Lífið

Seinfeldstjarna látin

Len Lesser, betur þekktur sem Leó frændi eða Uncle Leo, úr sjónvarpsþáttunum Seinfeld lést í morgun úr lungabólgu 88 ára að aldri.

Lífið

Sigurvegarar í Facebook-leik Vísis

Vísir og Sambíóin stóðu í vikunni fyrir laufléttum Facebook-spurningaleik þar sem verðlaunin voru miðar fyrir tvo á forsýningu á spennumyndinni I am Number Four.

Lífið

Mikið fjör á fjölskyldudegi 365

Fjölskyldudagur 365 var haldinn með pompi og prakt síðastliðinn þriðjudag, 15. febrúar. Skemmtileg dagskrá var þá fyrir börn starfsmanna fyrirtækisins.

Lífið

Djúpur bassi og falleg rödd

Það kom mörgum á óvart þegar Esperanza Spalding hreppti Grammy-verðlaunin sem nýliði ársins. Hún hefur á ferli sínum gefið út þrjár plötur og sungið fyrir forseta Bandaríkjanna.

Lífið

Fyrsta platan í fimmtán ár

Grunge-rokkararnir í Soundgarden eru að hefja upptökur á sinni fyrstu plötu í fimmtán ár. Í tilkynningu á heimasíðu sveitarinnar kemur fram að þeir félagar hafi samið flott lög fyrir plötuna, sem fylgir í kjölfar Down on the Upside sem kom út 1996.

Lífið

Íslensk tónlist og hasarmynd

Íslenskri tónlist bregður fyrir í tveimur kvikmyndum sem frumsýndar verða um helgina. Annars vegar semur Atli Örvarsson alla tónlistina við The Eagle og hins vegar eiga piltarnir í Sigur Rós lokalagið í 127 Hours eftir Danny Boyle. The Eagle fjallar um baráttu rómverska hershöfðingjans Marcus Aquila við vígalega villimenn á Englandi en hann er þar staddur til að rannsaka dularfullt hvarf 9. herdeildar Rómarkeisara. Leikstjóri myndarinnar er Kevin Macdonald en með helstu hlutverk fara þeir Channing Tatum, Jamie Bell og Donald Sutherland.

Lífið

Prinspóló spilar Jukk

Hljómsveitin Prinspóló heldur útgáfutónleika á Faktorý í kvöld. Á tónleikunum verður plata sveitarinnar, Jukk, flutt í heild sinni auk þess sem nokkur lög af EP-plötunni Einn heima eru á efnisskránni.

Lífið

Baltasar og Ingvar í sérflokki

Ingvar E. Sigurðsson er sigur­sælasti leikarinn á Edduverðlaunahátíðinni en hann hefur fengið fimm Eddur fyrir leik sinn í íslenskum kvikmyndum eða stuttmyndum. Kristbjörg Kjeld hefur oftast hlotið Edduna af íslenskum leikkonum.

Lífið

Bylgjubann Jóhanns G. er ólöglegt

Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson hefur engar lagalegar heimildir fyrir því að banna lögin sín á Bylgunni að mati STEFs, Sambands tónskálda og textahöfunda.

Lífið

Paris Hilton að verða þrítug og fríkar út í tilefni þess

Paris Hilton fagnar stórmerkum áfanga á morgun þegar partýljónið verður þrítugt. Eins og lög gera ráð fyrir hélt hún partý, enda oft gert slíkt af minna tilefni. Teitið var haldið í gær og bauð hún um 300 af sínum nánustu vinum til veislu einhversstaðar í Hollywood. Hún mun hafa eytt mörgum tímum í að gera sig klára fyrir herlegheitin en sá sér þó fært að tilkynna aðdáendum sínum í gegnum Twitter að hana hlakkaði rosalega til.

Lífið

Jessica Alba ófrísk

Jessica Alba á von á sínu öðru barni á árinu en leikkonan tilkynnti í dag að hún og eiginmaður hennar ættu von á sínu öðru barn en fyrir eiga þau dótturina Honor.

Lífið

Celine Dion syngur á Óskarnum

Söngfuglinn Celine Dion ætlar að troða upp á næstu Óskarsverðlaunahátíð undir lok mánaðarins. Dion, sem er 42 ára gömul, eignaðist tvíbura í October og hefur lítið komið fram síðan þá. Hún hlakkar því til að koma fram á Óskarnum og ætlar að syngja Smile eftir Charlie Chaplin. Þetta verður reyndar í sjötta sinn sem Celine kemur fram á Óskarnum, síðast fyrir fimm árum þegar hún söng "I knew I loved you" til heiðurs snillingnum Ennio Morricone.

Lífið

Stimpluð vegna aldurs

Jennifer Aniston er undrandi á því hversu mikið fólk veltir sér upp úr aldri hennar. Leikkonan hélt upp á 42 ára afmælið sitt á veitingastað í New York í síðustu viku ásamt leikurunum Adam Sandler og Hugh Jackman.

Lífið

Penn og Jean verða vinir

Bandaríski leikarinn Sean Penn og tónlistarmaðurinn Wyclef Jean hafa ákveðið að grafa stríðsöxina og snúa bökum saman til að hjálpa íbúum Haítí. Penn og Jean sinnaðist illilega í fjölmiðlum þegar leikarinn gagnrýndi rapparann harðlega fyrir forsetaframboð sitt á Haítí en íbúar eyjunnar búa við mikinn skort á mat og öðrum nauðsynjavörum eftir að jarðskjálfti lagði landið nánast í rúst í fyrra. Jean svaraði þessum ásökunum og sagði Penn ekkert annað en gamlan dóphaus en bandaríski leikarinn hefur eytt öllum sínum frítíma á Haítí við hjálparstörf.

Lífið

Johnny Depp: Dóttur minni finnst ég furðulegur

Johnny Depp segir að börnum sínum finnist hegðun hans á hvíta tjaldinu oft vera skrítin. Leikarinn á tvö börn Lilly-Rose ellefu ára og Jack átta ára með frönsku söngkonunni Vanessu Paradis. Depp segist aldrei horfa á myndirnar sem hann leikur í en að hann hvetji börnin sín til að gera það og þannig geti hann metið frammistöðu sína.

Lífið

Harry verður svaramaður Vilhjálms

Vilhjálmur Bretaprins hefur beðið litla bróður sinn Harry um að verða svaramaður í hinu konunglega brúðkaupi sem stendur fyrir dyrum þegar hann kvænist Kate Middleton.

Lífið

Alec Baldwin fær stjörnu á stéttina

Alec Baldwin, stjarnan úr 30 Rock, hefur fengið stjörnu með nafni sínu á gangstéttina í Hollywood en það er ein eftirsóttasta vegtylla sem stjörnurnar í Hollywood geta fengið. Baldwin er númer 2,433 í röðinni en hann hefur í gegnum tíðina unnið til fjölmargra verðlauna, ekki síst upp á síðkastið þegar ferillinn tók stökk uppávið með 30 Rock.

Lífið

Pabbi Miley Cyrus óttast um stelpuna sína

Pabbi Miley Cyrus, köntríkempan Billy Ray Cyrus, segir að sjónvarpsþátturinn Hannah Montana, sem feðginin léku bæði í, hafi rústað fjölskyldunni. Hann segist óska að dóttirin hefði aldrei komið fram í þáttunum.

Lífið

Óvænt plata frá Radiohead

Ólíkindatólin í hljómsveitinni Radiohead tilkynntu í gær að ný plata, The King of Limbs, væri væntanleg á laugardaginn. Hljómsveitin gefur plötuna út sjálf og verður hún aðgengileg á vefsíðunni Thekingoflimbs.com. Hægt verður að hala plötunni niður gegn gjaldi á laugardaginn, en hún kemur svo út á geisladiski og vínyl 9. maí.

Lífið

Þættir Stöðvar 2 fáanlegir á Filma.is

Afþreyingarvefurinn Filma.is og 365 miðlar hafa gert með sér samstarfssamning um að Filma.is selji eða leigi aðgang á netinu á efni í eigu 365 miðla sem hefur verið sýnt á Stöð 2. Meðal vinsælla þáttaraða Stöðvar 2 sem þegar eru fáanlegar á Filma.is eru Vaktaseríurnar þrjár, gamanþáttaröðin Ástríður, Wipeout, Réttur og Steindinn okkar.

Lífið

Mynd um Milli Vanilli í bígerð

Þýski kvikmyndagerðarmaðurinn Florian Gallenburg hefur í hyggju að gera kvikmynd um popp­dúettinn Milli Vanilli. Þeir sem voru uppá sitt besta á hinum illræmda níunda áratug muna eflaust eftir hinum félögunum í Milli Vanilli sem sópuðu til sín verðlaunum og viðurkenningum á þeim tíma, hlutu meðal annars Grammy-verðlaun.

Lífið

Anita í söngleikjamynd

Tvær nýjar stiklur úr kvikmyndum sem skarta Anitu Briem í stórum hlutverkum eru komnar á netið. Þetta eru kvikmyndirnar Dylan Dog: Dead of Night og You Me & Circus.

Lífið

Anita og uppvakningarnir

Tvær nýjar stiklur úr kvikmyndum sem skarta Anitu Briem í stórum hlutverkum eru komnar á netið. Þetta eru kvikmyndirnar Dylan Dog: Dead of Night og You Me & Circus.

Lífið

Portman mátti ekki fljúga til Bretlands

Natalie Portman var kjörin besta leikkonan í aðalhlutverki á Bafta-hátíðinni fyrir frammistöðu sína í The Black Swan. Portman er barnshafandi og mátti ekki fljúga til Bretlands til að vera viðstödd athöfnina.

Lífið