Lífið
Besti taktkjaftur Breta á Nasa Taktkjafturinn Beardyman kemur fram á tónleikum á Nasa næsta laugardag 7. maí. Beardyman vakti fyrst athygli þegar hann vann keppnina UK Beatbox Champion árin 2006 og 2007. Árið 2008 sat hann í dómnefnd. Hann hefur verið í fararbroddi taktkjafta og blandar saman nýjustu tækni og hæfileikum sínum til að skapa heilu tónverkin á sviði. Lífið 3.5.2011 08:00
Bannar meiri megrun Unnusti söng-og leikkonunnar Jennifer Hudson, David Otunga, hefur bannað henni að grennast meira en fjölmiðlar vestanhafs hafa einnig deilt áhyggjum hans af ört minnkandi líkama Óskarverðlaunahafans. Lífið 3.5.2011 06:00
Gefur ekki upp faðerni barnsins Leikkonan January Jones, sem sló í gegn í sjónvarpsþáttunum Mad Men, á von á sínu fyrsta barni. Leikkonan vill þó ekki gefa upp faðerni barnsins. „January á von á sínu fyrsta barni nú í haust. Hún hlakkar mikið til þessa nýja kafla í lífi sínu og að takast á við móðurhlutverkið,“ stóð í tilkynningu frá talsmanni hennar. Lífið 2.5.2011 21:00
Reið út í Andre Glamúrfyrirsætan Katie Price er stödd í Argentínu þar sem hún nýtur lífsins með nýjum kærasta. Price er þó dugleg að fylgjast með gangi mála heima á Englandi og gagnrýndi fyrrverandi eiginmann sinn, Peter Andre, fyrir að leyfa börnum þeirra að koma fram í sjónvarpsþætti hans.Price tjáði óánægju sína á Twitter-síðu sinni. Lífið 2.5.2011 19:30
Logi Geirsson: Allt hrundi á einni nóttu Afreksmaðurinn Logi Geirsson sem er byrjaður í nýju starfi ásamt því að vera nýfluttur til Njarðvíkur með fjölskylduna sína, unnustu og 10 mánaða drenginn þeirra, var aðalgestur Siggu Lund og Ellýar Ármanns í þættinum þeirra á sunnudagskvöldið 1. maí á Bylgjunni. Það var rosalega mikil gleði. Við vorum búin að plana allt og allt klárt. Ég var búinn að fjárfesta mikið úti í Þýskalandi og átti mikið af eignum og mikið af pening og það bara hrundi á einni nóttu..." sagði Logi spurður hvernig honum leið þegar hann varð pabbi. Lífið 2.5.2011 19:14
Þessar erótísku myndir bæta ekki ímyndina Lindsay Lohan er byrjuð að búa sig undir samfélagsþjónustu sem hún telur vera gott tækifæri til að bæta ímynd sína og á sama tíma situr hún fyrir í erótískum stellingum í tímariti sem ber heitið Blank. Dómari í Los Angeles skikkaði leikkonuna nýverið til að sinna samfélagsþjónustu en meðfylgjandi myndir voru einnig teknar sama dag og hún mætti í dómsalinn. Þá var hún einnig dæmd í 120 daga fangelsisvist og 480 klukkustunda vinnu í þágu samfélagsins og hyggst eyða þeim í að kenna heimilislausum konum að leika. Lohan var dæmd fyrir að rjúfa skilorð þegar skartgripasali sakaði hana um að stela hálsmeni frá sér. Lífið 2.5.2011 18:40
Greinilega ástfangin Bandaríska leikkonan Scarlett Johansson og unnusti hennar leikarinn Sean Penn leiddust hönd í hönd um helgina eins og sjá má á myndunum. Lífið 2.5.2011 17:53
Keypti hústökuhúsið - sjáðu hryllinginn Sandra Hlíf Ocares keypti nýverið 100 fermetra hús í Vesturbænum, nánar tiltekið húsið á horni Bræðraborgarstígs og Hávallagötu þar sem hústökufólk hefur hafst við nokkuð lengi. Lífið 2.5.2011 15:32
Lífið gefur miða í bíó Á mæðradaginn, næsta sunnudag, gefum við 10 heppnum lesendum Vísis sem kvitta á vegginn á Facebooksíðu Lífsins og pósta leiknum á eigin Facebooksíðu tvo miða á rómantísku gamanmyndina Something Borrowed sem Sambíóin frumsýna næsta föstudag. Myndin segir frá Rachel sem reynir að gleyma tilfinningum sínum en gengur erfiðlega að finna ástina hjá öðrum, þrátt fyrir að vera eftirsóttur lögfræðingur. Á þrítugsafmælinu dettur hún ærlega í það og í stað þess að drekkja sorgum sínum segir hún kærasta bestu vinkonu sinnar hug sinn og þau enda saman uppi í rúmi. Upphefst þá mikil sálræn barátta – hvort er mikilvægara, ástin sem þú getur ekki gleymt eða vinskapurinn við bestu vinkonu þína? Taktu þátt í bíóleiknum hér. Lífið 2.5.2011 15:03
Brotist inn til Bubba - Ari Eldjárn í aðalhlutverki Steindinn okkar heldur áfram að slá í gegn á Stöð 2. Síðasta fimmtudagskvöld var fjórði þáttur sýndur og eins og áður bauð Steindi upp á fjölmörg sprenghlægileg atriði. Lífið 2.5.2011 15:00
Hollendingar taka upp þrívíddarmynd á Íslandi Tökulið frá hollenska kvikmyndafyrirtækinu Eyeworks er statt hér á landi til að taka upp fyrstu hollensku þrívíddar-kvikmyndina, Nova Zembla. Um níutíu íslenskir og hollenskir kvikmyndagerðarmenn koma að tökunum en það er framleiðslufyrirtækið Saga Film sem hefur veg og vanda af íslenska hlutanum. Verkefni af þessari stærðargráðu skila yfirleitt tugum milljóna inn til landsins og getur þar að auki haft veruleg áhrif á ferðamannastraum frá viðkomandi landi, ekki síst ef myndin slær í gegn heima fyrir. Lífið 2.5.2011 14:00
Í fötum af dóttur sinni Steven Tyler, dómari í American Idol og söngvari Aerosmith, er óhræddur við að klæðast fötum af dóttur sinni, leikkonunni Liv Tyler. "Pabbi klæðist kvenmannsfötum. Það er ótrúlega fyndið,“ sagði Liv. "Stundum sé ég hann og hugsa: "En falleg skyrta – vegna þess að hún er úr fataskápnum mínum.“ Hún er engu að síður ánægð með pabba gamla. "Mér finnst hann mjög myndarlegur og ég er stolt af honum. Ég skil hann mjög vel og veit hvernig hann hugsar.“ Lífið 2.5.2011 12:00
Þú ert að verða að engu stelpa Óskarsverðlaunahafinn, söngkonan Jennifer Hudson, 29 ára, sem hefur nú þegar misst 30 kíló með breyttu mataræði og markvissri hreyfingu stillti sér upp á rauða dreglinum á tónleikum Mary J. Blige í New York í gærkvöldi. Jennifer sem er í dag talsmaður WeightWatchers er stórglæsileg eins og sjá má á myndunum. Jennifer er hinsvegar harðlega gagnrýnd fyrir að minnka áberandi hratt með hverjum deginum en hún heldur því statt og stöðugt fram að hún sé ekki að fara fram úr sér í öfgafullu megrunarátaki heldur með áherslum á heilsusamlegra líferni og að hennar sögn fær hún fleiri spennandi tilboð eftir því sem hún lítur betur út. Lífið 2.5.2011 11:01
Hvaða kona vill ekki mann sem kemur henni á óvart? Meðfylgjandi má heyra tvær vinkonur spjalla saman á persónulegu nótunum þar sem önnur þeirra er nýbúin að sækja eiginmann sinn út á flugvöll. Lífið 2.5.2011 10:30
Karl Berndsen á tímamótum „Ég ætla ekki að fara leka einu eða neinu en get þó staðfest að ég á í viðræðum við Stöð 2,“ segir hárgreiðslumaðurinn Karl Berndsen sem er hættur að stjórna þættinum Nýtt útlit á Skjá einum. Lífið 2.5.2011 10:00
Tarantino klár í nýja mynd Quentin Tarantino hefur lokið við að skrifa handrit að næstu kvikmynd sinni. Myndin hefur fengið nafnið Django Unchained. Lífið 2.5.2011 08:00
Kærustparatónlist sem varð til á fylleríi Valdimar Guðmundsson, söngvari hljómsveitarinnar Valdimar, og Björgvin Ívar Baldursson, upptökustjóri hjá Geimsteini og liðsmaður Lifunar, gefa saman út plötu í sumar. Lífið 2.5.2011 08:00
Glænýr háralitur Leikkonan Scarlett Johansson, 26 ára, er rauðhærð eins og sjá má á myndunum sem teknar voru af henni í gær. Leikkonan er alltaf stórglæsileg sama hvaða háralit hún er með. Með Scarlett var tvíburabróðir hennar Hunter Johansson og leikarinn Bradley Cooper sem leikur á móti henni í rómantísku gamanmyndinni He´s Just Not That Into You. Lífið 1.5.2011 13:55
Gallastuttbuxur slá í gegn Sálarsérfræðingurinn Tobias Fünke er ein af eftirminnilegri persónunum úr sjónvarpsþáttunum Arrested Development. Í þáttunum klæddist hann gjarnan gallastuttbuxum, eða "cutoffs“. Þær verða það heitasta í strákatískunni í sumar. Gallastuttbuxur hafa verið vinsælar meðal karlpeningsins bæði í Svíþjóð og Danmörku undanfarin sumur. Nú hefur þessi tíska náð hingað til lands og að sögn Sindra Snæs Jenssonar, verslunarstjóra í Gallerí Sautján, hafa stuttbuxurnar rokið út. Lífið 1.5.2011 12:15
Elskar spínat Fyrirsætan Miranda Kerr eignaðist soninn Flynn í byrjun janúar á þessu ári. Kerr er komin aftur til vinnu og segist þakka grannan vöxt sinn heilsusamlegu líferni. Lífið 1.5.2011 10:30
Ekki lögð í einelti í skóla Leikkonan Emma Watson úr Harry Potter-myndunum hefur vísað á bug fregnum um að hún hafi hætt í Brown-háskólanum á Rhode Island í Bandaríkjunum vegna þess að hún hafi verið lögð í einelti. Watson ákvað fyrir skömmu að taka sér frí frá námi í eina önn. Í yfirlýsingunni sagðist hún aldrei hafa lent í einelti, hvorki í Brown né annars staðar. Hún er ekki viss um hvað tekur við í haust þegar þriðja námsárið hefst. Hugsanlega fer hún í nám í öðru landi. Lífið 1.5.2011 00:01
Húðflúrari Tyson bálreiður Ef kynningarmyndband væntanlegrar kvikmyndar Hangover 2 er skoðað má greinilega sjá að Ed Helms vaknar upp með nákvæmlega eins húðflúr og Mike Tyson lét setja á andlitið á sér árið 2003. Húðflúrarinn, S. Victor Whitmill, sem bæði teiknaði og húðflúraði listaverkið í andlitið á Tyson er brjálaður út í Warner Bros, framleiðanda kvikmyndarinnar því hann telur sig eiga höfundarréttinn á listaverkinu. S. Victor hefur kært Warner Bros og fer fram á stjarnfræðilega háar fjárhæðir. Lífið 30.4.2011 21:43
Prinsessan greinilega sátt við brúðkaupsnóttina Ef meðfylgjandi myndir, sem teknar voru af Vilhjálmi Bretaprins, 28 ára, og Katrínu Middelton, 29 ára, í dag, laugardag, eru skoðaðar líta þau út fyrir að vera í sjöunda himni eftir brúðkaupið þeirra sem fram fór í Westminster Abbey í gær að viðstöddu fjölmenni. Þá má einnig sjá þyrluna sem flaug með hjónakornin burt frá Bretlandi á ónefndan stað þar sem þau ætla að eyða helginni saman. Opinberu brúðkaupsmyndirnar sem teknar voru af þeim eftir athöfnina má einnig skoða í meðfylgjandi myndasafni. Lífið 30.4.2011 20:33
Eignuðust tvíbura í dag Söngkonan Mariah Carey, 41 árs, og eiginmaður hennar, Nick Cannon, 30 ára, eignuðust tvíbura í dag, dreng og stúlku, á fjögurra ára brúðkaupsafmælinu þeirra, klukkan 12:07, á Los Angeles spítalanum. Eiginkona mín gaf mér ótrúlegustu gjöf sem hægt er að hugsa sér á brúðkaupsafmælinu okkar. Ég á aldrei eftir að toppa hana, skrifaði Nick á Twitter síðuna sína í dag. Hjónin hafa ekki gefið tvíburunum nöfn en þau hlustuðu saman á vinsælt lag Mariuh We Belong Together strax eftir að börnin fæddust. Lífið 30.4.2011 20:06
Cut Copy til Íslands í sumar "Ég held að þetta eigi eftir að verða besta partí sumarsins, jafnvel þótt það sé á miðvikudegi. Bestu partí sumarsins eru alltaf á virkum dögum,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson tónleikahaldari. Lífið 30.4.2011 16:00
Óþekkjanleg Jennifer Lopez Söngkonan og American Idol dómarinn Jennifer Lopez, 41 árs, var nánast óþekkjanleg með risastór sólgleraugu á nefinu, ómáluð í andliti, með hárið tekið upp í snúð, klædd í bleikar joggingbuxur og svartan síðerma rúllukragabol eins og sjá má á myndunum sem voru teknar í fyrradag. Það var hinsvegar allt annað að sjá söngkonuna klædda í gylltan glamúrgalla eftir Zuhair Murad og Christian Louboutin skó. Þetta kvöld var Jennifer stórglæsileg eins og sjá má í myndasafni. Um var að ræða heljarinnar partý sem hún hélt í Los Angeles tilefni af nýju plötunnar hennar Love?. Burtséð frá nýju plötunni er nóg að gera hjá Jennifer. Hún og eiginmaður hennar Marc Anthony ásamt Simon Fuller, sem er hugmyndasmiðurinn á bak við Idol, skipuleggja nú nýjan sjónvarpsraunveruleikaþátt sem ber heitið Que Viva. Þátturinn gengur út á að uppgötva nýja hæfileikaríka söngvara sem eiga ættir sínar að rekja til suður ameríku. Þá hefur Jennifer einnig tekið að sér að taka þátt í að talsetja væntanlega teiknimynd Ice Age: Continental Drift. Lífið 30.4.2011 16:00
Ítalskur dagskrárstjóri ráðinn til RIFF Ítalinn Giorgio Gosetti hefur verið ráðinn dagskrárstjóri Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF. „Ég get fullyrt það að hann er tvímælalaust einn af bestu dagskrárstjórum í Evrópu og þótt víðar væri leitað,“ segir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF. Lífið 30.4.2011 14:00
Lifði af tímann með Mínus Storme Withy-Grubb frá Englandi tekur þátt í fræðslukvöldi Útóns á þriðjudaginn. Hún hefur skipulagt tónleikaferðir með frægum hljómsveitum á borð við Bloc Party, Kaiser Chiefs, CSS og hina íslensku Mínus. Lífið 30.4.2011 13:00
Vinsælir á Tribeca Leikstjórinn Gaukur Úlfarsson er ánægður með viðtökurnar sem heimildarmynd hans Gnarr fékk á kvikmyndahátíðinni Tribeca í New York. Lífið 30.4.2011 12:00
Katy Perry leiðir listann Breska tónlistartímaritið NME kannar um þessar mundir hvaða listamaður er magnaðasti popptónlistarmaður allra tíma. Hvorki meira né minna. Lífið 30.4.2011 11:00