Lífið

Þýska þjóðin hituð upp

Sagnararfur og þjóðardramb Íslendinga er á meðal þess sem sex listamenn velta fyrir sér í ljóða-, leikhús-, sagna- og tónlistarsýningunni Bændur flugust á sem verður flutt í Tjarnarbíói á morgun.

Lífið

Sunddrottning opnar matardagbók

Sunddrottningin Ragnheiður Ragnarsdóttir undirbýr sig þessa dagana af krafti fyrir HM sem fer fram í Shanghai i sumar. Hún leyfði Lífinu að skyggnast í æfingarprógrammið sitt í einn dag með því að skrá niður allt sem hún neytti þann daginn sem og æfingarnar.

Lífið

So You Think-stjörnurnar koma til Íslands næstu helgi

Dómarinn Lil C og keppandinn Legacy úr þáttunum So You Think You Can Dance? eru væntanlegir til landsins fyrir næstu helgi. Þeir koma sérstaklega á vegum DanceCenter Reykjavík, til að kenna á danshátíð skólans, Dansfestivali, sem fram fer um næstu helgi.

Lífið

Adele sú valdamesta í tónlist

Söngkonan Adele hefur verið nefnd valdamesta manneskjan í breska tónlistariðnaðinum í dag. Hljómplata Adele, 21, var mest selda platan í fimmtán löndum og hefur selst í yfir sex milljónum eintaka.

Lífið

Þurfti að pissa í sjóinn

Leikaralífinu fylgir ekki bara glamúr og rauðir dreglar en því fékk spænska leikkonan Penelope Cruz að kynnast á meðan á tökum stóð á sjóræningjamyndinni Pirates of the Caribbean: On Stranger Tides.

Lífið

Hrifin af Leo

Leonardo DiCaprio og Blake Lively hafa sést saman nokkrum sinnum undanfarnar vikur, bæði í Cannes og ítalska bænum Portofino. Samkvæmt bandarískum fjölmiðlum hafa þau verið að draga sig saman síðan í janúar.

Lífið

Pippa eftirsótt

Pippa Middleton, yngri systir hertogynjunnar af Cambridge, er sjóðheit um þessar mundir. Ljósmyndarar elta hana á röndum og vikulega birtast nýjar fréttir af stúlkunni. Þær nýjustu herma að sjónvarpsdrottningarnar Oprah Winfrey og Barbara Walters séu báðar á höttunum eftir Middleton.

Lífið

Hreimurinn varð Cole að falli

Breska poppstjarnan Cheryl Cole hefur verið rekin úr bandarísku útgáfunni af X-Factor. Ástæðan er talin sú að framleiðendur þáttarins óttuðust að bandarískir sjónvarpsáhorfendur myndu ekki skilja sterkan Newcastle-hreim hennar. Áheyrnarprufur fyrir þáttinn hafa staðið yfir að undanförnu.

Lífið

Snilldarhönnun fyrir barnshafandi konur

Hera Guðmundsdóttir nemandi á öðru ári í fatahönnun í LHÍ, sigraði samvinnuverkefni milli fatahönnunarnema Listaháskóla Íslands og verslunarinnar Tvö líf, sem selur fatnað fyrir konur á meðgöngu. Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir Hera hönnunina ásamt Ásdísi Birtu Gunnarsdóttur verslunareiganda.

Lífið

Kæruleysislegt en ekki asnalegt

Sjöunda þáttaröð Popppunkts hefst á laugardagskvöld í Sjónvarpinu þegar Vinir Sjonna og Stjórnin eigast við. Sumarið leggst vel í spurningahöfundinn Dr. Gunna, sem er að vonum ánægður með vinsældirnar sem þættirnir hafa notið. „Fólk hefur haft það á orði að þetta sé kæruleysislegt en samt ekki asnalegt,“ segir hann.

Lífið

Hangover II

Meðfylgjandi myndir voru teknar á sérstakri forsýningu Sambíóanna á kvikmyndinni Hangover 2 í Egilshöll. Gestirnir veinuðu úr hlátri nánast alla myndina sem toppar fyrri myndina svo sannarlega. Hangover 2 verður frumsýnd í dag í Sambíóunum Álfabakka og Sambíóunum Kringlunni og Egilshöll. Sjá nánar hér.

Lífið

Ekki nógu fínir fyrir Hörpuna

"Þetta er okkar Harpa,“ segir tónlistarmaðurinn KK sem spilar með Magga Eiríks á Kaffi Rósenberg í kvöld kl. 22. KK og Maggi eru báðir heiðursmeðlimir Blúsfélags Reykjavíkur og hafa gefið út sex plötur saman, þar á meðal þrjár vinsælar Ferðalaga-plötur. Þeir hafa spilað reglulega á Rósenberg um árin enda líður þeim ákaflega vel þar

Lífið

Slasaður hundur horfinn

Gísli Rúnar Kristinsson saknar Millu sem er þriggja ára tík. Síðast sást til hennar snemma í gærmorgun á Dalvegi í Kópavogi. Hún svarar ef nafn hennar er kallað. Milla, sem er af mini doberman tegundinni, er væntanlega slösuð en Gísli fékk þær upplýsingar stuttu eftir að viðtalið var tekið við hann í dag að keyrt hafi verið utan í Millu og hún flúið óttaslegin af vettvangi í kjölfarið en það staðfestir að hún er á lífi. Vinsamlegast hafið samband við Gísla í síma 895-6667 ef þið hafið einhverjar upplýsingar um ferðir Millu.

Lífið

Hárkolla Arnars Gunnlaugs slær í gegn

Landslið U21 hefur slegið rækilega í gegn að undanförnu en liðið leikur í úrslitakeppni Evrópumótsins í júní í Danmörku. Og nú er búið að gera auglýsingar til að skapa smá stemningu fyrir mótið.

Lífið

Eigum ekki 300 milljónir

"Þetta var skemmtileg hugmynd en þegar maður fór yfir málin og skoðaði það af alvöru þá var þetta ekki fyrir okkur. Þar að auki eigum við engar 300 milljónir,“ segir Sigmar Vilhjálmsson. Í lok apríl kvissaðist það út að tvíeykið Simmi og Jói hyggðust gera tilboð í flatbökufyrirtækið Pizza-Pizza, umboðsaðila Dominos, sem Landsbankinn tók yfir vegna skuldsetningar.

Lífið

Þetta kallast hörkukelerí á almannafæri Bieber

Justin Bieber leiddi kærustuna sína Selenu Gomez á Havaí í gærdag. Þá buslaði kærustuparið í sjónum, fór á jet-ski og lét vel að hvort öðru. Ef meðfylgjandi myndir eru skoðaðar má sjá að parið lét lífvörðinn sem hékk utan í þeim ekki koma í veg fyrir hörkukelerí enda ástfangin upp fyrir haus.

Lífið

Þessi galli segir sex

Jennifer Lopez, 41 árs, stillti sér upp á rauða dreglinum fyrir lokaþátt ameríska Idolsins klædd í ómótstæðilegan Michael Kors galla og Gucci skó. American Idol úrslitaþátturinn er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld klukkan 20:30. Þá kemur í ljós hver stendur uppi sem sigurvegari, Lauren Alaina eða Scotty McCreery.

Lífið

Nolan til bjargar Matthew Modine

Christopher Nolan er að safna liði fyrir þriðju mynd sína um Leðurblökumanninn. Meðal þeirra sem hafa bæst í hópinn eru sjónvarpsleikararnir Brett Cullen og Chris Ellis auk Tom Conti. Athyglisverðasta nafnið er hins vegar Matthew Modine.

Lífið

Ný Facebook-mynd

Önnur kvikmynd þar sem afþreyingarvefurinn Facebook er umfjöllunarefnið er hugsanlega í undirbúningi. Framleiðandinn Warner Bros hefur tryggt sér réttinn á skáldsögunni The Future Of Us eftir þau Jay Asher og Carolyn Macker sem verður gefin út á þessu ári.

Lífið

Orðnir nógu miðaldra fyrir útrás til Danmerkur

Ein langlífasta rokkhljómsveit Íslands, Ham, er að fara halda sína fyrstu tónleika í útlöndum í fimm ár. Þeir leita reyndar ekki langt yfir skammt heldur verða með tvenna tónleika í Danmörku, eina á Spot í Árósum og aðra í Kaupmannahöfn. "Ef tónleikarnir frá 2006 eru teknir frá þá höfum við ekki spilað erlendis síðan í New York, sællar minningar,“ segir Sigurjón Kjartasson, Ham-liði, í samtali við Fréttablaðið. Umrædd New York-ferð er sennilega ein frægasta rokkreisa íslenskrar hljómsveitar í háa herrans tíð.

Lífið

Takið eftir því hvað allir eru glaðir

Það voru allir áberandi brosmildir í gær eins og myndirnar sýna greinilega þegar Aurora velgerðasjóður úthlutaði 10 milljónum til sviðslista en styrkurinn var tilkynntur í árlegri úthlutun sjóðsins 15. febrúar síðastliðinn þegar úthlutað var rúmlega 100 milljónum til ýmissa verkefna á sviði mannúðar, mennta og menningar hérlendis og í Afríkuríkinu Síerra Leóne. Með þessum styrk vill Aurora efla enn frekar sviðslistir með því að styrkja framúrskarandi verkefni sem væntanlega munu hafa varanleg áhrif og nýtast til framtíðar. Sjóðnum bárust alls 67 umsóknir sem var langt umfram það sem búist var við og er því ljóst að um mikla grósku er að ræða á vettvangi sviðslista á Íslandi. Stjórn Auroru fékk með sér í lið þau Viðar Eggertsson leikstjóra og Ingibjörgu Þórisdóttur dramatúrg og leiklistagagrýnanda, til að veita faglega ráðgjöf við val á verkefnum en lögð var mikil áhersla á að verkefnin væru listræn, metnaðarfull og unnin af fagfólki. Styrktarverkefnin: Vesturport - Nýtt leikrit byggt á þjóðsögunni um Axlar-Björn (4 milljónir) Íslenski dansflokkurinn - Uppfærsla á verki Ohad Naharin, Minus 16 (3 milljónir) 16 elskendur - Sýning ársins (2 milljónir) Brúðuleikhúsið 10 fingur - Litla skrímslið (1 milljón)

Lífið

Léttist um 53 kg (hljómar eins og lygasaga)

Mamma og pabbi þau gáfu mér skíðatæki til að byrja heima því ég vildi ekki vera að fara í ræktina og láta alla sjá mig, svaraði Karen Anna Guðmundsdóttir, 30 ára, sem var 120 kg en hún hefur misst 53 kg síðan hún tók ákvörðun um að taka sig í gegn með því að hreyfa sig reglulega og borða rétt. Í meðfylgjandi myndskeiði segir Karen Anna frá því hvernig hún fór að því að léttast um 53 kg og líðanin samhliða breytingunum. Þá má einnig sjá Freyju Sigurðardóttur einkaþjálfara.

Lífið

Öryggismyndavélar vakta hústökuhúsið

„Ég er orðin nokkuð örugg. Mér líður allavegana betur með þetta," segir Sandra Hlíf Ocares, sem keypti niðurnítt hús á Bræðraborgarstígnum fyrir nokkru, en nú er búið að koma upptökuvélum í húsið.

Lífið