Lífið

Will Smith skilinn

Will og Jada Pinkett Smith eru skilin eftir 13 ára langt hjónaband samkvæmt tímaritinu In Touch Weekly. Tíminn flýgur svo hratt. Fólk kemur inn í líf þitt og hverfur jafnóðum. Aldrei láta tækifærið fram hjá þér fara að segja fólkinu sem þú elskar hvað það skiptir þig miklu máli, lét Will hafa eftir sér.

Lífið

Julia Roberts sólar sig á Hawaii

Leikkonan Julia Roberts, 43 ára, sólaði sig á Hawaii með eiginmanni sínum Danny Moder og 4 ára syni þeirra, Henry, eins og sjá má í myndasafni. Julia hefur ellefu ár í röð verið á lista tímaritsins People yfir 50 fallegustu konur heims.

Lífið

Áttburamamman sýnir örin

Áttburamóðirin Nadya Suleman, 35 ára, sýnir örin sem hún hlaut í kjölfar meðgöngunnar þegar hún gekk með átta börn fyrir tæpum þremur árum... Fæðing áttburanna vakti heimsathygli þegar Nadya, þá sex barna móðir, varð skyndilega fjórtán barna móðir. Nadya, sem eignaðist áttburana með aðstoð sæðisgjafa, leitar allra leiða til að auka tekjurnar og baðar sig í sviðsljósinu hvort sem um er að ræða raunveruleikasjónvarpsþátt þar sem börnin fara með aðalhlutverkin eða myndatökur eins og þessa. Sjá myndir hér.

Lífið

Þriðja barnið á leiðinni

Leikarahjónin Ben Affleck, 39 ára, og Jennifer Garner, 39 ára, sem giftu sig árið 2005, eiga von á þriðja barninu. Fulltrúi staðfesti fréttirnar með tilkynningu sem var send til fjölmiðla í dag: Jen og Ben eru í skýjunum yfir að þriðja barnið er á leiðinni. Fjölskylduna má skoða í meðfylgjandi myndasafni.

Lífið

Rúnar kominn með hundrað verðlaun

„Ég var að telja þetta saman fyrir nokkrum dögum og þau eru orðin slétt hundrað. Þau síðustu fékk ég fyrir bestu leikstjórn í kvikmyndinni Eldfjall á kvikmyndahátíð í Transylvaníu,“ segir íslenski leikstjórinn Rúnar Rúnarsson. Hann er sennilega orðinn sá íslenski leikstjóri sem hlotið hefur flest verðlaun því kvikmyndir hans hafa hlotið hundrað verðlaun á kvikmyndahátíðum um allan heim.

Lífið

Hvaða yngingarlyf tekur þú inn Angelina?

Leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, var mynduð í Króatíu um helgina. Þar hitti hún forseta landsins, Ivo Josipovic, til að ræða afleiðingar styrjaldarinnar í Króatíu árið 1990 og framtíðarlausnir. Eins og sjá má á myndunum var Angelina stórglæsileg með slegið hárið í svörtum kjól.

Lífið

Mugison flytur á mölina

Einn dáðasti sonur Vestfjarða, Örn Elías Guðmundsson eða Mugison, er fluttur á mölina og hyggst setjast á skólabekk í haust. Hann ætlar jafnframt að stjórna rokkhátíðinni Aldrei fór ég suður með harðri hendi gegnum tölvupóst. „Enda býr rokkstjórinn Jón Þór Þorleifsson líka hérna fyrir sunnan og við tveir getum bara sent skeyti vestur og látið aðra um að púla fyrir okkur.“

Lífið

Hvað er í gangi hérna Hasselhoff?

Meðfylgjandi má sjá David Hasselhoff syngja og dansa á næturklúbbnum G-A-Y í London um helgina. Ég hef upplifað óteljandi hluti og reyni að miðla reynslu minni eins og þegar ég reyndi að bjarga heiminum en gleymdi að bjarga mér sjálfum," lét David hafa eftir sér. Kappinn sló í gegn í dans- og söngatriðinu eins og sjá má á myndunum.

Lífið

Skemmtu sér á Lebowski-hátíð

„Þetta var algjör snilld og það var fáránlega mikið af fólki,“ segir Svavar Helgi Jakobsson. Hann fór í mikla pílagrímsför til New York ásamt vini sínum, Ólafi Jakobssyni, þar sem helstu leikarar költ-gamanmyndarinnar The Big Lebowski voru samankomnir á stórri aðdáendahátíð.

Lífið

Sveitin fæddist tilbúin

Hljómsveitin ADHD hefur gefið út sína aðra breiðskífu, sem heitir því ágæta nafni ADHD2. Platan er tekin upp í Vestmannaeyjum, þar sem þeir félagar voru helst áreittir af gömlum körlum í sundlauginni.

Lífið

Pósa fyrir Kardashian brúðkaup

Lindsay Lohan, 25 ára, og mamma hennar, Dina, stilltu sér upp fyrir Kardashian brúðkaupið sem fór fram síðasta laugardag. Mæðgurnar sem voru á meðal 440 gesta sem voru viðstaddir athöfnina voru klæddar í síða kjóla með uppsett hárið eins og sjá má á myndunum.

Lífið

Stjörnustælar í minni

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá Jennifer Lopez, 42 ára, taka á móti börnunum sínum, tvíburunum Max og Emme, þar sem hún var við tökur á nýju tónlistarmyndbandi við lagið Papi. Þá má sjá Jennifer keyra um á Fiat bifreið með aðdáendur hlaupandi á eftir sér. Jennifer er fræg fyrir primadonnustæla en fólkið sem vinnur með henni við tökur á kvikmyndinni What to Expect When You're Expecting er orðið langþreytt á kröfunum. Búningsherbergi Jennifer þarf að vera skjannahvítt eins og það leggur sig svo henni líði vel þar inni, og það á við um allan húsbúnaðinn líka. Þá eru sérsniðnar reglur í kringum Jennifer um að enginn má svo mikið sem yrða á hana nema viðkomandi hafi fengið sérstakt leyfi fyrirfram.

Lífið

Myndir og video úr brúðkaupi Kardashian

Raunveruleikasjónvarpsstjarnan Kim Kardashian giftist körfuboltamanninum Kris Humphries um helgina. Þrátt fyrir að tímaritið People hafi keypti einkarétt á því að birta myndir úr brúðkaupinu hefur sjónvarpsstöðin E! póstað nokkrum skjáskotum eins og sjá má í myndasafni. Brúðkaupið verður auðvitað hluti af raunveruleikaþætti Kardashian sem verður sýndur í október á sjónvarpsstöðinni E!.

Lífið

Þjáist af bakverkjum

Victoria Beckham er of veikburða til að geta haldið á nýfæddri dóttur sinni, Harper Seven. Victoria, sem eignaðist dótturina fyrir nokkrum vikum, þjáist af miklum verkjum í baki sem komu upp þegar barnið var tekið með keisaraskurði.

Lífið

Ungur hugsjónamaður á BMX-hjóli

"Fyrst var gert svolítið grín að mér og sagt að ég væri alltaf á þessu hjóli en nú eru allir hættir því. Þegar maður er líka farinn að gera flott myndbönd þá öðlast maður smá virðingu,“ segir Magnús Þórlindsson, ungur BMX-hjólreiðamaður á Selfossi. Hann hefur sýnt áhugamálinu sínu mikla ástríðu þrátt fyrir að vera nánast sá eini í bæjarfélaginu sem hjólar á slíku hjóli. Hann tekur til að mynda strætó með hjólið sitt yfir Hellisheiðina allar helgar til að æfa sig í Reykjavík því aðstaðan, að hans sögn, er ekki uppá marga fiska í heimabænum.

Lífið

Ha var brúðkaupið flipp á fylleríi?

American Pie leikkonan Tara Reid, 35 ára, hætti í febrúar á þessu ári með danska viðskiptamanninum Michael Lillelund eftir þriggja mánaða samband en í meðfylgjandi myndasafni má sjá þau saman í París. Tara, sem hefur átt við áfengisvandamál að stríða í gegnum tíðina, giftist skyndilega manni að nafni Zack Kehayov þar síðustu helgi í Grikklandi. Daninn kom af fjöllum þegar hann frétti af brúðkaupi Töru en lét hafa eftir sér að hann væri ekki sá heppni í þetta sinn og óskaði nýgiftu hjónunum góðs gengis. Meðfylgjandi má sjá myndir sem leikkonan póstaði á Twitter síðunni sinni úr brúðkaupsferðinni en margir sem þekkja til hennar vilja meina að hún líti ekki út fyrir að vera edrú á myndunum. Nýgift í Grikklandi. Ég elska að vera eiginkona! skrifaði Tara jafnframt á Twitter.

Lífið

Dætur Demi flýja ljósmyndara

Dætur Bruce Willis og Demi Moore, Rumer og Scout Willis, voru myndaðar yfirgefa Adele tónleika í Hollywood 17. ágúst síðastliðinn. Eins og sjá má í myndasafni er Scout eins og snýtt úr nösum föður síns. Þau eru nákvæmlega eins burtséð frá hárgreiðslunni. Tallula, þriðja systirin, var fjarri góðu gamni.

Lífið

Diaz og Lopez engar vinkonur

Leikkonurnar Jennifer Lopez og Cameron Diaz fara báðar með hlutverk í kvikmyndinni What to Expect When You're Expecting og að sögn heimildarmanna andar köldu á milli leikkvennanna.

Lífið

Á stefnumót

Það er greinilegt að Lindsay Lohan er í makaleit en hún hefur sést á stefnumótum með þremur mönnum á síðustu vikum. Nú síðast skemmti daman sér prýðilega með hávöxnum dökkhærðum manni á tónleikum bresku söngkonunnar Adele í Los Angeles.

Lífið

Bieber fær götu nefnda eftir sér

Á meðan flestir jafnaldar hans eru að öngla saman fyrir fyrstu fartölvunni hefur gata verið nefnd eftir ungstirninu Justin Bieber. Ellefu ára gömul Texas-mær kom því í gegn þegar hún varð bæjarstjóri í smábænum Forney í Texas í einn dag.

Lífið

Fengu forskot á Game of Thrones sæluna

Sýningar á sjónvarpsþáttunum Game of Thrones hefjast á Stöð 2 annað kvöld. Óhætt er að segja að mikil eftirvænting ríki fyrir þáttunum og því var mikil spenna í Bíói Paradís í gær þar sem sérstök forsýning var á fyrstu tveimur þáttunum.

Lífið

Rokk og plokkfiskur

Haukur S. Magnússon hefur fengið foreldra sína í heimsókn frá Ísafirði yfir Menningarnótt. Saman bjóða þau til veislu úti á Granda í kvöld.

Lífið

Fjölmennt á fatahönnunarkeppni

Úrslitakvöld fatahönnunarkeppninnar Reykjavík Runway fór fram á fimmtudagskvöldið og fjölmennti áhugafólk um íslenska tísku í Hafnarhúsið. Harpa Einarsdóttir bar sigur úr býtum en þarna sýndu einnig merkin Eygló, Shadow Creatures og Rosa-Bryndís.

Lífið

Gott kynlíf lykillinn að góðu hjónabandi

Stórleikarinn Jeff Bridges hefur verið kvæntur konu sinni, Susan Geston, frá árinu 1977 og eiga þau hjónin saman þrjár dætur. Í nýlegu viðtali sagði Bridges að lykillinn að farsælu hjónabandi væri ást og nóg af kynlífi.

Lífið

Gömlu brýnin komin í gull

Gleðin sveif yfir vötnum á skemmtistaðnum Vellinum á Grensásvegi á fimmtudagskvöldið þegar þrír af vinsælustu tónlistarmönnum landsins tóku við gullplötu fyrir sölu á plötu sinni. Þetta voru þeir Gylfi Ægisson, Rúnar Þór og Megas sem hafa selt yfir fimm þúsund eintök af plötunni MS GRM sem kom út á síðasta ári.

Lífið

Langaði mest til að flýja land

Bókin er loksins á leiðinni, útgáfupartíið verður 25. ágúst,“ segir Tobba Marinós og á þá að sjálfsögðu við framhald metsölubókarinnar Makalaus, sem fengið hefur nafnið Lýtalaus. Blaðamanni þykir orðinu loksins eiginlega ofaukið, því aðeins er rétt rúmt ár síðan Makalaus kom út og í millitíðinni gaf Tobba út bókina Dömusiði.

Lífið