Erlent
200 ár frá dauða Napóleons Í dag eru tvö hundruð ár liðin síðan Napóleon Bónaparte Frakklandskeisari dó. Emmanúel Macron, Frakklandsforseti, minntist keisarans umdeilda við athöfn í dag þegar hann lagði blómkrans að grafhýsi hans í Les Invalides í París. Erlent 5.5.2021 21:10
Biden styður að fella niður einkaleyfi á bóluefnum Ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, hefur ákveðið að styðja viðleitni innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um að fella niður einkaleyfi á bóluefnum gegn Covid-19. Markmiðið er að gera öðrum ríkjum kleift að framleiða meira af bóluefnum og hraða bólusetningum á heimsvísu. Erlent 5.5.2021 20:34
Netanjahú missir umboð til stjórnarmyndunar Yair Lapid, leiðtogi ísraelska miðjuflokksins Yesh Atid, hefur fengið umboð til að mynda ríkisstjórn. Forseti Ísraels veitti honum umboðið í dag eftir að Benjamín Netanjahú forsætisráðherra tókst ekki að mynda ríkisstjórn fjórum vikum eftir þingkosningar í landinu. Erlent 5.5.2021 20:21
Ósætti innan njósnabandalagsins Ósætti er innan „Five Eyes“, stærsta njósnabandalags heims, eftir að Nýja-Sjáland neitaði að taka þátt í gagnrýni á meint mannréttindabrot Kínverja. Erlent 5.5.2021 20:01
Bjóst við sjö börnum en fæddi níu Kona fæddi nýverið níu börn, þó hún hafi bara átt von á sjö. Sónar hafði sýnt fram á að konan væri ólétt af sjö börnum en við fæðingu í gær reyndust þau níu. Fimm stúlkur og fjórir drengir og öllum heilsast víst vel. Erlent 5.5.2021 19:04
Börn niður í tólf ára fá bóluefni Pfizer Kanadísk heilbrigðisyfirvöld hafa tekið ákvörðun um að heimila að börn niður í tólf ára verði bólusett með bóluefni Pfizer gegn covid-19. Kanada er þar með fyrsta landið sem leyfir svo ungum börnum að vera bólusett gegn covid-19. Erlent 5.5.2021 17:45
Trump áfram í banni á Facebook Eftirlitsnefnd Facebook staðfesti í dag bannið sem Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, var settur í á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram. Erlent 5.5.2021 15:00
Andstæðingar sóttvarnaaðgerða unnu stórsigur Veruleg hægrisveifla varð í héraðsþingskosningum í sjálfstjórnarhéraðinu Madrid á Spáni í gær. Lýðflokkur sitjandi forseta héraðsstjórnarinnar sem hefur sett sig á móti hörðum sóttvarnaaðgerðum vann stórsigur og hægriöfgaflokkurinn Vox bætti einnig við sig. Erlent 5.5.2021 13:33
Yfirbyggðir sjúkrasleðar hjá danska hernum á Grænlandi Danski herinn á Grænlandi, Arktisk Kommando, hefur tekið þrjá sjúkrasleða til notkunar á afskekktum svæðum þessarar strjálbýlu nágrannaeyju Íslands. Sleðunum er ætlað að auka öryggi danskra hermanna, þar á meðal Síríus-sérsveitarinnar, en einnig vísindamanna og annarra á ferð um hrjóstrugar slóðir fjarri byggðum. Erlent 5.5.2021 10:53
Fimm látnir eftir sveðjuárás á dagheimili Fimm eru látnir eftir sveðjuárás átján ára karlmanns á dagheimili í suðurhluta Brasilíu í gær. Lögregla segir að þrjú börn, öll yngri en tveggja ára, hafi látist í árásinni, auk tveggja starfsmanna. Erlent 5.5.2021 08:14
Fimm handteknir fyrir að selja „endurunna“ sýnatökupinna Lögregluyfirvöld á Indónesíu hafa handtekið nokkra starfsmenn lyfjafyrirtækis, sem eru grunaðir um að hafa þvegið sýnatökupinna og selt. Lögregla telur svikin hafa átt sér stað frá því í desember. Erlent 5.5.2021 07:46
Ever Given áfram kyrrsett eftir að áfrýjun eiganda var hafnað Dómstóll í Egyptalandi úrskurðaði í gær að gámaflutningaskipið Ever Given, sem þveraði Súesskurðinn og stöðvaði þar með alla skipaumferð í nokkra daga í mars, skuli áfram kyrrsett. Dómstóllinn hafnaði áfrýjun japanskra eigenda skipsins. Erlent 5.5.2021 07:45
Biden vill bólusetja tólf til sautján ára sem allra fyrst Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti í gærkvöldi nýja áætlun sem miðar að því að búið verði að bólusetja 70 prósent allra fullorðinna Bandaríkjamanna fyrir þjóðhátíðardag landsins, fjórða júlí. Erlent 5.5.2021 07:01
Lögmaður Chauvins fer fram á ný réttarhöld Lögmaður Dereks Chauvin, fyrrverandi lögregluþjónn sem var nýverið dæmdur fyrir að myrða George Floyd í Minneapolis, hefur farið fram á að ný réttarhöld um málið fari fram. Tvær vikur eru síðan Chauvin var sakfelldur en Eric Nelson, lögmaðurinn, segir þau hafa verið ósanngjörn. Erlent 4.5.2021 23:33
Mistókst að mynda ríkisstjórn eftir fjórðu kosningarnar á tveimur árum Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, mistókst að mynda ríkisstjórn og fer stjórnarmyndunarumboðið nú líklega til pólitískra andstæðinga hann eftir að frestur Netanjahús rann út á miðnætti í Ísrael. Erlent 4.5.2021 22:37
Trump opnar eigin miðil Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur opnað eigin fréttaveitu og nokkurs konar samfélagsmiðil, fjórum mánuðum eftir að hann var rekinn af Twitter og Facebook. Erlent 4.5.2021 21:22
Bóluefni Sinovac komið í áfangamat hjá EMA Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hefur hafið áfangamat á bóluefni kínverska líftæknifyrirtækisins Sinovac gegn Covid-19. Er fyrirtækið þar með komið einu skrefi nær því geta sótt um markaðsleyfi í Evrópu. Erlent 4.5.2021 15:45
Stærðarmunur á forsetahjónum vekur furðu Mynd af forsetahjónum Bandaríkjanna með Jimmy Carter, fyrrverandi forseta, og Rosalynn eiginkonu hans, hefur vakið mikla furðu og kátínu á samfélagsmiðlum. Á henni virðast Biden-hjónin eins og risar við hlið Carter-hjónanna en allt á það sér þó einfaldari skýringar. Erlent 4.5.2021 15:01
Marine Le Pen sýknuð af ákæru um hatursorðræðu Dómstóll í Frakklandi hefur sýknað Marine Le Pen, formann hægriöfgaflokksins Þjóðfylkingarinnar og fyrrverandi forsetaframbjóðanda af ákæru um hatursorðræðu. Erlent 4.5.2021 14:34
Norsk kona dæmd fyrir að aðild að ISIS Dómstóll í Noregi dæmdi í dag þrítuga, norska konu í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir aðild sína að hryðjuverkasamtökunum ISIS. Taldi dómari að konan hafi breytt „með vitund og vilja“. Erlent 4.5.2021 13:58
Sautján látnir eftir mótmæli síðustu daga Sautján manns hið minnsta eru látnir eftir mótmæli síðustu fimm daga á götum kólumbísku höfuðborginnar Bogota og í öðrum stórborgum landsins. Mótmælin hafa beinst að fyrirhuguðum breytingum stjórnvalda á skattalöggjöf landsins. Erlent 4.5.2021 13:13
Belgískur bóndi færði landamærin að Frakklandi Landamæri Belgíu og Frakklands sem voru mörkuð á fyrri hluta 19. aldar voru færð um rúmlega tvo metra nýlega. Belgískur bóndi sem var þreyttur á að steinn sem varðaði landamærin flæktist fyrir dráttarvélinni hans færði hann og stækkaði þannig heimaland sitt örlítið á kostnað Frakklands. Erlent 4.5.2021 12:52
Hægriöfgaflokkur gæti komist í oddastöðu í Madrid Útlit er fyrir að hægriöfgaflokkurinn Vox verði í oddastöðu eftir héraðsþingskosningar í Madrid á Spáni í dag. Flestar kannanir benda til þess að Lýðflokkur núverandi forseta héraðsstjórnarinnar sem hefur amast gegn sóttvarnaraðgerðum landsstjórnarinnar fái flest atkvæði. Erlent 4.5.2021 11:13
Pattstaða í stjórnarmyndunarviðræðum Netanjahús Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur ekki tekist að mynda ríkisstjórn en hann hafði frest þar til á miðnætti í gærkvöldi. Þetta gæti þýtt að Likud-flokkur forsætisráðherrans verði í stjórnarandstöðu í fyrsta sinn í tólf ár. Erlent 4.5.2021 09:38
Yfir 20 milljónir greinst og kallað eftir útgöngubanni á landsvísu Fleiri en 20 milljónir manna hafa greinst með Covid-19 á Indlandi. Alls greindust 357.229 smit síðasta sólarhring og 3.449 létust. Hávær köll heyrast nú um útgöngubann á landsvísu. Erlent 4.5.2021 08:57
Nýju gólfi ætlað að færa ferðamönnum sjónarhorn skylmingaþrælanna Miklar framkvæmdir eru nú fyrirhugaðar við Colosseum í ítölsku höfuðborginni Róm. Eftir tvö ár er ætlunin að ferðamenn eigi möguleika á því að sjá hringleikahúsið frá sama stað og skylmingaþrælarnir börðust forðum daga. Erlent 4.5.2021 08:15
Ber að greiða manni sem hann hélt í þrælkun tvöfaldar bætur Áfrýjunardómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu að tvöfalda beri bætur sem manni voru dæmdar, eftir að hann var látinn vinna hundrað klukkustundir á viku í mörg ár án þess að fá greidd laun. Erlent 4.5.2021 07:57
Hróarskeldu og fleiri dönskum tónlistarhátíðum aflýst Ekkert verður af Hróarskeldu-hátíðinni í Danmörku í sumar. Forsvarsmenn hátíðarinnar hafa ákveðið að aflýsa hátíðinni vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Engin hátíð var heldur síðasta sumar. Erlent 4.5.2021 07:43
Fimmtán létust þegar lestarbrú hrundi í Mexíkóborg Að minnsta kosti fimmtán létust og tugir slösuðust þegar lestarbrú í Mexíkóborg hrundi í þann mund sem lest ók á henni. Erlent 4.5.2021 06:42
Hækkar hámark flóttamanna eftir gagnrýni Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að hækka hámark á fjölda flóttamanna sem Bandaríkin munu taka við á árinu. Það er í kjölfar þess að ríkisstjórn hans tilkynnti að hámarkið yrði það sama og það var í forsetatíð Donalds Trump, forvera hans. Erlent 3.5.2021 23:56