Lífið

Vangadans á settinu

Sjarmörinn Ryan Gosling hélt fast í leikkonuna Rooney Mara á setti nýjustu myndar Terrence Malick í vikunni.

Lífið

Í stíl á deiti

Poppstjarnan Cheryl Cole og Tre Holloway eru aðeins búin að deita í nokkra mánuði en eru strax byrjuð að klæða sig í stíl.

Lífið

Megan Fox orðin mamma

Leikkonan Megan Fox, 26 ára, og leikarinn Brian Austin Green eignuðust strák sem nefndur hefur verið Noah Shannon Green ef marka má Facebooksíðu leikkonunnar þar sem hún skrifaði: "Við höfum verið svo heppin að upplifa rólega viku hérna heima... en ég eignaðist soninn okkar 27. september síðastliðinn. Hann er heilbrigður, hamingjusamur og fullkominn."

Lífið

Sjáðu lúxusvillu Twilight stjörnu

Twilight stjarnan Kristen Stewart, 22 ára, hefur fest kaup á lúxusvillu í fimm mínútna aksturs-fjarlægð frá leikararanum Robert Pattinson - manninum sem hún elskar og þráir enn eftir að hún hélt fram hjá honum með leikstjóranum Rupert Sanders. Kristen flutti í kjölfar framhjáhaldsins úr húsinu sem hún leigði í Los Angeles með Robert. Í myndasafni má skoða villuna hennar sem er ekki af verri endanum. Hún kostaði litlar 2.195 milljónir bandaríkjadala.

Lífið

Lætur stelpunni líða vel

Katy Perry og John Mayer eru nánari en margan grunar. Þau voru mynduð saman í gærkvöld þegar John hélt upp á 35 ára afmælið sitt. "Mér líður mjög vel með honum. Ég get veri ég sjálf þegar við erum saman," sagði Katy sem er 27 ára gömul.

Lífið

Glænýjar tennur

Það verður seint sagt að leikkonan Gwyneth Paltrow, 40 ára, eldist illa því hún verður glæsilegri með hverju árinu sem líður. Á mánudaginn mætti leikkonan á rauða dregilinn klædd í svartan Michael Kors kjól. Hún hefur eins og svo margar Hollywoodstjörnur fengið sér nýtt stell eða öllu heldur tennur - sem heppnaðist líka þetta svona vel.

Lífið

Gátu ekki keypt á netinu

Heimsóttu dvalarheimili aldraðra í Þorlákshöfn til þess að hjálpa gamla fólkinu að kaupa miða á tónleika Jónasar Sigurðssonar.

Lífið

Ég fer aldrei í megrun

Breska leikkonan Amanda Holden er ávallt í sviðsljósinu í heimalandi sínu en er alveg sama þó gula pressan velti sér upp úr holdafari hennar.

Lífið

Eiginkonur og mæður eru líka sexí

Sjónvarpsstjarnan Connie Britton á glæstan feril að baki í sjónvarpi. Hún hefur meðal annars leikið í Friday Night Lights og American Horror Story og leggur mikla vinnu í karakterana sína.

Lífið

Fyrstu myndirnar eftir framhjáhaldið

Twilight parið Kristen Stewart og Robert Pattinson voru mynduð saman í gær, mánudag. Eins og sjá má á myndunum voru þau bæði með derhúfu og sólgleraugu. Vel virtist fara á með parinu. Kristen hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir að myndir náðust af henni í ástaratlotum við leikstjóra kvikmyndarinnar Snow White and the Huntsman. Bæði Kristen og leikstjórinn sendu frá sér afsökunarbeiðni í kjölfarið þar sem hún sagði að henni þætti atvikið leitt og að hafa valdið fólkinu í kringum sig svona miklum skaða og þá sérstaklega manneskjunni sem að hún elskar og virðir mest - Robert Pattinson sem hefur eflaust átt enn erfiðara með að sætta sig við framhjáhaldið.

Lífið

Brotin eftir boxtíma

Client List leikkonan Jennifer Love Hewitt var á ferðinni í Los Angeles um helgina. Vakti athygli að leikkonan er var með blátt gifs á öðrum handleggnum en ástæðan mun vera sú að hún að brotnaði á úlnlið í boxtíma á dögunum.

Lífið

Unga fólkið er sniðugra en við höldum

Ægir Örn Kristjánsson í Hofsstaðaskóla vann gullverðlaun í flokki útlits og formhönnunar í nýsköpunarkeppni grunnskólanema fyrir kassann sinn Plastver, sem er kassi ætlaður þeim sem vilja fara varlega þegar þeir sprengja upp flugelda og tertur. Ægir fékk einnig viðurkenningu fyrir sköpunarkraft, frumkvæði og uppfinningargleði. Í verðlaun hlaut Ægir glænýjan Ipad, viðurkenningu forseti Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, sem er verndari keppninnar. Sjá úrslit keppninnar sem haldin var í 21. sinn HÉR.

Lífið

Ástin blómstrar víst í Hollywood

Hollywoodstjörnurnar Jennifer Garner og Ben Affleck leiddust þegar þau röltu um götur Parísar í Frakklandi á mánudaginn var. Háværar sögusagnir í slúðurheiminum sem eru oftar en ekki helber lygi - um að þau væru að skilja hafa hljómað nánast síðan þau byrjuðu saman. Eins og sjá má brostu hjónin og gáfu sér tíma til að láta mynda sig með aðdáanda.

Lífið

Hefur ekki farið á stefnumót í tvö ár

Það er enginn dans á rósum að vera heimsfræg eins og söngkonan Rihanna en hún segist ekki hafa farið á stefnumót í tvö ár. Segir hún menn almennt feimna að nálgast sig. "Það býður mér enginn á stefnumót, trúðu mér. Ég bíð eftir því að einhver gerist nógu hugrakkur til að spyrja. Svo finnur maður bara þann ranga þegar maður fer að leita,“ lét söngkonan hafa eftir sér í viðtali við Vogue á dögunum.

Lífið

Frægur Frakki í Fríkirkjunni

Heimsfrægur leikstjóri tónlistarmyndbanda, sem hefur lokið við upptökur hér á landi. Hann hefur leikstýrt tónlistarmynböndum hjá stjörnum eins og Rihönnu og Drake.

Lífið

Yngri kærasti = meira fjör?

Söng- og leikkonunni Jennifer Lopez leiðist ekki með unga kærastanum Casper Smart sem er aðeins 24 ára gamall. Jennifer, sem er 43 ára gömul, hefur viðurkennt opinberlega að þeim líður vel saman og að hún getur verið hún sjálf með unga dansaranum sem sér um dansatriðin hennar hvar sem hún kemur fram. Ætli aldursmunurinn sé lykillinn að því að konur yfir fertugu blómstri? Á meðfylgjandi myndum má sjá Jennifer með unglambinu og dóttur hennar, Emme í verslunarleiðangri í París í Frakklandi. Þá má einnig sjá eldri myndir þar sem Max sonur hennar er einnig með í för.

Lífið

Grét í hárgreiðslustólnum

Bandaríska leikkonan Tia Mowry eignaðist sitt fyrsta barn í fyrra. Þá lofaði hún sjálfri sér að hún myndi klippa sig stutt en þegar í stólinn var komið helltust alls kyns tilfinningar yfir hana.

Lífið

Við börðumst við átröskun!

Pussycat Dolls-skvísan Nicole Scherzinger opnaði sig á dögunum um baráttu sína við átröskun. Hún er langt frá því að vera eina konan í stjörnuheiminum sem hefur gengið í gegnum slíka erfiðleika.

Lífið

Ómálaðar stjörnur

Stjörnurnar í Hollywood eru yfirleitt óaðfinnanlegar og því rekur mann oft í rogastans þegar þær sjást ómálaðar.

Lífið

Óþekkjanlegur svona kafloðinn

Leikarinn Jared Leto, 40 ára, gekk hröðum skrefum um Soho hverfið í New York í gærdag með hárið vatnsgreitt aftur og skeggjaður. Eins og hann segir sjálfur þá er hann fullur af sjálfstrausti og er slétt sama hvaða skoðun aðrir hafa á honum.

Lífið

Beckham ekki barnshafandi

Victoria Beckham, 38 ára, hefur sent frá sér tilkynningu um að hún er ekki barnshafandi. af fimmta barninu eins og fjölmiðlar vestan hafs halda fram. Meðfylgjandi myndir voru teknar af henni versla í London með Harper dóttur sinni.

Lífið