Erlent
Fjölskyldan afskrifar vonir um að hollenski sjómaðurinn finnist Fjölskylda hollenska karlmannsins sem sigldi frá Vestmannaeyjum áleiðis til Grænlands þann 8. ágúst síðastliðinn telur ólíklegt að hægt verði að upplýsa um afdrif hans. Allri leit að manninum hefur verið hætt. Erlent 22.9.2021 15:36
Enn einn slagurinn um skuldaþak með yfirvofandi hættu á vanskilum Ekkert samkomulag hefur enn náðst á Bandaríkjaþingi um fjárlög eða nauðsynlega hækkun skuldaþaks ríkissjóðs þegar innan við tvær vikur eru þar til núverandi fjárlagaári lýkur. Bandaríski ríkissjóðurinn gæti jafnframt endað í vanskilum í næsta mánuði sem er talið geta haft afleiðingar sem jafnast á við fjármálahrunið árið 2008. Erlent 22.9.2021 15:02
Tveir handteknir til viðbótar vegna dauða norðurírsku blaðakonunnar Lögreglan á Norður-Írland handtók tvo karlmenn á þrítugsaldri í dag á grundvelli hryðjuverkalaga í tengslum við drápið á Lyru McKee í Londonderry árið 2019. Fjórir aðrir voru handteknir í síðustu viku. Erlent 22.9.2021 13:42
Skotið á aðstoðarmann Úkraínuforseta Ökumaður bifreiðar nánasta ráðgjafa forseta Úkraínu særðist þegar skotið var á bílinn í morgun. Ráðgjafinn slapp ómeiddur en úkraínskir embættismenn lýsa árásinni sem morðtilræði. Erlent 22.9.2021 11:21
Kjósa um hjónabönd og ættleiðingar samkynhneigðra eftir hatramma kosningabaráttu Kjósendur í Sviss greiða atkvæði um hvort leyfa eigi samkynhneigðum pörum að gifta sig og ættleiða börn á sunnudag. Skoðanakannanir benda til þess að stuðningsmenn þess hafi sigur en dregið hefur saman á milli fylkinga í harðri kosningabaráttu síðustu vikna. Erlent 22.9.2021 10:46
Glóandi hraunið á La Palma sást úr geimnum Appelsínugulur bjarmi hraunstrókanna frá eldgosinu á Kanaríeyjunni La Palma sást greinilega út um glugga Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á braut um jörðu í nótt. Franskur geimfari um borð náði mynd af sjónarspilinu. Erlent 22.9.2021 10:21
Trump stefnir frænku sinni og New York Times Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur stefnt bróðurdóttur sinni og New York Times vegna umfjöllunar blaðsins um hvernig Trump-fjölskyldan kom sér undan erfðaskatti. Umfjöllunin byggðist á gögnum sem frænka þáverandi forsetans lét blaðamenn fá. Erlent 22.9.2021 09:07
Staðfesta að líkið sé af ungu konunni og að henni hafi verið ráðinn bani Lík sem fannst við þjóðgarð í Wyoming í Bandaríkjunum er af ungri konu sem hvarf þegar hún var á ferðalagi um landið með unnusta sínum í sumar. Dánardómstjóri staðfestir þetta og segir að henni hafi verið ráðinn bani. Erlent 22.9.2021 08:25
Meirihluti barna í 91 ríki fær ekki nauðsynlega næringu Loftslagsbreytingar, átök og kórónuveirufaraldurinn eru að valda því að fjöldi barna í heiminum býr við næringarskort. Samkvæmt Unicef er ástandið raunar svo slæmt að flest börn í 91 ríki fá ekki öll þau næringarefni sem þau þurfa á að halda. Erlent 22.9.2021 07:59
Byggingar Melbourne skemmdust af völdum skjálfta Öflugur jarðskjálfti sem mældist 5,9 stig reið yfir suðausturhluta Ástralíu í gærkvöldi og skemmdust byggingar í stórborginni Melbourne af hans völdum. Erlent 22.9.2021 07:20
Hætta fjármögnun kolaorkuvera erlendis Xi Jinping, forseti Kína, tilkynnti í ræðu sinni á allsherjaþingi Sameinuðu þjóðanna í dag að Kínverjar væru hættir að fjármagna byggingu nýrra kolaorkuvera á erlendri grund. Erlent 21.9.2021 23:27
Pútín með nægan stuðning í Dúmunni til að breyta stjórnarskrá Sameinað Rússland, flokkur Pútíns Rússlandsforseta, hlaut 324 af 450 þingsætum í Dúmunni í nýafstöðnum kosningum þar í landi. Þetta var staðfest af kjörstjórn í dag og er 19 sætum minna en flokkurinn fékk í síðustu kosningum. Engu að síður tryggja þessi úrslit Pútín sterka stöðu. Erlent 21.9.2021 19:09
Náðu sátt í máli gegn konu erindreka sem varð unglingi að bana Fjölskylda Harry Dunn sem lét lífið þegar eiginkona bandarísks erindreka ók hann niður árið 2019 hefur náð sátt í einkamáli sínu gegn konunni vestanhafs. Málið gæti enn endað á borði dómstóla sem sakamál. Erlent 21.9.2021 15:35
Biden lagði áherslu á samvinnu í skugga deilna við bandamenn Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði þjóðir heims þurfa að vinna saman sem aldrei fyrr í fyrsta ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Kastast hefur í kekki á milli Bandaríkjastjórnar og hefðbundinna bandalagsríkja vegna brotthvarfsins frá Afganistan og umdeilds kafbátasamnings við Ástrali. Erlent 21.9.2021 14:52
Bullsjóðandi sundlaugar og húsþök sem gægjast út úr hrauninu Um sex þúsund íbúar af þeim áttatíu þúsund sem búa á eyjunni La Palma þar sem eldgos hófst á sunnudaginn hafa þurft að flýja heimili sín vegna gossins. Myndir og myndbönd sýna hvernig þykkur hraunstraumurinn hefur mulið allt það sem fyrir verður undir sig. Erlent 21.9.2021 14:30
Þrjú fórnarlambanna í Perm voru innan við tvítugt Íbúar í borginni Perm í Rússlandi eru í áfalli eftir að nemandi við ríkisháskólann þar skaut sex manns til bana í gær. Þrjú þeirra látnu voru innan við tvítug að aldri. Erlent 21.9.2021 14:22
Skotinn til bana eftir að hafa krafið viðskiptavin um að bera grímu Tvítugur starfsmaður bensínstöðvar í þýska bænum Idar-Oberstein var skotinn til bana eftir að hafa krafið viðskiptavin bensínstöðvarinnar um að bera grímu þar inni síðasta laugardagskvöld. Morðinginn hefur verið handtekinn og segist við lögreglu hafa verið ringlaður af álagi vegna takmarkana sökum heimsfaraldursins. Erlent 21.9.2021 13:44
Kóalabjörnum snarfækkar vegna þurrka, elda og ágangs manna Um það bil þriðjungsfækkun hefur orðið í kóalabjarnastofninum í Ástralíu undanfarin þrjú ár. Þurrkar, gróðureldar og ágangur manna hefur gengið nærri björnunum sem eru eitt þekktasta tákn landsins. Erlent 21.9.2021 11:39
Þriðji maðurinn ákærður vegna tilræðisins gegn Skrípal Bresk yfirvöld hafa gef út ákæru á hendur rússneskum karlmanni í tengslum við taugaeiturstilræðið gegn rússneska fyrrverandi njósnaranum Sergei Skrípal árið 2018. Maðurinn er talinn hafa stýrt aðgerðinni og að hann tilheyri rússnesku herleyniþjónustunni. Erlent 21.9.2021 10:52
Húsleit á heimili kærasta ungu konunnar sem hvarf Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar gerðu húsleit á heimili unnusta Gabrielle Petito sem hvarf þegar þau voru saman á ferðalagi um Bandaríkin í sumar. Til stendur að kryfja lík sem talið er vera af Petito í dag. Erlent 21.9.2021 09:54
Rússnesk stjórnvöld talin hafa myrt Litvinenko Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu í morgun að rússnesk stjórnvöld hefðu staðið að morðinu á Alexander Litvinenko, rússneskum fyrrverandi leyniþjónustumanni, árið 2006. Eitrað var fyrir Litvinenko með geislavirku efni. Erlent 21.9.2021 08:59
Mistök í breska varnarmálaráðuneytinu setja afganska túlka í hættu Breska varnarmálaráðuneytið hefur beðist afsökunar á mistökum sem urðu til þess að tölvupóstföng fleiri en 250 afganskra túlka voru gerð opinber og líf þeirra þannig sett í hættu. Erlent 21.9.2021 08:40
Maðurinn sem tók upp árásina á Rodney King er látinn George Holliday, pípulagningamaðurinn frá Los Angeles sem tók upp á myndband árás fjögurra bandarískra lögreglumanna á Rodney King árið 1991, er látinn. Erlent 21.9.2021 07:41
Trudeau fagnar sigri og heldur forsætisráðherrastólnum Kosningum er lokið í Kanada og virðist sem Justin Trudeau hafi tryggt sér áframhaldandi veru á forsætisráðherrastóli, þriðja kjörtímabilið í röð. Erlent 21.9.2021 07:08
Covid fer fram úr spænsku veikinni í Bandaríkjunum Minnst 675 þúsund Bandaríkjamenn hafa dáið vegna Covid-19 frá því faraldur kórónuveirunnar hófst. Það er sambærilegur fjöldi og talið er hafi dáið vegna spænsku veikinnar á árunum 1918 og 1919. Erlent 21.9.2021 06:30
Fyrsti læknirinn ákærður vegna þungunarrofs í Texas Búið er að kæra fyrsta lækninn fyrir að framkvæma þungunarrof í Texas eftir að ný og ströng lög tóku gildi. Alan Braid, læknirinn sem um ræðir, sagði opinberlega frá því í síðustu viku að hann hefði framkvæmt aðgerð sem væri gegn lögunum. Erlent 20.9.2021 22:45
Bóluefni Pfizer virki fyrir fimm til ellefu ára börn Lyfjaframleiðandinn Pfizer tilkynnti í dag að rannsóknir fyrirtækisins hafi sýnt fram á að bóluefni þess veiti börnum á aldrinum fimm til ellefu ára vörn gegn kórónuveirunni. Erlent 20.9.2021 21:35
Nýtt gosop opnaðist nærri þorpi Nýtt gosop hefur opnast í eldfjallinu Rajada nálægt Cabeza de Vaca í Cumbre Vieja þjóðgarðinum á suðurhluta La Palma í Kanaríeyjum. Nýja opið opnaðist nærri bænum Tacande í El Paso og hefur það leitt til frekari rýmingar. Erlent 20.9.2021 21:23
Vísa hundruðum Haítíbúa úr landi þrátt fyrir ófremdarástand Bandaríkjastjórn flaug á fjórða hundrað Haítíbúum úr landi í gær og kom í veg fyrir að fjöldi annarra kæmist yfir landamærin frá Mexíkó. TIl stendur að senda enn fleiri Haítíbúa til síns heima þrátt fyrir hamfarir og pólitískan óstöðugleika þar. Erlent 20.9.2021 15:54
Bandaríkin slaka á ferðabanni til landsins Yfirvöld í Bandaríkjunum munu frá og með nóvember næstkomandi slaka á ferðabanni til landsins sem verið hefur í gildi frá því í mars á síðasta ári. Fullbólusettir íslenskir ferðamenn munu því að öllum líkindum geta ferðast til Bandaríkjanna á ný eftir langt hlé. Erlent 20.9.2021 14:55