömu áhrif og OK Computer Serge Pizzorno, gítarleikari Kasabian, vill að næsta plata sveitarinnar hafi sömu áhrif á hlustendur og OK Computer með Radiohead. „Ég stefni að einhverju álíka frábæru. Það er þessi tilfinning að láta gjörsamlega hrista upp í sér,“ sagði hann við NME. Lífið 13.1.2011 22:15
Leikur hina illgjörnu Ma-Ma Hin breska Lena Headey hefur verið ráðin í eitt aðalhlutverkanna í hasarmyndinni Dredd. Headey fer með hlutverk hinnar illgjörnu Madeline Madrigal, eða Ma-Ma, sem er leiðtogi gengis sem hefur tekið yfir Peach Tree City-hverfið þar sem meirihluti myndarinnar gerist. Lífið 13.1.2011 21:15
Komin með nýjan Leikkonan Jenny McCarthy hefur verið dugleg að fara á óvissustefnumót frá því hún sagði skilið við kærasta sinn, leikarann Jim Carrey. Hún var gestur í spjallþætti Ellen Degeneres og sagði þá frá nokkrum mislukkuðum stefnumótum sem hún hafði farið á. Lífið 13.1.2011 20:00
Jens Lekman í spreng Sænski furðupopparinn Jens Lekman hefur haft hægt um sig síðustu misserin en ætlar nú að gera bragarbót þar á. Hann stefnir að því að gefa bæði út breiðskífu og EP-plötu á þessu ári. Lekman er mikið niðri fyrir. Íslandsvinurinn Lekman skrifaði á vefsíðu sína í síðustu viku að aðdáendur hans ættu von á vænni sendingu. Lífið 13.1.2011 18:45
Hreinleiki í stað vímuefna Breska poppsöngkonan Jessie J er líklegust til að slá í gegn árið 2011 samkvæmt nýjum lista BBC. Hún fékk hjartaáfall 18 ára og má ekki nota vímuefni. Lífið 13.1.2011 17:00
Frægir FOLAR elta bolta Meðfylgjandi myndir voru teknar í Fífunni í Kópavogi síðasta laugardag þegar úrlitaleikur í Vodafone Cup bumbuboltamótinu fór fram. Eftir harða rimmu og 2-1 sigur voru sigurvegarnir krýndir með miklum látum, í kampavíns- og konfettiregni með rauða bikarinn á lofti og farseðla til Abu Dhabi í hendinni. Sigurvegarnar kalla sig Uxana, en liðið var skipað Arnari Þór Úlfarsyni, Finni Kolbeinssyni, Hrafnkeli Helgasyni, Jóhannesi Kolbeinssyni, Jóni Björgvini Hermannssyni og Ólafi Má Sigurðssyni. Þeir unnu alla 10 leikina sína í mótinu og ljóst er að Ísland mun eiga verðuga fulltrúa í hinni alþjóðlegu úrslitakeppni Vodafone Cup í næsta mánuði. Alls tóku 72 lið þátt í mótinu og leiknir voru 211 leikir spilaðir. Í myndasafni má meðal annars sjá Ívar Guðmundsson, Auðunn Blöndal og Hjörvar Hafliðason í ham. Lífið 13.1.2011 14:00
Hornreka á Króknum Rokland ber Marteini Þórssyni talsvert betra vitni sem leikstjóra en handritshöfundi. Gloppótt handrit hleypir loftinu úr Roklandi og kemur í veg fyrir að það fari á flug. Gagnrýni 13.1.2011 11:44
Hlakkar til að fá sér kebab í Köben „Ég er eiginlega kominn með í magann af spenningi. Ég get ekki beðið eftir því að fara út, hitta mömmu og systur mínar, drekka Faxe Kondi og borða kebab,“ segir Arnór Dan Arnarsson, söngvari rokksveitarinnar Agent Fresco. Lífið 13.1.2011 11:00
Hudson ólétt Tímaritið US Weekly heldur því fram að leikkonan Kate Hudson sé ólétt eftir kærastann sinn Matthew Bellamy, forsprakka hljómsveitarinnar Muse. Samkvæmt heimildarmanni blaðsins er Hudson komin fjórtán vikur á leið og er parið afskaplega ánægt með fréttirnar. Lífið 13.1.2011 10:00
Roklandi fagnað með heljarinnar teiti Aðstandendur Roklands skemmtu sér konunglega á Austri á þriðjudagskvöldið enda langur tími að baki. Aðalleikarinn Ólafur Darri Ólafsson lék við hvurn sinn fingur en hann er á leiðinni til Hollywood í næsta mánuði að leika í Contraband eftir Baltasar Kormák. Árið 2011 verður svo sannarlega ár Ólafs því auk þess leikur hann aðalhlutverkið í Djúpinu, annari kvikmynd eftir Baltasar. Lífið 13.1.2011 09:00
Syngja fyrir nímenninga Páll Óskar, KK og Ellen, múm og Diskóeyjan eru meðal þeirra sem ætla að syngja á tónleikum í kvöld til stuðnings nímenningunum hafa verið ákærðir fyrir brot á 100. grein hegningarlaga vegna mótmæla sinna við Alþingishúsið. Tónleikarnir verða á Nasa og opnar húsið klukkan 20.30. Miðaverð er 500 krónur. Aðrir sem stíga á svið verða Sin Fang Bous, Reykjavík!, rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson, Steini úr Hjálmum, Prins Póló, Parabólurnar og fleiri gestir. Nánari upplýsingar má finna á síðunni rvk9.org. Lífið 13.1.2011 08:30
Charlie Sheen drekkur eins og svín Síðasta helgi hjá Charlie Sheen virðist hafa verið með villtara móti eftir því sem bandarískir og breskir fjölmiðlar kafa dýpra ofan í sukksama veröld bandaríska leikarans. Hann var staddur í Las Vegas um helgina, sem er kannski ekki í frásögur færandi, nema ef vera kynni fyrir þá staðreynd að Charlie var viðstaddur stærstu klámmyndahátíð heims, AVN-Adult Entertainment Expo. Charlie kaus líka að hella sér af alvöru í sukk og stóðlífi, hellti í sig hverri vodkaflöskunni af fætur annarri á milli þess sem hann bauð klámmyndastjörnum í partí. Lífið 13.1.2011 08:00
Enginn sáttmáli hjá Seth Kanadíski gamanleikarinn Seth Rogen sagði í viðtali við Howard Stern að hann ætlaði ekki að gera hjónabandssáttmála áður en hann gengi í það heilaga með unnustu sinni, þjóninum Lauren Miller. Lífið 13.1.2011 06:30
Doppur og rendur frá Westwood Nú fer daginn að lengja og fólk getur farið að hlakka til sumarsins. Okkur er því óhætt að byrja að skoða vor- og sumarlínur tískuhúsanna og sjá hvað sumarið fram undan ber í skauti sér. Tíska og hönnun 13.1.2011 06:00
Johnny Depp ekki hrifinn af tækninni Leikarinn Johnny Depp er ekki hrifinn af þeim tækninýjungum sem hafa orðið á undanförnum árum og breytingum á sjónvarpsefni. „Stundum langar mig að hlaupa öskrandi frá okkar heimi þar sem allt snýst um tækni, ágenga fjölmiðla og hið brjálæðislega raunveruleikasjónvarp,“ sagði Depp. „Við höfum misst öll tengsl við hið einfalda í lífinu. Við erum að tapa okkar sjálfstæðu persónuleikum.“ Lífið 13.1.2011 05:00