Erlent

Tyrkir breyta al­þjóð­legu nafni lands síns

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Talsmaður Tyrkja, Ayse Inanc, með hið nýja nafnspjald á fundi Sameinuðu þjóðanna.
Talsmaður Tyrkja, Ayse Inanc, með hið nýja nafnspjald á fundi Sameinuðu þjóðanna. Getty

Yfirvöld í Tyrklandi hafa sent Sameinuðu Þjóðunum beiðni þess efnis að til Tyrklands skuli framvegis vísað sem Türkiye, að því er fram kemur í ríkisfjölmiðlum í Tyrklandi.

Breytingin er sögð liður í endurmarkaðssetningu landsins sem vill aðskilja sig frá fuglinum sem ber sama nafn á ensku, kalkúninum.

Talsmaður Sameinuðu þjóðanna segir breytingarnar taka gildi frá og með viðtöku beiðninnar.

Í desember 2021, fyrirskipaði Erdoğan, forseti landsins, að notkun Türkiye yrði skyldubundin. Þannig eru útfluttar vörur landsins merktar “Made in Türkiye” í stað “Made in Turkey“.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem land endurmarkaðssetur sig með þessum hætti en árið 2016 lagði Tékkland fram beiðni um nafnabreytingu þar sem lagt var til að nafnið Czechia skyldi notað í stað Czech Republic. Það nafn hefur ekki fest sig almennilega í sessi og ekki víst að hið nýja tyrkneska nafn Türkiye muni gera það heldur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×