Lífið

Martraðir IDOLkeppanda - myndband

„Öll fimmtudagskvöld þá dreymir mig martraðir um að ég dett út með hörmulegum hætti," sagði Hrafna Hanna Elísa Herbertsdóttir baksviðs fyrir viku í Smáralindinni eftir að hún söng lagið Sound Of Silence úr The Graduate. Á Facebook síðu Fólks í fréttum má sjá óklippt viðtalið við Hröfnu Hönnu þar sem hún ræðir martraðirnar sem segja til um gengi hennar í Idol stjörnuleit.

Lífið

Með örninn hans Reagan til Miami

"Við tókum þessa ákvörðun þegar allt hrundi," segir Einar Þorsteinsson, fréttamaður á RÚV en hann hyggst halda utan í nám í stjórnmálafræði. Einar ætlar þó ekki að fara til Noregs eða Danmerkur eins og margir landar hans heldur kýs frekar sól og sumaryl á Miami. „Unnusta mín, Helga Kristín Auðunsdóttir,er lögfræðingur hjá Stoðum og hún sótti um styrk til framhaldsnáms í lögfræði við háskólann í Miami. Hún fékk hann og ég fylgdi bara á eftir,“ útskýrir Einar sem sjálfur bíður eftir svari frá stjórnmálafræðideild háskólans. „Ég hef engar áhyggjur af, ég held að ég ætti alveg að komast inn.“

Lífið

Guðlaugur Þór startar páskaeggjaleit

Árleg páskaeggjaleit sjálfstæðismanna í Elliðaárdalnum við gömlu rafstöðina og við grásleppuskúrana á Ægisíðu fer fram í dag. Guðlaugur Þór Þórðarsson, alþingismaður, mun hefja páskaeggjaleitina í Elliðaárdalnum og Birgir Ármannsson, alþingismaður, á Ægisíðunni. Leitin hefst stundvíslega á báðum stöðum klukkan 14.

Lífið

Syngur um Bubba Morthens

Tónlistarmaðurinn Gunnar Hjálmarsson sendi í gær frá sér nýja plötu, Dr. Gunni inniheldur. Platan er seld sem niðurhal á heimasíðu Doktorsins (this.is/drgunni) auk þess sem 300 árituð og tölusett eintök fást í vel völdum plötubúðum.

Lífið

Sarah Michelle Gellar á von á barni

Sarah Michelle Gellar og Freddie Prinze Jr. eiga von á fyrsta barni sínu, eftir því sem People magazine greinir frá. Parið ku vera himinlifandi yfir þessu. Þau eru bæði að vinna hörðum höndum að sjónvarpsþáttum.

Lífið

Pamela Anderson upp að altarinu á ný

Pamela Anderson er á leið í hnapphelduna að nýju. Pamela hefur ekki verið við eina fjölina felld. Þekktust hefur hún verið fyrir samband sitt við trommuleikarann Tommy Lee úr Moetley Crue en nú er það Jamie Padgett sem ætlar að rölta upp að altarinu með Pamelu.

Lífið

Sister Sledge á Broadway um páskana

Sister Sledge diskódrottningarnar koma fram á tveimur tónleikum á Broadway um páskana. „Ég lofa miklu stuði,“ segir Valþór Ólason á Broadway. Tónleikarnir verða 10. og 11. apríl.

Lífið

Ragnheiður tekur við af Lay Low

Sýningar á verðlaunaleikritinu Ökutímar hefjast í Borgarleikhúsinu 2. maí næstkomandi en uppsetning verksins fékk afbragðs viðtökur hjá Leikfélagi Akureyrar á síðasta ári. Söngkonurnar Lay Low og Ragnheiður Gröndal munu af þessu tilefni hljóðrita nýja útgáfu lagsins Saman en lagið er eitt fjölmargra sem Lay Low samdi fyrir sýninguna og hampaði Grímunni fyrir.

Lífið

Tuddi úr Harry Potter tekinn með eiturlyf

Jamie Waylett sem lék einn af andstæðingum Harry Potters úr samnefndum kvikmyndum var handtekinn í gær eftir að fíkniefnalögregla lagði hald á kannbisplöntur á heimili móður hans að andvirði rúmlega 350 þúsund íslenskra króna.

Lífið

Madonna styrkir fórnarlömbin á Ítalíu

Söngdívan Madonna hefur ákveðið að gefa í söfnun fyrir fórnarlömb jarðskjálftanna á Ítalíu í fyrradag. Ákvörðunina tók söngkonan eftir að bæjarstjóri Pacentro óskaði eftir hjálp, en þar bjuggu afi og amma Madonnu eitt sinn.

Lífið

Sálin á páskaballi Officera Klúbbsins

Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns mun kom fram á dansleik Officera Klúbbsins um páskana. Sætaferðir verða í boði fyrir Sálarballið og fara rútur frá Reykjavík klukkan 23 páskadagskvöld sem lenda í Officera Klúbbnum um miðnætti þega húsið opnar. Rúturnar leggja svo af stað í bæinn skömmu eftir að dansleik líkur.

Lífið

Upprennandi listakonur sýna á Akureyri

Nú stendur yfir samsýning fimm málara í Listasafninu á Akureyri sem eiga það sameiginlegt að vinna óhlutbundið, en síðustu árin er engu líkara en að abstrakt-expressjónisminn hafi gengið í endurnýjun lífdaga á Íslandi.

Lífið

Rekinn fyrir að leka Wolverine á netið

Roger Friedman, starfsmanni Fox News, hefur verið vikið úr starfi fyrir að hafa lekið á netið á ókláruðu eintaki hasarmyndarinnar X-Men Origins: Wolverine. Myndin verður frumsýnd í Bandaríkjunum 29. apríl.

Lífið

Hrollur betri en Youtube

Alexander Kárason hefur stofnað vefsíðuna Hrollur.is. Þangað getur áhugafólk um jaðarsport af ýmsu tagi sent inn myndbönd sem það hefur tekið upp. Hann segist hafa fengið mjög mikil viðbrögð við síðunni.

Lífið

IDOL: Syngur með lokuð augun - myndband

Í meðfylgjandi myndskeiði útskýrir Árni Þór Ármannsson af hverju hann söng nánast allt James Bond lagið, You Know My Name, með lokuð augun. Árni ræðir meðal annars um stuðningshópinn og sýnir hvernig hann syngur með lokuð augun.

Lífið

Jan Mayen gefur Veðurguðunum ekkert eftir í hressleika

Hljómsveitin Jan Mayen mun á miðvikudagskvöld koma fram á sínum fyrstu tónleikum á árinu og fara þeir fram á Grand Rokk, en hljómsveitin hefur ekki leikið fyrir almenning síðan á síðustu Airwaves-hátíð. Who Knew og tvær ungar og efnilegar sveitir, Alchemia og On Jupiters Orbit, munu einnig troða upp.

Lífið

Fawcett sögð liggja banaleguna

Bandaríska leikkonan Farrah Fawcett er sögð liggja banaleguna en hún hefur barist við krabbamein í rúmlega þrjú ár. Þetta er fullyrt í People magazine og þar kemur jafnframt fram að hún hafi verið lögð inn á sjúkrahús í Los Angeles á fimmtudaginn í seinustu viku.

Lífið

Spilar í Andy Warhol-safni

Jóhann Jóhannsson er á leiðinni í sína fyrstu tónleikaferð um Bandaríkin í júní undir eigin nafni. Á meðal viðkomustaða er safn listamannsins fræga Andy Warhol í Pittsburgh.

Lífið

Slakar á eftir Gettu betur

„Ætli maður slaki ekki á í páskafríinu" segir Elías Karl Guðmundsson, en hann og félagar hans úr spurningarliði MR sigruðu lið MH-inga í Gettu betur í gær með 28 stigum gegn 25.

Lífið

IDOL: Var mjög ósátt við sjálfa mig - myndband

„Já ég satt best að segja veit ekki alveg hvernig ég á að túlka þetta," svaraði Guðrún Lísa Einarsdóttir, keppandi í Idol stjörnuleit þegar Vísir spurði hana baksviðs í Smáralindinni á föstudag, eftir að hún flutti lagið Mamma Mía, hvernig hún túlkaði athugasemd Björns Jörundar þegar hann líkti flutningi hennar við sænskar kjötbollur.

Lífið

Jón Gnarr fékk draumahundinn

„Ég hef bara verið með svona draslhunda sem enginn annar vildi, bæði blendinga og hreinræktaða, en það voru vandræðahundar sem stöldruðu stutt við hjá mér. Það var draumurinn að fá góðan hund svo ég lét bara verða af því,“ segir Jón Gnarr, sem fékk hundinn Tobba fyrir mánuði síðan.

Lífið

Mikill áhugi fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna

„Jú, mér finnst ég hafa fengið mun sterkari viðbrögð en ég nokkurn tíma gat ímyndað mér," segir Auður Kolbrá Birgisdóttir menntaskólanemi sem setti upp Facebook síðu til að knýja á um að Söngvakeppni framhaldsskólanna yrði sjónvarpað líkt og fyrri ár. Um 10 þúsund Íslendingar skráðu sig á síðuna.

Lífið

Tvær keppnir í ár

RÚV er hætt við að hætta við Spurningakeppni fjölmiðlanna. Því verða tvær slíkar keppnir í ár. „Þetta er magnað og auðvitað eru þetta viðbrögð við keppninni okkar. Mér finnst álíka trúlegt að þau hafi ákveðið þetta með jafn skömmum fyrirvara og raun ber vitni og að allir auðmennirnir hafi ekki heyrt um eyjuna Tortola, “ segir Logi Bergmann Eiðsson.

Lífið

Listrænn Kári fagnar sextugu með ljósmyndasýningu

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðargreiningar, stendur á tímamótum á mánudaginn en þá verður hann sextugur. Í stað þess að bjóða til hefðbundinnar afmælis­veislu með hnallþórum, afmælissöngvum og ræðuhöldum ætlar Kári í tilefni dagsins að opna ljósmyndasýningu í kjallara Norræna hússins á sunnudaginn. Það er við hæfi enda höfuðstöðvar Decode í næsta nágrenni. Sýningin verður síðan opin almenningin mánudag til miðvikudags.

Lífið

Stöð 2 bjargar Söngkeppni framhaldsskólanna

„Við höfum fylgst með þessum gríðarlega áhuga sem er á þessari keppni almennt og þegar ljóst var að RÚV myndi ekki hopa með sína ákvörðun var bara ákveðið að slá til enda er þetta vinsælt sjónvarpsefni,“ segir Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.

Lífið