Lífið

Þetta hlýtur að vera fótósjoppað

Sjónvarpskokkurinn Nigella Lawson lítur mjög vel út á myndum sem teknar voru fyrir nýja bandaríska þáttinn hennar, The Taste. Hún lagði mikla áherslu á að myndirnar af henni yrðu ekki fótósjoppaðar en eitthvað hefur það breyst.

Lífið

Lykilatriði að spila í þægilegum fötum

Krakkarnir hljómsveitinni Bloodgroup hafa í nógu að snúast þessa dagana. Það vakti athygli lífsins hvað Sunna Margrét, söngkona hljómsveitarinnar er alltaf flott á sviði. Við heyrðum stuttlega í henni og spjölluðum um fataval sem og það sem framundan er.

Lífið

Þær ljúga um þyngdarmissi

Leikkonan og spéfuglinn Nicole Sullivan heldur því fram í viðtali við Us Weekly að frægar mömmur ljúgi til um hvernig þær léttast eftir barnsburð.

Lífið

Hverjir komast áfram í Söngvakeppninni í kvöld?

Fyrri undanúrslit Söngvakeppninnar 2013 fara fram í sjónvarpssal í kvöld. Fréttablaðið fékk þau Evu Laufeyju Kjaran Hermannsdóttur og Vigni Rafn Valþórsson til að hlusta á lögin sex sem keppa í kvöld og leggja sitt mat á þau.

Lífið

Hún fylgist með þér á Facebook

Andlitsbókin er náttúrulega heil gullnáma af upplýsingum. Ef þú sérð að hún lækar á gamla mynd eða setur komment við gömul stöðuskilaboð er hún klárlega að leita að upplýsingum sem bendir til mikils áhuga. Áhuginn á þér gerir hana forvitna um þig.

Lífið

Stutthærðar stjörnur

Mörg þekkt andlit hafa sést með stutt hár upp á síðkastið. Stutta hárið er þægilegt og á sama tíma töff. Við skulum skoða nokkrar stutthærðar stjörnur.

Lífið

Notar krem stútfullt af andoxunarefnum

Ingunn Jónsdóttir vöruhönnuður og starfsmaður nýsköpunardeildar Matís er stórglæsileg kona sem hefur nóg að gera samhliða móðurhlutverkinu. Við forvitnuðumst hvaða snyrtivörur hún notar dags daglega.

Lífið

Sumartískan er skák og mát

Hönnuðir eru sammála um að kassar eru munstrur sumarsins eins og Elísabet Gunnarsdóttir, bloggari á Trendnet. Kjólar, buxur, peysur...

Lífið

Hef staðið mig að því að fela kynþokkann

Stórleikkonan Aníta Briem er í einlægu spalli við Lífið, fylgiblað Fréttablaðsins á morgun. Þar segir hún meðal annars frá nýjustu verkefnunum sínum og hvernig hún undirbýr sig fyrir mismunandi hlutverk. "Núna síðast lék ég til dæmis mikinn vandræðagemling í gamanmynd og vildi því hafa mjúkar línur og ákvað því að fara í súludans og jóga í bland. Svo þurfti ég líka að vera ansi fáklædd í einni senu svo mig langaði að sjá hvað ég gæti ýtt kvenleikanum langt, vera opin, mjúk. Ég hef staðið mig að því að vernda og fela kynþokkann og kvenleikann - en konur eiga að vera konur, í öllu sínu dásamlega veldi.“segirAníta.

Lífið

Fyrsta myndin af barninu

Söngkonan Shakira og fótboltamaðurinn Gerard Pique eignuðust son á þriðjudaginn og eru strax búin að setja fyrstu myndina af honum á Twitter.

Lífið

Merkjavörur leynast í Rauða krossinum

Okkur barst það til eyrna að Rauða krossinum bærist meira magn af fatnaði en þau náðu að komast í gegnum og okkur langaði til að reyna að búa til enn meiri verðmæti úr þessu mikla magni í stað þess að senda það úr landi”, segir Hildur Rósa Konráðsdóttir verslunarstjóri í 9Lífum.

Lífið

Ray Liotta til liðs við Prúðu- leikarana

Ray Liotta mun fara með hlutverk í framhaldsmynd um Prúðuleikarana, Muppets II, sem frumsýnd verður í Bandaríkjunum í mars. Gamanleikarinn Jason Segel átti veg og vanda að fyrri myndinni í endurreisn Prúðuleikaranna, The Muppets frá 2011, en hann tekur ekki þátt í gerð framhaldsmyndarinnar.

Lífið

Fyrsta ferðin breytti lífinu

Angelina Jolie segir að fyrsta ferðin sín til Afríku fyrir Sameinuðu þjóðirnar hafi breytt lífi sínu. Tilfinningarnar báru hana ofurliði vegna þeirra bágbornu aðstæðna sem hún varð vitni að. Henni var ráðlagt að skrá líðan sína í dagbók til að hjálpa sér að vinna úr því sem hún sá. Leikkonan segir þessa reynslu hafa breytt sér. „Ég veit að ég opnaði mig og vildi læra meira um heiminn og um annað fólk og hvað er að gerast í kringum mig. Þannig að ég breyttist,“ sagði Jolie, sem er núna góðgerðarfulltrúi Sameinuðu þjóðanna.

Lífið

Nýtur lífsins með unnustanum

Miley Cyrus hefur það gott á Costa Rica ásamt unnusta sínum Liam Hemsworth og fjölskyldu hans um þessar mundir. Parið virtist mjög ástfangið þar sem þau létu vel hvort að öðru á ströndinni. Miley hefur þó látið eftir sér að þau séu ekkert að flýta sér upp að altarinu, en hún segir að þau ætli að njóta þess að vera trúlofuð í bili. ,,Fyrst ætla ég að klára myndina sem ég er að vinna að, svo plötuna mína – þá fyrst kemst ég í að plana brúðkaupið”.

Lífið

Missti 30 kg

"Ég er búin að missa 30 kg á einu ári og er ekki búin enn. Maðurinn minn er búinn að missa 17 kg. Við vorum jafn þung eða bæði 97 kg í byrjun janúar í fyrra."

Lífið

Það er ekki aðlaðandi að vera horaður

Liz Hurley er sannkallaður þúsundþjalasmiður. Hún leikur og situr fyrir og er meira að segja með sína eigin sundfatalínu. Hún sýnir línurnar í nýjasta hefti rússneska tímaritsins Tatler Russia og talar um mataræði sitt.

Lífið

Anna Mjöll: Mér þykir svo vænt um Ísland

"Ég hef alltaf verið svo stolt af því að vera Íslendingur. Mér þykir svo vænt um Ísland og þykir sagan okkar svo merkileg," segir Anna Mjöll. "Mamma stakk upp á Árbæjarsafnskirkju sem mér fannst frábær hugmynd því mér finnst sú kirkja tengja okkur nær rótum okkar en margar aðrar svo ég hrindi í hvelli. Starfsmenn þar voru einstaklega almennilegir þetta bara féll einhvern veginn allt saman eins og það hefði alltaf átt að vera svona og þar með var það ákveðið."

Lífið

Vill losna við brjóstapúðana

Glamúrfyrirsætan Chantelle Houghton hefur eytt mestum tíma sínum nýverið með dóttur sinni Dolly sem er aðeins nokkurra mánaða. Hún eignaðist hana með fyrrverandi kærasta sínum Alex Reid sem var eitt sinn kvæntur öðru glamúrmódeli – nefnilega Katie Price.

Lífið

Hún er geðveik

Það virðist engan enda ætla að taka, stríðið á milli raunveruleikastjörnunnar Brandi Glanville og kántrísöngkonunnar LeAnn Rimes. LeAnn er sem kunnugt er gift Eddie Cibrian, fyrrverandi eiginmanni Brandi.

Lífið

Innilegar vinkonur

Fyrirsætan Cara Delvingne og söngkonan Rita Ora er rísandi stjörnur og bestu vinkonur, en síðan þær kynntust á tónlistarhátíð í fyrra hafa þær verið óaðskiljanlegar....

Lífið

Mikið stuð á mannskapnum

Eins og sjá má á myndunum var vel mætt á tónleika Péturs Ben og hljómsveitar sem þóttu heppnast vel og þar af leiðandi mikið stuð á mannskapnum.

Lífið