Erlent
Skortur á verkamönnum í Póllandi Byggingaframkvæmdir í Póllandi eru að stöðvast vegna þess að pólskir byggingaverkamenn eru annaðhvort að vinna við Kárahnjúka eða einhverjar aðrar framkvæmdir á Vesturlöndum. Erlent 21.9.2005 00:01
Trúði ekki að Ríta væri á leiðinni Ingólfur Bjarni Sigfússon er í Bandaríkjunum þar sem hann fylgist með framvindunni í tengslum við fellibylinn Rítu.. Hann segir að í gærkvöld hafi fólk ekki viljað trúa því að þetta gæti gerst aftur. Það hafi talið að um æsifréttamennsku að ræða og að fréttamenn væru að óska eftir öðrum hamförum. Erlent 21.9.2005 00:01
Yfir 1000 látnir vegna Katrínar Tala látinna eftir yfirreið fellibylsins Katrínar fyrir um þremur vikum er nú komin yfir 1000. Yfirvöld í Louisiana hafa staðfest að 799 hafi látist í ríkinu af völdum fellibylsins og þá eru 219 sagðir hafa látist í Mississippi-ríki og 19 í Flórída, Alabama, Georgíu og Tennessee. Samtals eru þetta 1037 manns og er óttast að talan kunni enn að hækka. Erlent 21.9.2005 00:01
Sigraði í friðarfegurðarsamkeppni Fjórtán ára gömul ísraelsk stúlka, Shira Fadida, sigraði í sérstakri friðarfegurðarsamkeppni sem haldin var í bænum Gilo skammt frá Jerúsalem í gær. Tuttugu stúlkur, bæði frá Ísrael og Palestínu, tóku þátt í samkeppninni, en þetta er annað árið í röð sem slík fegurðarsamkeppni er haldin. Erlent 21.9.2005 00:01
Brottflutningi Ísraela lokið Síðustu ísraelsku hermennirnir yfirgáfu tvær landnemabyggðir á Vesturbakkanum í gær. Þar með lýkur brottfluttningi Ísraelshers sem hófst á Gasa í ágúst. Eins og á Gasa söfnuðust þúsundir Palestínumanna saman á Vesturbakkanum í gær og fögnuðu ógurlega. Landnemabyggðirnar tvær verða þó áfram undir stjórn Ísraels og þarlendir hermenn halda áfram að vakta svæðið í kring. Erlent 21.9.2005 00:01
Londonárás: Æfðu aðgerðirnar Mennirnir sem frömdu hryðjuverkin í London sjöunda júlí æfðu aðgerðirnar í neðanjarðarlestum rétt rúmri viku fyrir árásirnar. Breska lögreglan telur mögulegt að þær upplýsingar varpi ljósi á hver var höfuðpaurinn á bak við árásirnar sem kostuðu fimmtíu og tvo lífið. Erlent 20.9.2005 00:01
Sex látnir eftir flóð í Eþíópíu Sex létust þegar á flæddi yfir bakka sína í austurhuta Eþíópíu fyrir helgi, að því er Reuters-fréttastofan greindi frá síðdegis. Um 4000 manns neyddust til að yfirgefa heimili sín í kjölfar flóðsins. Erlent 20.9.2005 00:01
Fallast ekki á kröfur Norður-Kóreu Norður Kóreumenn ætla ekki að láta af kjarnorkuáætlun sinni, nema þeim verði heitið kjarnaofnum til framleiðslu raforku. Þetta stingur í stúf við samkomulag frá því í gær, þar sem Norður Kóreumenn hétu því að hætta þróun kjarnavopna, gegn efnahagslegri aðstoð og stjórnmálasambandi. Erlent 20.9.2005 00:01
Simon Wiesenthal syrgður Stjórnmálaleiðtogar, mannréttindafrömuðir og talsmenn samtaka gyðinga um allan heim lýstu í gær sorg sinni yfir fráfalli Simons Wiesenthal og báru lof á hugrekki hans og staðfestu við að hafa uppi á stríðsglæpamönnum nasista og draga þá fyrir dóm. Nasistaveiðarinn heimskunni andaðist á heimili sínu í Vínarborg í fyrrinótt, 96 ára að aldri. Erlent 20.9.2005 00:01
Olíuverð rauk upp Heimsmarkaðsverð á hráolíutunnu rauk upp í gær vegna ótta spákaupmanna við að tíðindi frá fundi OPEC-ríkjanna síðar í dag verði óhliðholl olíumarkaðnum. Verðið hækkaði um heil sjö prósent í gær, úr 63 Bandaríkjadölum upp í rúma 67 Bandaríkjadali, og er þetta mesta hækkun á einum degi síðan í desember 2001. Erlent 20.9.2005 00:01
Sprenging á hóteli í Ísrael Sprenging varð á hóteli í borginni Bat Yam í Ísrael fyrir stundu. Ekki er vitað á þessari stundu hvort manntjón hafi orðið í sprengingunni. Samkvæmt fyrstu upplýsingum frá sjúkraliðsmönnum á vettvangi logar eldur á níundu hæð hótelsins. Erlent 20.9.2005 00:01
Krefjast kjarnaofna að gjöf Ráðamenn í Norður-Kóreu sögðu í gær að þeir myndu ekki hætta við kjarnorkuáætlun sína nema fá léttvatns-kjarnaofna til friðsamlegrar raforkuframleiðslu. Þessar nýju kröfur virtust stefna í uppnám samkomulagi sem náðist í Peking á mánudag um að Norður-Kóreumenn hyrfu frá kjarnavopnaáformum sínum í skiptum fyrir efnahagsaðstoð og öryggistryggingar. Erlent 20.9.2005 00:01
Íbúar Tal Afar snúa heim Íbúar Tal Afar í Írak snúa nú heim til sín hver af öðrum eftir að hafa flúið vegna skotbardaga undanfarnar tvær vikur. Bandarískar og írakskar hersveitir hófu áhlaup á vígi uppreisnarmanna í borginni fyrir tíu dögum og síðan þá hefur byssugelt heyrst frá morgni til kvölds og skriðdrekar keyrt um í miðbænum. Erlent 20.9.2005 00:01
Höfnuðu ráðherraefni Júsjenkó Úkraínskir þingmenn höfnuðu í dag manninum sem Viktor Júsjenkó, forseti Úkraínu, vill fá sem næsta forsætisráðherra landsins. Niðurstaða þingsins þykir mikið áfall fyrir Júsjenkó. Erlent 20.9.2005 00:01
Nasistaveiðarinn mikli fallinn frá Ógnvaldur nasista númer eitt er fallinn í valinn. Símon Wiesenthal lést í nótt, 96 ára að aldri. Wiesenthal helgaði líf sitt því að koma lögum yfir stríðsglæpamenn úr seinni heimsstyrjöldinni. Erlent 20.9.2005 00:01
Könnuðu aðstæður 2 vikum áður Breska lögreglan birti í morgun myndir úr eftirlitsmyndavélum sem sýna þrjá þeirra sem grunaðir eru um hryðjuverkaárásirnar mannskæðu í Lundúnum sjöunda júlí vera að kanna aðstæður í neðanjarðarlestakerfi borgarinnar. Erlent 20.9.2005 00:01
Sharon notaði ólöglegar aðferðir Ísraelsk sjónvarpsstöð greindi frá því í gærkvöldi að Ariel Sharon, forsætisráðherra landsins, hefði notað ólöglegar aðferðir við að fjármagna kosningabaráttu sína í nýlegri heimsókn til New York. Á boðsmiða á samkomuna með Sharon sagði að gert væri ráð fyrir að þeir sem á hana kæmu gæfu minnst tíu þúsund dollara í kosningasjóði Sharons. Erlent 20.9.2005 00:01
Schröder til viðræðna án skilyrða Gerhard Schröder, fráfarandi kanslari, sagði í gær að jafnaðarmenn gengju til þreifingarviðræðna við hina flokkana "án skilyrða". Þingflokkur kristilegra demókrata á þýska þinginu lýsti afgerandi stuðningi við flokksformanninn Angelu Merkel í atkvæðagreiðslu í gær. Erlent 20.9.2005 00:01
Flúðu heimili sín Meira en áttatíu þúsund manns yfirgáfu heimili sín á Flórída og í nágrenni í gær, vegna hitabeltisstormsins Rítu, sem óttast er að verði að fellibyl innan skamms. Þá hafa hundrað og þrjátíu þúsund manns til viðbótar verið hvattir til að vera á varðbergi. Erlent 20.9.2005 00:01
Tyrkir hefja viðræður við ESB Tyrkir hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið þriðja október næstkomandi. Þetta varð ljóst eftir að Tassos Papadopoulos, forseti Kýpur, lýsti því að ekkert hinna tuttugu og fimm aðildarríkja sambandsins legðist á móti aðildarviðræðum við Tyrki. Erlent 20.9.2005 00:01
Fyrsta andlitsígræðsla sögunnar Læknar í Bandaríkjunum undirbúa nú fyrstu andlitsígræðslu sögunnar. Hópur lækna í Cleveland mun á næstunni taka viðtöl við tólf einstaklinga, sem eru afmyndaðir í andliti, með það fyrir augum að velja einn til að græða á nýtt andlit. Erlent 20.9.2005 00:01
30 drepnir í Darfúr Uppreisnarmenn á bandi ríkisstjórnar Súdans hafa undanfarna daga drepið þrjátíu manns í Darfúr-héraði. Átök hafa staðið síðan á laugardaginn og nú eru friðarviðræður í uppnámi. Til stóð að halda fundi í Nígeríu til að reyna að ráða bót á ástandinu en nú er alls óvíst að af þeim verði. Erlent 20.9.2005 00:01
Bretar verja aðgerðir í Basra Það var "algjörlega rétt" af breska herliðinu í Írak að brjótast með brynvagni inn í fangelsi í Basra til að frelsa tvo breska hermenn, að því er talsmenn breskra stjórnvalda lýstu yfir í gær. Atvikið átti sér stað í fyrradag og olli mikilli reiði meðal Basrabúa. Írösk yfirvöld sögðu það "afar óheppilegt". Erlent 20.9.2005 00:01
Óbreyttir borgarar létust Tveir óbreyttir borgarar létust þegar skotbardagar brutust út á milli breskra hermanna og mótmælenda í borginni Basra í Írak í gærkvöldi. Fyrr um daginn voru tveir breskir leyniþjónustumenn í dulargervi handteknir fyrir að skjóta að írökskum lögreglumönnum sem gerðu sig líklega til að handsama þá. Erlent 20.9.2005 00:01
Frændur vorir mótmæla líka Það er ekki bara á Íslandi sem vörubílstjórar eru æfareiðir út af háu olíuverði. Í gær tók hópur vörubílstjóra í Dublin á Írlandi sig til og tafði umferð á löngum kafla með því að aka bílum sínum löturhægt í röð eftir miðborginni. Erlent 20.9.2005 00:01
Clinton-smokkar á markað í Kína Gúmmívöruframleiðandi í Kína hefur hafið markaðssetningu smokka undir vörumerkinu Clinton og Lewinsky. Kynlífshneykslið sem nærri því kostaði 42. forseta Bandaríkjanna embættið er því greinilega fjarri því að vera gleymt í huga Kínverja. Erlent 20.9.2005 00:01
Íbúar New Orleans snúa ekki aftur Borgarstjórinn í New Orleans hefur hætt við að leyfa íbúum að snúa aftur af ótta við frekari flóð í borginni. Tugþúsundir manna hafa yfirgefið heimili sín í nágrenni Flórída vegna hitabeltisstormsins Rítu sem gengur líklega þar yfir síðar í dag. Erlent 20.9.2005 00:01
Wiesenthal látinn Simon Wiesenthal, sem helgaði líf sitt því að draga stríðsglæpamenn nasista fyrir rétt eftir síðari heimstyrjöldina, er látinn, 96 ára að aldri. Erlent 20.9.2005 00:01
Joschka Fischer hættir Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands og leiðtogi Græningja, lýsti því yfir síðdegis að hann ætlaði sér að draga sig í hlé í framlínu þýskra stjórnmála. „Stórum hluta af lífi mínu síðustu tuttugu árin er nú að ljúka,“ sagði Fischer á blaðamannafundi. Erlent 20.9.2005 00:01
Áfrýjunarréttarhaldi frestað Dómstóll í Moskvu féllst í gær á beiðni Mikhaíls Khodorkovskís um að fresta réttarhaldi um áfrýjun dómsins yfir honum fram á fimmtudag, í því skyni að gera aðalverjanda hans fært að mæta í réttinn. Hann er á sjúkrahúsi. Erlent 20.9.2005 00:01