Lífið

Lögðu grunn að kvótakerfinu

Haukur Halldórsson gerði Útvegsspilið ásamt Tómasi Tómassyni og Jóni Jónssyni. Spilið var vinsælasta jólagjöfin árið 1977 og markaði straumhvörf á íslenskum spilamarkaði. Höfundarnir kynntu þáverandi sjávarútvegsráðherra fyrir nýstárlegum hugmyndum um kvó

Menning

Eftirlætisgrannar Ameríku

Flestir Bandaríkjamenn myndu kjósa íþróttamanninn Tim Tebow sem nágranna sinn ef marka má nýja könnun sem gerð var í Bandaríkjunum fyrir stuttu. Í öðru sæti var Jolie-Pitt-fjölskyldan.

Lífið

Ásdís Rán og Garðar fögnuðu á Austur

Við lentum á mjög skemmtilegu borði á Austur. Þetta var rosa gaman. Ég fékk þennan fína pallettu kjól í Júník í Smáralind. Ég var svo hrifin af gullna litnum og ákvað að fagna nýja árinu með gullnu þema, segir Ásdís Rán...

Lífið

Tíu stjörnur sem eiga að skína skært 2012

Tímaritið Glamour tók saman hvaða tíu einstaklingar slógu í gegn á árinu, en flestir þeirra voru óþekkt nöfn þangað til árið 2011. Tímaritið segir lesendum að leggja nöfnin á minnið því eftirfarandi einstaklingar eigi eftir að vera í sviðsljósinu árið 2012. Nafn Pippu Middleton trónir á toppnum enda stal hún senunni í konunglega brúðkaupinu í Bretlandi í vor.

Lífið

Hverjir verða skáld?

Heimsljós eftir Halldór Laxness er sagan um Íslendinga eins og þeir margir hverjir vilja sjá sig. Skáldið stendur fyrir utan lífið, horfir á, er ekki með og tekur ekki afstöðu en getur engu að síður heillað kvenfólkið og jafnvel ráðamenn upp úr skónum þó það sé fátækt og umkomulaust í hinum veraldlega heimi.

Gagnrýni

Alessandra aftur ólétt

Brasilíska fyrirsætan Alessandra Ambrósio á von á öðru barni með unnusta sínum, Jamie Mazur. Parið á fyrir þriggja ára dóttur.

Lífið

Bauð upp á pönnsur

Anna Kristjánsdóttir, vélfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur, varð sextug föstudaginn 30. desember. Hún er ekkert fyrir að leigja sali undir stórfagnaði heldur hélt upp á afmælið heima og steikti pönnukökur ofan í gesti.

Lífið

Tíu vinsælustu fyrirsætur ársins

Tískutímaritið Vogue útnefndi nýverið tíu vinsælustu fyrirsætur ársins. Athygli vakti að fyrirsæturnar eru flestar komnar vel á þrítugsaldurinn og ekki á barnsaldri eins og oft hefur verið. Efsta sætið hreppti fyrirsætan Arizona Muse.

Tíska og hönnun

Mætti með nýja kærustu

Leikarinn Jim Carrey kom fjölmiðlum á óvart er hann mætti með nýja konu upp á arminn á tónleika með Guns N"Roses í Los Angeles. Konan hefur ekki verið nafngreind en vel fór á með parinu á tónleikunum.

Lífið

Hjónavígsla í sögufrægu húsi

Rithöfundarnir Yrsa Þöll Gylfadóttir og Gunnar Theodór Eggertsson gengu í hjónaband á næstsíðasta degi nýliðins árs. Það var allsherjargoðinn Hilmar Örn Hilmarsson sem gaf þau saman í bakgarði hins sögufræga húss Næpunnar við Skálholtsstíg en veislan fór svo fram í Næpunni sjálfri. Við sama tækifæri var dóttur hjónanna gefið nafn.

Lífið

Ber að ofan yfir áramót

Söngvarinn og sjarmatröllið Enrique Iglesias, 36 ára, var ber að ofan í hitanum í St Bart´s ásamt unnustu sinni Önnu Kournikova. Sjarmörinn eyddi jólunum á lúxussnekkjunni sem sjá má í myndasafni...

Lífið

Kafað í sálarlíf skálds

Stórmerkileg ævisaga, samin af heiðarleika og djúpri sannleiksþrá. Landnám er einstaklega góð greining á verkum Gunnars Gunnarssonar, sem og lífsskoðunum hans og persónuleika. Lesandi skilur ekki einungis höfundarverk skáldsins betur eftir að hafa lesið þessa bók, heldur er hann einnig nokkurs vísari um mannlegt eðli – og fyrir það má þakka.

Gagnrýni

Bergþór og Albert bjóða fólki heim

"Við höfum bara verið að gera þetta í smáum stíl, það var svolítið fyrir jól. Aðalhausverkurinn er bara sá að hvorki ég né Albert [Eiríksson] höfum tíma fyrir þetta,“ segir Bergþór Pálsson óperusöngvari.

Lífið

Ísland á hvíta tjaldinu - Þrjár stórmyndinu á teikniborðinu

"Þetta lítur mjög vel út, nú þegar búið er að staðfesta 20 prósenta endurgreiðsluna. Við erum bara á fullu að vinna með tölur enda snýst allt um þær í Hollywood,“ segir Leifur Dagfinnsson, einn af eigendum framleiðslufyrirtækisins True North. Þrjár stórar Hollywood-kvikmyndir eru væntanlegar hingað til lands á árinu sem var að ganga í garð.

Lífið

Salan á Gillz hrundi

"Þetta var langt undir væntingum og vonum,“ segir Jónas Sigurgeirsson hjá Bókafélaginu um söluna á nýjustu bók Egils "Gillzeneggers" Einarssonar, Heilræði Gillz.

Lífið

Kveð besta ár lífs míns

"Nú kveð ég fyrsta heila árið mitt sem kona og jafnframt það besta í lífi mínu. Árið hefur verið rússíbanareið og viðstöðulaust ævintýri frá upphafi til enda. Ég hef öðlast gífurlega lífsreynslu og líður eins og ég sé búin að upplifa allt. Þess vegna fer ég sátt inn í rólega pakkann og stjúpmóðurhlutverkið,“ segir Vala sem heilsar nýju ári með kærastanum Eyjólfi Svani Kristinssyni í faðmi fjölskyldunnar, öðru hvoru megin.

Lífið

Oftar, takk

Falleg lög, fallegur söngur og píanóleikur. Þetta er glæsileg útgáfa sem verður vonandi til þess að lög Sigursveins D. Kristinssonar hljóti þann sess sem þau verðskulda.

Gagnrýni

Vá, nýtt hár - nýtt ár!

Meðfylgjandi má sjá sjónvarpsstjörnuna Kim Kardashian pósa á rauða dreglinum klædd í stuttan hvítan kjól með glænýja hárgreiðslu...

Lífið

Ásgeir hló að sjálfum sér í skaupinu

Sjónvarpsmaðurinn Ásgeir Kolbeinsson er að eigin sögn ánægður með að hafa verið gerður að aðhlátursefni allrar þjóðarinnar í áramótaskaupinu í gær. "Það er auðvitað ekki hægt annað en að vera stoltur af því að vera tekinn fyrir á sama vettvangi og fólk sem hefur almennt skarað framúr og gert eitthvað merkilegt á árinu," segir hann. Aðspurður segir hann grínið engan veginn hafa spillt gleðinni í gærkvöldi. "Ég hef nú aldrei átt í erfiðleikum með að hlæja að sjálfum mér. Og það spillir náttúrlega ekki fyrir hvað þeir völdu dúndur-myndarlegan gæja til að leika þetta."

Lífið

Ástfangin Drive stjarna á hlaupum

Eins og sjá má á myndunum reyndi Ryan Gosling, sem sló heldur betur í gegn í spennumyndinni Drive eftir danska leikstjórann Nicolas Winding Refn, að flýja...

Lífið

Húðflúraður aðdáandi

Ung stúlka í Kaliforníu lét húðflúra nafn tónlistarmannsins Drake þvert yfir ennið á sér skömmu fyrir jól. Sagan barst Drake, sem sagði uppátækið einkennilegt og kvaðst vilja hitta stúlkuna.

Lífið

Sérfræðingar í Seinfeld öttu kappi

Spurningakeppni var haldin á Bakkusi á fimmtudagskvöld þar sem viðfangsefnið var bandarísku gamanþættirnir Seinfeld. Um 150 manns mættu á þessa fyrstu Seinfeld-keppni, sem var mun meira en aðstandendur hennar bjuggust við. Tvö lið deildu með sér sigrinum.

Lífið

Umsóknir fyrir Wacken

Umsóknarferlið fyrir Wacken Metal Battle Iceland er hafið og verður þetta í fjórða sinn sem hljómsveitakeppnin er haldin hér á landi. Sigursveitin heldur utan til Þýskalands þar sem lokakeppnin fer fram í ágúst á hátíðinni Wacken Open Air, sem er stærsta þungarokkshátíð veraldar. Uppselt var á hana í nóvember síðastliðnum.

Lífið

Hélt upp á afmæli fyrir systur sína

Breska stjörnufjölskyldan David og Victoria Beckham buðu systur knattspyrnukappans, Johanne Beckham, í dýrindis kvöldverð milli jóla og nýárs í tilefni af 30 ára afmæli hennar. Johanne var hæstánægð með bróður sinn og svilkonu og setti mynd af sér á samskiptavefinn Twitter með eftirfarandi skilaboðum „Átti yndislegt kvöld í gær. Fjölskyldan mín kom mér á óvart með kvöldverði á uppáhaldsveitingastaðnum mínum. Á ekki afmæli fyrr en í febrúar en þar sem bróðir minn verður ekki á landinu þá fögnuðum við núna. Ég er svo glöð.“

Lífið

Sendi Barbie skilaboð

Kim Kardashian vakti athygli fyrir skrýtin skilaboð á Twitter-samskiptasíðunni yfir hátíðirnar. Hún sendi til dæmis dúkkunni Barbie nokkur skilaboð á jóladag, en Barbie er að sjálfsögðu á Twitter.

Lífið

Vill stofna fjölskyldu

Stacy Keibler og George Clooney njóta nú lífsins saman í Cabo á Kaliforníuskaganum ásamt sameiginlegum vinum. Þó að Keibler sé sátt við lífið eins og það er þessa stundina þráir hún að giftast síðar, ef marka má orð heimildarmanns.

Lífið

Kenndi Óttari að upplifa heimalandið upp á nýtt

„Ísland er paradís ljósmyndarans og hvert sem maður lítur er að finna áhugaverð myndefni,“ segir ljósmyndarinn Elo Vázquez, en hún er unnusta rithöfundarins Óttars M. Norðfjörð og heldur sýningu hér á landi í næstu viku.

Lífið