Lífið

Heimsendir í nánd í nýju lagi frá Nýdanskri

Hljómsveitin Nýdönsk er komin í hljóðver og vinnur að upptökum á nýju lagi. Lagið heitir Í nánd og er gefið út í tilefni af sýningu hljómsveitarinnar í Borgarleikhúsinu í febrúar. „Ég myndi segja að lagið sé í hressari kantinum,“ segir Björn Jörundur Friðbjörnsson, söngvari Nýdanskrar, og fyrir aftan heyrist í Jóni Ólafssyni leggja orð í belg:

Lífið

Kardashian fer sér hægt

Kim Kardashian er farin að slá sér upp með körfuboltamanninum Kris Humphries en samkvæmt stjúpföður stúlkunnar er sambandið ekki alvarlegt. „Hún fer á mörg stefnumót og vanalega hitti ég ekki strákana fyrr en sambandið er orðið alvarlegt.

Lífið

De Niro á Cannes í vor

Tvöfaldi Óskarsverðlaunahafinn Robert De Niro verður formaður dómnefndar á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí. Hinn 67 ára leikari segir það mikinn heiður að vera formaður á einni elstu og bestu kvikmyndahátíð veraldar.

Lífið

KLOVN gaurarnir eru ýkt NÆS

Félagana Casper Christiansen og Frank Hvam sem staddir eru hér á landi til að kynna nýju kvikmyndina þeirra KLOVN má skoða á meðfylgjandi myndum sem teknar voru á veitingahúsinu Austur á föstudagskvöldið þegar SAMfélagið hélt stórglæsilega veislu þeim til handa. Athygli vækti að bæði Frank og Casper gáfu öllum þeim sem vildu spjalla eða láta mynda sig með þeim góðan tíma. Félagarnir, sem gista á svítunni á Hótel Holti fljúga á Saga Class með Icelandair, sem þeir dásama í bak og fyrir, aftur heim til Kaupmannahafnar klukkan 08:00 á laugardagsmorgun. 66 gráður nordur færðu félögunum dúnúlpur að gjöf og eins og myndirnar sýna voru þeir í skýjunum. Í gær, fimmtudag, pöntuðu þeir heimsreisuréttina hjá Fiskfélaginu og djömmuðu síðan fram á nótt á barnum Dillon, sem er uppáhalds barinn þeirra.

Lífið

Nýtt útlit hjá The Charlies

Stúlknasveitin The Charlies hefur nýtt jólafríið sitt hér á Íslandi vel og hélt meðal annars tónleika á skemmtistaðnum Esju kvöldið fyrir gamlárskvöld. Stúlkurnar buðu vinum og vandamönnum á tónleikana og voru þeir vel sóttir líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Lífið

Vægast sagt VILLT partý VÖLU Grand

Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndarinn Sveinbi hjá Superman.is á skemmtistaðnum Re-Play á Grensásvegi á konukvöldi Völu Grand í gærkvöldi. Það er ekki annað að sjá en að konurnar skemmtu sér konunglega þegar karlmaður tók snúning á súlunni á staðnum og fækkaði fötum eins og myndirnar sýna greinilega.

Lífið

Útbrunninn eftir Joey

Matt LeBlanc var útbrunninn eftir að hafa leikið hinn vitgranna Joey í gamanþáttunum Friends og síðar meir í þáttunum Joey. „Eftir að ég hætti að leika Joey langaði mig ekki að vinna. Ég á sex ára dóttur. Ég fór með hana í skólann, hitti vini mína og lék mér. Ég var líka útbrunninn eftir að hafa leikið sama náungann í tólf ár. Ég var orðinn þreyttur,“ sagði LeBlanc. „Flestir

Lífið

Katy Perry er netsmellur ársins 2010

Þrátt fyrir að síðasta plata Katy Perry, Teenage Dream, hafi ekki farið vel ofan í gagnrýnendur virðast lesendur glamúrtímaritsins People vera sáttir við hana, því þeir völdu hana söngkonu ársins og netsmell ársins á árlegri

Lífið

Gullkálfurinn Kiddi seldi þrjátíu þúsund

„Við vorum duglegir strákarnir,“ segir gítar­leikarinn og upptökustjórinn Guðmundur Kristinn Jónsson, eða Kiddi í Hjálmum. Plötur þar sem Kiddi og félagar hans héldu um stjórnartaumana seldust í yfir þrjátíu þúsund eintökum á síðasta ári. Mest seldust nýjar plötur með Hjálmum, Baggalút og Diskóeyjunni, ásamt jólaplötu Sigurðar Guðmundssonar.

Lífið

Engar ballöður á plötu Foo Fighters

Upptökum á sjöundu hljóðvers­plötu Foo Fighters er lokið og að sögn forsprakkans, Daves Grohl, er útkoman verulega kraftmikil. Platan var tekin upp í bílskúrnum heima hjá Grohl og er væntanleg í vor. „Það eru ellefu lög á plötunni og þarna er ekki ein svefndrukkin ballaða,“ sagði Grohl.

Lífið

Eminem með söluhæstu plötu 2010

Rapparinn Eminem átti söluhæstu plötu síðasta árs í Bandaríkjunum, Recovery, sem seldist í 3,42 milljónum eintaka. Eminem er þar með fyrsti flytjandinn sem kemst tvisvar á toppinn með söluhæstu plötuna síðan fyrirtækið Nielsen SoundScan hóf að taka saman sölulistann árið 1991.

Lífið

Hvernig er það skiptist þið endalaust á mökum þarna í Hollywood?

Leikarinn Ryan Phillippe, 36 ára, og leikkonan Amanda Seyfried, 25 ára, eyddu rómantískum stundum í Mexikó á dögunum. Þau sáust saman á veitingastað þar sem þau kysstust yfir forréttinum, aðalréttinum og eftirréttinum ef marka má sjónarvotta. Árið 2008 tók Ryan sér tvo heila mánuði til að ná áttum eftir skilnaðinn við leikkonuna Reese Witherspoon sem hann á tvö börn með áður en hann byrjaði með leikkonunni Abbie Cornish sem lék á móti honum í kvikmyndinni Stop-Loss. Þá var Amanda á föstu með leikaranum, Dominic Cooper, sem lék á móti henni í ABBA kvikmyndinni Mamma Mia!

Lífið

Rapprisar með plötu

Rapparinn Kanye West segir að ný plata með honum og Jay-Z, Watch The Throne, komi út eftir nokkra daga. West hélt þessu fram í partíi með Jay-Z á nætur­klúbbi í Las Vegas á gamlárskvöld. Í október síðastliðnum sagði West að það myndi ekki fara langur tími í gerð plötunnar. „Við ætlum til suðurhluta Frakklands í lok þessa mánaðar til að taka upp nokkrar hugmyndir. Við klárum plötuna örugglega á einum degi eða eitthvað svoleiðis,“ sagði hann.

Lífið

Skinner kveður The Streets

Fimmta og síðasta plata The Streets, Computers and Blues, er væntanleg í næsta mánuði. Forsprakkinn Mike Skinner er orðinn þreyttur á bandinu og vill feta nýjar slóðir í lífinu.

Lífið

Mila Kunis á lausu

Barnastjarnan fyrrverandi, Macaulay Culkin, og leikkonan Mila Kunis eru hætt saman eftir átta ára samband. Talsmaður parsins segir að sambandsslitin hafi þó átt sér stað fyrir nokkrum mánuðum en að þau hafi reynt að halda þeim leyndum á meðan Kunis kynnti nýjustu mynd sína, Black Swan, en myndin hefur hlotið mikið lof ytra. „Við hættum saman í góðu og ætlum að vera góðir vinir,“ hafði Kunis sjálf að segja um slitin.

Lífið

Tvær íslenskar tilnefningar

Nýjustu plötur Jónsa og Ólafar Arnalds eru á meðal tólf platna sem hafa verið tilnefndar til Norrænu tónlistarverðlaunanna 2010. Go með Jónsa og Innundir skinni með Ólöfu Arnalds eru á meðal tólf platna sem hafa verið tilnefndar til Norrænu tónlistarverðlaunanna 2010.

Lífið

Gerry Rafferty látinn

Skoski tónlistarmaðurinn Gerry Rafferty er látinn, 63 ára gamall, eftir langvarandi veikindi. Hann var þekktastur fyrir lögin Baker Street og Stuck in the Middle With You sem hljómaði í kvikmynd Quentins Tarantino, Reservoir Dogs, sem kom út 1992.

Lífið

Hljómsveitin Ég semur HM-lag fyrir landsliðið

„Ég er búinn að semja lagið og það verður frumflutt í þættinum hans Loga Bergmanns á föstudagskvöldið,“ segir Róbert Örn Hjálmtýsson, forsprakki hljómsveitarinnar Ég. Hann hefur samið nýtt lag fyrir íslenska landsliðið í handbolta sem á að blása strákunum okkar baráttuanda í brjóst þegar þeir leika fyrir hönd þjóðarinnar í Svíþjóð.

Lífið

Nei hættu nú ALVEG

Því er haldið fram í nýjasta tölublaði tímaritsins OK! að leikkonan Sandra Bullock sem skildi við Jesse James á síðasta ári eftir að upp komst um framhjáhald hans og leikarinn Ryan Reynolds sem skildi við leikkonuna Scarlett Johansson í byrjun desember á síðasta ári eftir rúmlega tveggja ára hjónaband séu byrjuð saman. Reynolds var ófeiminn við að deila hjónabandsvandræðum hans og Scarlett með mótleikurum sínum en hann og Sandra fóru með aðalhlutverkin í myndinni The Proposal árið 2009. „Hann var mjög opinn um vandræði þeirra og sagði að hann og Scarlett væru að glíma við ýmis vandamál," er haft eftir heimildarmanni.

Lífið

Fann tilgang í lífinu

Halle Berry segir að hún myndi gefa upp kvikmyndaleik fyrir dóttur sína. Óskarsverðlaunaleikkonan á tveggja ára dóttur með fyrrverandi kærasta, Gabriel Aubry, en hún segir að forgangsröðunin hafi breyst þegar hún varð móðir og að hún einbeiti sér ekki að ferlinum lengur. „Börn breyta forgangsröðuninni og núna hef ég tilgang í lífinu. Ég nýt þess að gera bíómyndir en ég myndi gefa það allt upp á bátinn til þess eins að vera með dóttur minni, ef til þess kæmi.“

Lífið

Túristar, Gúllíver og miðilsgáfa

Spennumyndin The Tourist, ævintýramyndin Gulliver"s Travels og nýjasta mynd Clints Eastwood, Hereafter, verða frumsýndar hérlendis á morgun. The Tourist er endurgerð franska tryllisins Anthony Zimmer frá árinu 2005 sem lítið fór fyrir í kvikmyndahúsum.

Lífið

Árni og félagar heitir á lista BBC

Bassaleikarinn Árni Hjörvar Árnason og félagar í bresku hljómsveitinni The Vaccines eru í þriðja sæti á lista breska ríkisútvarpsins BBC yfir heitustu hljómsveitir ársins 2011. BBC birtir ný nöfn á listanum vikulega, en aðeins annað og fyrsta sæti er eftir.

Lífið

Á bókaða fjóra fundi í Hollywood

„Ég átti von á þeim fyrr en það kom eitthvað upp á hjá þeim úti. En jú, ég reikna með því að hitta þá þegar þeir koma,“ segir Gestur Valur Svansson leikstjóri. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær er Klovn-tvíeykið væntanlegt til Íslands í dag til að kynna kvikmynd sína Klovn: The Movie. Gesti Val og

Lífið

Airwaves fær fimm milljónir

„Ég fagna því á þessum krepputímum að við skulum fá fimm milljónir inn í Airwaves,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves.

Lífið

Konur gera sjónvarpsþátt um konur

„Við ætlum að fá til okkar konur sem þora að tjá sig,“ segir fjölmiðlakonan Björk Eiðsdóttir. Björk stýrir nýjum spjallþætti ásamt Nadíu Banine sem hefur göngu sína á Skjá einum 15. febrúar.

Lífið

Þórhallur MIÐILL með skyggnilýsingu

Sambíóin ásamt Þórhalli miðli og Stöð 2 halda sérstaka fjáröflunarsýningu í Sambíóunum Egilshöll til styrktar Sjónarhóli – ráðgjafarmiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir. Miðaverð er 1.500 kr og rennur allur ágóði sýningarinnar til Sjónarhóls en hægt er að kaupa miða á heimasíðu Sambíóanna sem og miðasölu Sambíóanna um land allt. Herlegheitin hefjast klukkan 19:00 og mun Þórhallur miðill byrja kvöldið með skyggnilýsingu fyrir viðstadda en að henni lokinni verður nýjasta mynd Clint Eastwoods, Hereafter forsýnd. Til Sjónarhóls leita fjölskyldur með börn sín á ýmsum aldri og með margvísleg vandamál. Þar getur verið um að ræða vandamál tengd skóla, skort á stuðningsúrræðum, félagsleg vandamál og margt fleira. Þjónusta Sjónarhóls er fyrir allt landið og er mikil áhersla lögð á að hingað geti allir leitað. Þjónustan er endurgjaldslaus og ekki er þörf á tilvísun eða greiningu. Á Sjónarhóli starfa ráðgjafar með foreldrum á þeirra forsendum, með það að markmiði að leita lausna á vandamálunum og styðja við bakið á foreldrum á þeirri vegferð. Bíómyndin Hereafter - Sýnishorn

Lífið

Valdatafl í Kandílandi

Íslenska Hreyfiþróunarsamsteypan frumsýndi á dögunum dansverkið Kandíland, sem byggir á konungaverkum Williams Shakespeare.

Lífið

Draumar breytast í martröð hjá Verzló og MR

„Við vorum búin að ræða þetta leikrit löngu áður en við vissum af Verzlunarskólanum, en vorum samt ekki búin að taka neina endanlega ákvörðum,“ segir Björg Brjánsdóttir, formaður Herranætur, leiklistarfélags Menntaskólans í Reykjavík, en skólinn frumsýnir leikverk Shakespeares,

Lífið