Erlent
Cheney vikið úr embætti: Ætlar áfram að beita sér gegn Trump Liz Cheney var í dag vikið úr embætti sínu sem þriðji æðsti Repúblikaninn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Haldin var atkvæðagreiðsla hjá þingflokknum en úrslitin voru svo gott sem ljós löngu fyrir það, þar sem aðrir leiðtogar flokksins höfðu snúist gegn henni. Erlent 12.5.2021 14:44
Talibanar ná tökum á mikilvægu svæði nærri Kabúl Vígamenn Talibana hafa ná stjórn á Nerkh-héraði sem gæti nýst þeim sem gætt inn í Kabúl, höfuðborg landsins. Sveitir Talibana eru nú einungis um fjörutíu kílómetra frá höfuðborginni en héraðið hefur áður verið notað til að gera mannskæðar árásir á Kabúl. Erlent 12.5.2021 14:01
Óttast að nýtt stríð brjótist út á Gasa Embættismenn Sameinuðu þjóðanna óttast að nýtt stríð muni brjótast út á Gasa-ströndinni. Rúmlega þúsund eldflaugum hefur verið skotið frá Gasa að Ísrael og her Ísraels hefur gert hundruð loftárása á Gasa, sem er eitt þéttbýlasta svæði heimsins, og hafa minnst tvo fjölbýlishús verið jöfnuð við jörðu. Erlent 12.5.2021 12:10
Ahmadinejad aftur í forsetaframboð Mahmoud Ahmadinejad, fyrrverandi forseti Írans, hefur skráð sig í framboð að nýju fyrir forsetakosningar sem fara fram í júní. Í forsetatíð sinni var Ahmadinejad þekktur sem harðlínumaður en hefur undanfarið reynt að hasla sér völl sem miðjumaður og verið gagnrýninn á klerkastjórnina. Erlent 12.5.2021 11:18
Vilja nota gömul brot Arbery í vörn meintra morðingja hans Lögmenn feðganna Travis (35) og Gregory McMichael (65) hafa farið fram á að mega nota sakaskrá Ahmaud Arbery, 25 ára manns sem þeir eru sakaðir um að hafa myrt, í réttarhöldunum gegn þeim. Feðgarnir, auk William Bryan, eru hvítir og sátu fyrir Arbery, sem var svartur, þegar hann var úti að skokka og skutu hann til bana. Erlent 12.5.2021 11:00
Um þriðjungur smitaðra á Seychelleseyjum fullbólusettur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin vinnur nú að því að fara yfir gögn frá Seychelleseyjum, þar sem ríflega þriðjungur þeirra sem hefur greinst með Covid-19 síðustu vikur hefur verið fullbólusettur. Erlent 12.5.2021 10:58
Minnast þess að átján ár eru liðin frá fæðingu Madeleine McCann Foreldrar hinnar bresku Madeleine McCann minnast þess í dag að átján eru liðin frá fæðingu hennar og segjast þau enn halda í „smá“ von um að hún muni finnast á lífi. Madeleine hvarf úr hótelíbúð fjölskyldunnar í Praia da Luz í Portúgal í maí 2007. Erlent 12.5.2021 10:22
Gjaldþrotakröfu NRA hafnað: Tilgangurinn sagður að komast undan málaferlum Beiðni samtaka skotvopnaeigenda í Bandaríkjunum, National Rifle Association, um gjaldþrot var hafnað af alríkisdómara í gær. Sá sagði beiðnina ekki hafa verið lagða fram í góðri trú, heldur væri markmiðið að komast undan lögsókn ríkissaksóknara New York. Erlent 12.5.2021 10:12
Kennarar og gestafyrirlesarar munu geta sótt bætur ef málfrelsi þeirra er skert Bresk stjórnvöld hyggjast kynna til sögunnar ný lög sem munu gera kennurum, nemendum og gestafyrirlesurum kleift að sækja bætur fyrir dómstólum ef háskólar brjóta gegn ákveðnum skilmálum um að þeir virði málfrelsi. Erlent 12.5.2021 10:07
Komur barna á sjúkrahús vegna gleyptra segla fimmfaldast Á síðustu fimm árum hefur þeim tilvikum fjölgað fimmfalt í Lundúnum þar sem leitað er með börn á sjúkrahús eftir að þau hafa gleypt segla. Þá hefur komum á sjúkrahús vegna aðskotahluta í meltingarfærum fjölgað almennt. Erlent 12.5.2021 08:16
Ísraelar lýsa yfir neyðarástandi í borginni Lod Stjórnvöld í Ísrael hafa lýst yfir neyðarástandi í borginni Lod, þar sem ísraelskir arabar hafa mótmælt framferði Ísraelshers á Gasasvæðinu síðustu daga. Kveikt var í bílum í borginni og tólf særðust í Lod og talar borgarstjórinn um að ástandið í borginni líkist borgarastríði. Erlent 12.5.2021 07:53
Trans konur dæmdar í fimm ára fangelsi fyrir „tilraun til samkynhneigðar“ Dómstóll í Kamerún hefur dæmt tvær trans konur í fimm ára fangelsi fyrir „tilraun til samkynhneigðar“ og önnur brot. Konurnar voru upphaflega handteknar vegna klæðaburðar á veitingastað. Erlent 12.5.2021 07:00
Sjö lífstíðardómar fyrir að myrða sjö skjólstæðinga Fyrrverandi sjúkraliði í Vestur-Virginíuríki í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur í sjöfalt lífstíðarfangelsi fyrir að myrða aldraða skjólstæðinga sína á spítala fyrir bandaríska uppgjafarhermenn. Erlent 11.5.2021 23:35
Gerðu loftárás á þrettán hæða blokk á Gasa Ísraelsher gerði í dag fjölda loftárása á Gasa-svæðið og felldi meðal annars þrettán hæða íbúðablokk. Búið var að rýma húsið, sem féll til grunna. Enginn féll í þeirri árás en minnst þrjátíu hafa látið lífið í átökum ríkjanna tveggja. Langstærstur meirihluti þeirra er Palestínumenn. Erlent 11.5.2021 23:02
Tugir látnir eftir loftárásir Ísraela Tugir hafa látist í átökum Ísraela og Palestínumanna síðustu daga. Ísraelar segjast hafa gert 150 loftárásir á Gasasvæðið en Hamas-samtökin hafa skotið um 300 eldflaugum síðasta sólarhringinn. Erlent 11.5.2021 20:01
Bretar felldu saklaust fólk í Belfast Breskir hermenn drápu fólk sem var blásaklaust í aðgerðum sínum í Belfast fyrir fimmtíu árum. Dánardómstjóri á Norður-Írlandi komst að þeirri niðurstöðu að hermenn hefðu valdi dauða að minnsta kosti níu af tíu manns sem féllu. Breska ríkisstjórnin ætlar að veita fyrrverandi hermönnum á Norður-Írlandi aukna friðhelgi fyrir saksókn. Erlent 11.5.2021 17:04
Enn skolar líkum upp á árbakka Ganges Tugi líka til viðbótar skolaði upp á árbakka Ganges árinnar í norðurhluta Indlands í dag. Meira en fimmtíu líkum skolað á land í Gahmar síðustu daga og talið er að um fórnarlömb kórónuveirunnar sé að ræða. Erlent 11.5.2021 16:47
Kona ritstýrir Washington Post í fyrsta skipti Sally Buzbee, varaforseti og aðalritstjóri AP-fréttastofunnar, hefur verið ráðin nýr yfirritstjóri bandaríska dagblaðsins Washington Post. Hún verður fyrsta konan sem ritstýrir blaðinu í hátt í 150 ára sögu þess. Erlent 11.5.2021 16:23
Áttatíu herþotur yfir Gasa Her Ísraels tilkynnti skömmu fyrir fjögur í dag að áttatíu herþotur yrðu notaðar til að gera árásir á um 150 skotmörk á Gasa-ströndinni, einu þéttbýlasta svæði heims. Markmiðið væri að gera útaf við getu Hamas-Samtakanna til að skjóta eldflaugum á Ísrael. Erlent 11.5.2021 16:20
Cheney líklega bolað úr embætti á morgun Þingkonan Liz Cheney, þriðji æðsti Repúblikaninn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, stendur frammi fyrir atkvæðagreiðslu um að víkja henni úr þeirri stöðu hennar. Leiðtogar flokksins eru ósáttir við að hún neiti að dreifa „stóru lyginni“ svokölluðu um að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað Donald Trump, fyrrverandi forseta, sigur í kosningunum í fyrra. Erlent 11.5.2021 15:49
Drengur í ruslagámi látinn eftir tæmingu Þrettán ára drengur kramdist til bana í öskubíl í Ástralíu eftir að hafa sofnað ásamt tveimur félögum sínum í ruslagámi. Erlent 11.5.2021 14:51
Mældu ýtrustu hyldýpi heimshafanna Dýpstu glufur á hafsbotninum í heimshöfunum fimm voru kortlagðar á nákvæmari hátt en áður hefur verið gert í leiðangri bandarísks ævintýramanns undanfarin ár. Dýptarmælingarnar skáru loks úr um hverjir dýpstu staðirnir í Indlandshafi og Suður-Íshafinu eru í raun og veru. Erlent 11.5.2021 14:24
Hundrað dagar frá valdaráninu í Mjanmar Hundrað dagar eru liðnir frá því her Mjanmar tók þar völd. Það var gert á grundvelli grunsamlegra ásakana um kosningasvindl og var Aung San Suu Kyi, leiðtoga ríkisins komið frá völdum. Síðan þá hefur mikil óreiða og hundruð almennra borgara liggja í valnum. Erlent 11.5.2021 14:02
Gerir varnarmálaráðherrann að forsætisráðherra til bráðabirgða Rumen Radev, forseti Búlgaríu, hyggst skipa öryggis- og varnarmálaráðherra landsins, hinn 61 árs Stefan Yanev, forsætisráðráðherra til bráðabirgða, eða fram að þingkosningum sem fram fara í landinu í júlí. Erlent 11.5.2021 13:38
Hvetja konur til að eignast fleiri börn, nema í Xinjiang Verulega hefur dregið úr fólksfjölgun í Kína og hefur 1,4 milljarða manna samfélagið þar verið að eldast töluvert. Víðsvegar um Kína er verið að hvetja konur til að eignast fleiri börn, nema í Xinjiang-héraði. Þar er þrýst á konur til að eignast færri börn og þær jafnvel þvingaðar í ófrjósemisaðgerðir. Erlent 11.5.2021 11:26
Níu börn meðal hinna látnu á Gasa Her Ísraels hefur haldið loftárásum sínum á Gasa áfram í morgun en eldflaugum hefur sömuleiðis áfram verið skotið þaðan. Embættismenn á Gasa segja minnst 24 Palestínumenn, þar af níu börn, hafa látist í árásum Ísraels og rúmlega hundrað hafa særst. Erlent 11.5.2021 09:23
Enn greinast hundruð þúsunda á Indlandi: Indverska afbrigðið á gátlista WHO Síðasta sólahring greindust 329.942 með Covid-19 á Indlandi. Þetta er annar dagurinn í röð þar sem fjöldi smita er undir 400 þúsund en þar á undan var hann yfir 400 þúsund fjóra daga í röð. Erlent 11.5.2021 08:59
Sjö börn í hópi látinna í skotárás í rússneskum skóla Átta manns - sjö nemendur og einn kennari - eru látnir eftir skotárás sem gerð var í skóla í borginni Kasan í Tatarstan í Rússlandi í morgun. Þá er 21 sagður hafa særst í árásinni. Erlent 11.5.2021 07:53
Grunaður morðingi lagði á flótta með tígrisdýr í bílnum Lögregla í Houston í Texas hefur handtekið 26 ára mann sem grunaður er um morð eftir að hann lagðist á flótta með tígrisdýr í bílnum sínum. Tígrisdýrsins er enn leitað. Erlent 11.5.2021 07:33
Kínverjum ekki fjölgað jafn hægt í marga áratugi Nýtt manntal í Kína sýnir að Kínverjum hefur ekki fjölgað jafn hægt síðan á sjöunda áratugi síðustu aldar, þegar Kínverjar voru að takast á við afleiðingar hungursneyðar. Erlent 11.5.2021 07:04
Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Innlent