Erlent
Greta Thunberg heiðruð á sænsku frímerki Teikning af aðgerðasinnanum Gretu Thunberg prýðir nú sænskt frímerki. Um er að ræða viðurkenningu til handa Thunberg, fyrir viðleitni hennar til að „varðveita einstaka náttúru Svíþjóðar fyrir komandi kynslóðir.“ Erlent 13.1.2021 21:36
Trump ákærður fyrir embættisbrot öðru sinni Meirihluti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í kvöld að ákæra Donald Trump, fráfarandi forseta, fyrir embættisbrot vegna aðkomu hans að árásinni á þinghúsið í síðustu viku. Nokkrir þingmenn Repúblikanaflokksins gengu til liðs við Demókrata í atkvæðagreiðslunni. Erlent 13.1.2021 21:24
Stærstu mafíuréttarhöldin í áratugi hafin Stærstu mafíuréttarhöld í áratugaraðir hófust á Ítalíu í morgun. 355 meintir mafíósar og spilltir embættismenn eru sakaðir um skipulagða glæpastarfsemi. Erlent 13.1.2021 17:30
Forsetinn lagður inn á sjúkrahús með Covid-19 Armen Sargsyan, forseti Armeníu, hefur verið lagður inn á sjúkrahús í London í Englandi, eftir að hafa greinst með smit í síðustu viku. Erlent 13.1.2021 12:27
Navalní snýr aftur til Rússlands Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní mun snúa aftur til Rússlands á sunnudaginn. Erlent 13.1.2021 10:17
Forsætisráðherra Eistlands segir af sér í skugga mútumáls Jüri Ratas, forsætisráðherra Eistlands, hefur ákveðið að segja af sér. Frá þessu greindi forsætisráðherrann í morgun en þrýstingur á Ratas hefur aukist mikið síðustu misserin vegna mútumáls sem fjöldi háttsettra stjórnmálamanna í landinu hefur verið bendlaður við. Erlent 13.1.2021 08:52
YouTube lokar tímabundið á Donald Trump Myndbandssíðan YouTube, sem er í eigu tæknirisans Google, hefur ákveðið að loka tímabundið á það að Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, geti hlaðið upp efni á síðuna. Trump getur þannig hvorki hlaðið upp myndböndum né verið í beinu streymi á YouTube. Erlent 13.1.2021 08:49
Sinovac með rétt rúmlega 50 prósent virkni Kínverska bóluefnið Sinovac sem þróað var gegn Covid-19 virðist aðeins hafa rétt rúmlega 50 prósent virkni ef marka má niðurstöður klínískra rannsókna í Brasilíu. Erlent 13.1.2021 07:18
Fyrsta konan sem tekin er af lífi í alríkinu í sjötíu ár Lisa Montgomery, 52 ára gömul kona frá Kansas í Bandaríkjunum, hefur verið tekin af lífi með banvænni sprautu í Terre Haute-fangelsinu í Indiana. Hún er fyrsta konan sem tekin er af lífi í bandaríska alríkinu í tæp sjötíu ár. Erlent 13.1.2021 07:14
Þingmenn Repúblikana snúast gegn Trump Kapphlaup Demókrata á Bandaríkjaþingi til að koma Donald Trump forseta frá völdum með ákæru fyrir brot í starfi virðist vera að fá nokkurn byr í seglin en nú þegar hafa þó nokkrir Repúblikanar sagst ætla að samþykkja tillöguna. Erlent 13.1.2021 07:14
Kim, systir Kim, segir herforingja Suður-Kóreu heimska Kim Yo Jong, systir Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, segir herforingja í Suður-Kóreu vera vitleysinga og aðhlátursefni. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem birt var af ríkismiðli Norður-Kóreu í dag en Kim er yfir samskiptum einræðisríkisins við nágranna sína í suðri. Erlent 12.1.2021 23:51
Níu þúsund börn létust á írskum heimilum fyrir ógiftar mæður Á 19. og 20. öld létust 9.000 börn á átján stofnunum á Írlandi fyrir konur og stúlkur sem urðu þungaðar utan hjónabands. Þetta kemur fram í skýrslu sem kynnt var í dag en forsætisráðherra landsins segir um að ræða myrkan, erfiðan og skammarlegan kafla í sögu þjóðarinnar. Erlent 12.1.2021 23:04
Búið að ákæra sjötíu og búist við hundruð ákæra til viðbótar Búið er að ákæra rúmlega 70 manns vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna í síðustu viku en líklegt er að hundruð eða jafnvel þúsundir verði að endingu ákærðir. Meðal annars stendur til að ákæra fólk fyrir uppreisnaráróður, fyrir að fara inn í þinghúsið í leyfisleysi og morð. Erlent 12.1.2021 22:21
Sektuð fyrir að taka ólaðan manninn í göngutúr Par í Kanada hefur verið sektað fyrir að brjóta gegn útgöngubanni vegna Covid-19 eftir að lögregla stöðvaði þau þar sem konan leiddi manninn í ól. Konan sagðist bara vera „úti að ganga með hundinn“, sem er heimilt samkvæmt reglunum. Erlent 12.1.2021 21:52
Evrópskir ráðamenn neituðu að hitta Pompeo Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hætti í skyndi við síðustu embættisferð sína í dag, eftir að ráðamenn og embættismenn í Evrópusambandsinu neituðu að hitta hann. Ástæðan er sögð vera árásin á þinghús Bandaríkjanna í síðustu viku og aðkoma Donalds Trump, forseta, að henni. Erlent 12.1.2021 20:34
Munu ekki þrýsta á þingmenn að segja nei við ákærum á hendur Trump Leiðtogar Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild bandaríska þingsins hafa ákveðið að þrýsta ekki á flokksfélaga sína um að greiða atkvæði gegn því að Donald Trump Bandaríkjaforseti verði ákærður fyrir embættisbrot. Erlent 12.1.2021 20:16
Hefur barist fyrir lífi sínu í þrjú ár: Sprelllifandi úrskurðuð látin Frönsk kona hefur freistað þess í þrjú ár að sannfæra yfirvöld um að hún sé sannarlega á lífi eftir að hún var úrskurðuð látin án þess að gögn þess efnis væru lögð fram. Erlent 12.1.2021 18:48
Segist enga ábyrgð bera Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir gífurlega reiði í Bandaríkjunum vegna þess að fulltrúadeild þingsins undirbúi að kæra hann aftur fyrir embættisbrot. Að þessu sinni er verið að kæra hann fyrir að hvetja fólk til uppreisnar. Erlent 12.1.2021 18:05
Spilavítaeigandinn Sheldon Adelson er látinn Bandaríski auðjöfurinn Sheldon G. Adelson, sem rak spilavíti og var lengi einn mest áberandi maðurinn í viðskiptalífinu í Las Vegas, er látinn. Hann varð 87 ára. Erlent 12.1.2021 14:07
Mesti samdráttur í losun í Bandaríkjunum frá lokum seinna stríðs Losun á gróðurhúsalofttegundum í Bandaríkjunum fór á síðasta ári í fyrsta skipti á síðustu þremur áratugum niður fyrir það magn sem var árið 1990. Loftslagsrannsóknafyrirtækið Rhodium áætlar að samdrátturinn hafi numið um 10 prósent milli ára og þannig verið sá mesti frá lokum seinna stríðs. Erlent 12.1.2021 13:35
Kafarar fundu flugrita vélarinnar Kafarar á vegum indónesíska hersins hafa fundið flugrita flugvélar Sriwijaya Air sem hrapaði í Jövuhafi um helgina með 62 um borð. AP greinir frá þessu, en vélin hrapaði skömmu eftir flugtak í höfuðborginni Jakarta á laugardag. Erlent 12.1.2021 11:43
Stefna á markaðsleyfi fyrir AstraZeneca eftir rúmar tvær vikur Lyfjaframleiðandinn AstraZeneca hefur sótt um skilyrt markaðsleyfi fyrir bóluefni sínu gegn kórónuveirunni hjá Lyfjastofnun Evrópu. Umsóknin mun fá flýtimeðferð hjá stofnuninni og leyfið gæti verið gefið út 29. janúar, eftir rúmar tvær vikur. Erlent 12.1.2021 09:30
WHO: Hjarðónæmi næst ekki á þessu ári Soumya Swaminathan, aðalvísindamaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO), segir að heimurinn nái ekki hjarðónæmi gegn Covid-19 á þessu ári. Þetta er þrátt fyrir að bólusetningar séu hafnar í um þrjátíu löndum í heiminum, þar á meðal hér á Íslandi. Erlent 12.1.2021 08:48
Þingmaður smitaður eftir árásina á þinghúsið Pramila Jayapal, þingmaður demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur smitast af kórónuveirunni. Jayapal segir frá því á Twitter að hún hafi smitast í kjölfar þess að hafa ásamt öðrum þingmönnum verið flutt í skjól, í lokað herbergi, þegar múgur réðst á bandaríska þinghúsið í síðustu viku. Erlent 12.1.2021 08:48
22 kínverskir námumenn fastir eftir sprengingu Hópur námumanna í Shandong-hérði í norðausturhluta Kína hefur verið fastur í gullnámu í tvo daga eftir sprengingu í námunni. Sprengingin skemmdi fjarskiptakerfi námunnar og hefur ekki tekist að ná sambandi við hópinn. Erlent 12.1.2021 08:30
Fresta aftöku einu konunnar sem er á dauðadeild bandaríska alríkisins James Hanlon, dómari í Indiana í Bandaríkjunum, hefur úrskurðað að fresta beri aftöku Lisu Montgomery, 52 ára gamallar konu sem var dæmd til dauða árið 2007 fyrir að myrða Bobbie Jo Stinnett og ræna ófæddu barni hennar árið 2004. Erlent 12.1.2021 08:18
Flugritinn enn ekki fundinn Enn hefur ekki tekist að finna flugrita farþegaþotunnar sem fórst undan ströndum Indónesíu á laugardag með 62 innanborðs. Erlent 12.1.2021 07:45
Taka skinkusamlokur af bílstjórum eftir Brexit Vegna nýs viðskiptasamnings Evrópusambandsins og Bretlands eftir Brexit er innflutningur einstaklinga á ýmsum vörum óheimill, til dæmis þeim sem innihalda kjöt eða mjólkurvörur. Þessum reglum hafa bílstjórar sem ferðast á milli fengið að finna fyrir. Erlent 11.1.2021 23:47
FBI varar við mótmælum og ofbeldi víða um Bandaríkin Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna hafa áhyggjur af því að hópar vopnaðra manna ætli sér að mótmæla embættistöku Joe Bidens, verðandi forseta Bandaríkjanna, þann 20 janúar. Mótmælin eru sögð eiga að hefjast seinna í þessari viku og standa yfir þar til Biden tekur við embætti og jafnvel lengur. Erlent 11.1.2021 22:30
Óttast „falskt áhyggjuleysi“ vegna bóluefnis Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir þjóðina vera á hættulegum tímapunkti í faraldrinum. Smitum fer ört fjölgandi en bólusetningar hófust í desember síðastliðnum. Johnson óttast að fólk sé kærulausara vegna þessa. Erlent 11.1.2021 18:47