Erlent
Ríta orðin fimmta stigs bylur Meira en milljón manns hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín með fram ströndum Texas vegna fellibylsins Rítu. Ríta er orðin að fimmta stigs fellibyl og þar með öflugri en Katrín sem reið yfir suðurströnd Bandaríkjanna í síðasta mánuði. Erlent 22.9.2005 00:01
Óttast að Houston verði illa úti Ríta er nú þegar orðinn þriðji öflugasti fellibylur sögunnar. Hann er nú á miðjum Mexíkóflóa og stefnir hraðbyri í átt að ströndum Texas. Búist er við að miðja fellibylsins skelli á borginni Galveston á laugardagsmorgun og þar sem Ríta hefur færst örlítið í norður er óttast að Houston, sem er fjórða stærsta borg Bandaríkjanna, geti orðið illa úti. Erlent 22.9.2005 00:01
Merkel og Schröder ræðast við Gerhard Schröder, leiðtogi Jafnaðarmanna, og Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, hefja í dag stjórnarmyndunarviðræður í kjölfar kosninganna til þýska sambandsþingsins á sunnudag. Búist er við erfiðum viðræðum, en bæði Merkel og Schröder hafa fagnað góðum árangri í kosningunum og gera bæði tilkall til kanslaraembættisins. Erlent 22.9.2005 00:01
Þurfti að nauðlenda vegna bilunar Betur fór en á horfðist þegar farþegaflugvél þurfti að sveima yfir Los Angeles í þrjá klukkutíma í gær þar sem lendingarbúnaðurinn var í í ólagi. Framhjól vélarinnar sneru á hlið og ekki var hægt að ná þeim aftur inn í vélina. Töluverð ringulreið greip skiljanlega um sig og skelfingu lostnir farþegarnir gátu horft á atburðina og þar með eigin örlög í beinni útsendingu inni í vélinni. Erlent 22.9.2005 00:01
Dómsmálanefnd staðfestir Roberts Dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í dag tilnefningu George Bush Bandaríkjaforseta um að John Roberts verði næsti forseti Hæstaréttar. Verður tilnefningin send öldungadeildinni til staðfestingar. Reiknað er með að það verði í næstu viku og þar sem repúblikanar eru í meirihluta í deildinni er talið líklegt að tilnefning hans verði einnig staðfest þar. Erlent 22.9.2005 00:01
Lýsir yfir neyðarástandi í ríkjum Georg Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur lýst yfir neyðarástandi bæði í Texas og Louisiana vegna komu fellibylsins Rítu. Þung umferð og skortur á mat og bensíni hamlar þeim gífurlega fjölda fólks sem reynir nú að flýja heimili sín við Mexíkóflóa vegna fellibylsins. Talið er að yfir ein milljón manna sé að reyna að yfirgefa svæði þar sem talið er að Ríta muni ganga yfir. Erlent 22.9.2005 00:01
Hussein kominn til Bretlands Osman Hussein, sem sakaður eru um að vera einn fjórmenninganna sem stóðu á bak við misheppnaðar sprengjuárásir í Lundúnum 21. júlí, kom í dag til Bretlands. Hussein, sem einnig gengur undir nafninu Hamdi Issac, var handtekinn á Ítalíu skömmu eftir tilræðin og fyrr í mánuðinum féllst ítalskur dómstóll á að hann yrði framseldur til Bretlands vegna málanna. Erlent 22.9.2005 00:01
Skar nef og varir af mágkonu sinni Pakistanskur maður skar nefið og varirnar af mágkonu sinni eftir að hún hugðist sækjast eftir skilnaði frá bróður hans. Eftir því sem Reuters-fréttastofan greinir frá skaut maðurinn á konuna og bróður hennar sem voru á leið heim úr dómhúsi í Punjab-héraði á mótorhjóli. Við það féllu systkinin af hjólinu og réðst þá maðurinn á konuna og skar af henni nefið og varirnar. Erlent 22.9.2005 00:01
Sextíu látnir í flóðum í SA-Asíu Meira en sextíu manns hafa látist af völdum mikilla vinda og flóða í suðurhluta Asíu undanfarna daga. Hundraða er saknað og óttast er að flestir þeirra finnist aldrei. Í Bangladess og á Indónesíu hafa meira en hundrað þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín í strandhéruðum þar sem yfirborð sjávar hefur hækkað um allt að þrjá metra. Erlent 22.9.2005 00:01
Sakfelldur fyrir mannskæða árás Dómstóll í Ísrael sakfelldi í dag Hamas-liða fyrir að skipuleggja sprengjuárás á hótel árið 2002 sem kostaði 30 Ísraela lífið. Árásin var sú mannskæðasta í fimm ára uppreisn Palestínumanna sem lauk fyrr á þessu ári. Abbas al-Sayed, sem fór fyrir herskáum hópi Hamas í Tulkarm á Vesturbakkanum, var einnig sakfelldur fyrir að hafa staðið á bak við sprengjuárás í verslunarmiðstöð árið 2001 en þar létu fimm manns lífið. Erlent 22.9.2005 00:01
Hvetja íbúa í strandbæjum að fara Yfirvöld í Louisiana hvetja nú alla íbúa meðfram ströndum fylkisins að yfirgefa heimili sín. Nýjust veðurfréttir benda til þess að fellibylurinn Ríta muni ganga mun innar en búist var við. Suðvesturhluti Louisiana er talinn vera í mestri hættu. Erlent 22.9.2005 00:01
Hvetja til barneigna í Frakklandi Fjölskyldum í Frakklandi er heitið góðum fjárstuðningi frá stjórnvöldum ef þær ákveða að eignast fleiri börn. Villepin, forsætisráðherra Frakklands, kynnti í dag nýjar tillögur stjórnarinnar sem taka gildi á næsta ári og miða að því að hvetja þá foreldra, sem þegar eiga tvö börn, til að eignast fleiri til að hækka fæðingartíðnina í landinu. Erlent 22.9.2005 00:01
Búa sig undir það versta George Bush, forseti Bandaríkjanna, segir að stjórnvöld búi sig undir það versta vegna fellibylsins Rítu. Ríkisstjórar Texas og Louisiana hafa fyrirskipað tafarlausan brottflutning allra íbúa í strandhéruðum ríkjanna vegna fellibylsins. Þegar hefur meira en ein og hálf milljón manna flúið heimili sín. Erlent 22.9.2005 00:01
Hermenn drepnir í Taílandi Íbúar í þorpi í suðurhluta Taílands tóku tvo hermenn höndum og myrtu þá í dag vegna gruns um aðild þeirra að skotárás. Eftir því sem <em>BBC</em> greinir frá voru mennirnir gripnir eftir skotárás úr bíl í þorpinu og sökuðu sumir þorpsbúanna þá um að tilheyra dauðasveitum yfirvalda. Erlent 21.9.2005 00:01
Segir uppreisnarmenn innan hers Uppreisnarmenn hafa náð að lauma sér inn í írakskar öryggissveitir. Þetta sagði ráðgjafi Íraksstjórnar í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi. Hann sagðist þó ekki vita hve mikið af uppreisnarmönnum væru innan raða öryggissveitanna. Mikil spenna virðist komin upp milli breskra og írakskra stjórnvalda eftir að breskar hersveitir brutust inn í fangelsi í Basra í fyrradag til að frelsa þaðan tvo breska fanga. Erlent 21.9.2005 00:01
Mörk Ísraels og Gasa landamæri Ísraelar lýstu mörkin milli Ísraels og Gasa í morgun alþjóðleg landamæri. Það er í fyrsta sinn sem þeir tilgreina opinberlega landamæri að landsvæðum sem á endanum mynda sjálfstætt Palestínuríki. Ísraelar og útlendingar þurfa hér eftir að framvísa skilríkjum til að komast milli Ísraels og Gasa að sögn ísraelskra ráðamanna. Erlent 21.9.2005 00:01
Fellibyljir sumpart af mannavöldum Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfréttamaður segir sjóinn í Mexíkóflóa óeðlilega hlýjan þegar hann er inntur eftir því hvers vegna svo margir sterkir fellibyljir ríði yfir á tiltölulega skömmum tíma. Sigurður segir sjóinn óeðilega hlýjan vegna hlýnandi loftslags en það megi aftur m.a. rekja til gróðurhúsaáhrifanna, en Bandaríkjamenn losi allra þjóða mest af gróðurhúsalofttegundum út í loftið. Erlent 21.9.2005 00:01
Íbúar í Houston þurfa að fara Borgarstjórinn í Houston í Texas, Bill White, tilkynnti í dag að allir íbúar sem byggju á svæðum sem lægju lágt og hætta væri á að flæddi yfir skyldu yfirgefa borgina á morgun vegna komu fellibylsins Rítu. Almannavarnir á svæðinu segja að allt að ein milljón manna í borginni verði að fara en búist er við Ríta taki land við Galveston, suðaustur af Houston, á föstudag eða laugardag. Erlent 21.9.2005 00:01
Ræða atvik í Basra í dag Forsætisráðherra Íraks hittir varnarmálaráðherra Bretlands í Lundúnum í dag til þess að ræða frelsun breskra hermanna á tveim félögum sínum sem höfðu verið handteknir í borginni Basra. Írakar hafa tekið hófsamlega á þessu máli og ekki tekið sterkara til orða en að segja að það sé óheppilegt. Bretar segja hins vegar að hermenn þeirra hafi brugðist rétt við. Erlent 21.9.2005 00:01
Sigraði í friðarfegurðarsamkeppni Fjórtán ára gömul ísraelsk stúlka, Shira Fadida, sigraði í sérstakri friðarfegurðarsamkeppni sem haldin var í bænum Gilo skammt frá Jerúsalem í gær. Tuttugu stúlkur, bæði frá Ísrael og Palestínu, tóku þátt í samkeppninni, en þetta er annað árið í röð sem slík fegurðarsamkeppni er haldin. Erlent 21.9.2005 00:01
Brottflutningi Ísraela lokið Síðustu ísraelsku hermennirnir yfirgáfu tvær landnemabyggðir á Vesturbakkanum í gær. Þar með lýkur brottfluttningi Ísraelshers sem hófst á Gasa í ágúst. Eins og á Gasa söfnuðust þúsundir Palestínumanna saman á Vesturbakkanum í gær og fögnuðu ógurlega. Landnemabyggðirnar tvær verða þó áfram undir stjórn Ísraels og þarlendir hermenn halda áfram að vakta svæðið í kring. Erlent 21.9.2005 00:01
Segjast hafa náð stjórn á Tal Afar Írakskar og bandarískar hersveitir hafa hætt árásum á vígi uppreisnarmanna í borginni Tal Afar. Talsmaður írakska hersins sagði í gær að tekist hefði að ná stjórn á ástandinu og búið væri að handsama eða hrekja á brott alla uppreisnarmenn í borginni. Alls hafa hátt í 200 manns fallið í bardögum í borginni undanfarna tíu daga, en árásarhrina uppreisnarmanna um allt Írak hefur verið rakin til aðgerðanna í Tal Afar. Erlent 21.9.2005 00:01
Leyfa farsímanotkun í vélum sínum Tvö evrópsk flugfélög hafa ákveðið að leyfa farsímanotkun um borð í vélum sínum frá og með haustinu 2006. Flugfélögin, sem eru frá Portúgal og Bretlandi, verða þar með þau fyrstu í heiminum sem leyfa farþegum að tala í eigin farsíma í háloftunum. Til að byrja með verður þetta fyrirkomulag prófað í nokkrum flugvélum í þrjá mánuði til að sjá hve mikil notkunin verður og hvort upp komi vandræði. Erlent 21.9.2005 00:01
Gefur út 100 mínútna Bilbíu Prestur á Bretlandi hefur fengið nóg af því hversu lítinn áhuga landar hans hafa á Biblíunni og samið nýja og styttri útgáfu af bókinni helgu. Biblían hefur fengið nafnið 100 mínútna Biblían og er þar vísað til þess tíma sem það tekur að lesa hana. Eins og gefur að skilja er stiklað á stóru í verkinu en þó er allar þekktustu Biblíusögurnar að finna í bókinni. Erlent 21.9.2005 00:01
Ríta orðin fjórða stigs fellibylur Fellibylurinn Rita er orðin fjórða stigs fellibylur og er þar með orðin öflugri en Katrín þegar hún skall á suðurströnd Bandaríkjanna. Óttast er að Rita kunni að valda gríðarlegi eyðileggingu í Texas og í Louisiana. Erlent 21.9.2005 00:01
Handteknir vegna barnakláms Lögregla í sex ríkjum Evrópusambandsins handtók hóp manna í áhlaupi á 80 hús í löndunum sex vegna gruns um að fólk þar tengdist dreifingu og vörslu barnakláms á Netinu. Í tilkynningu frá Europol segir að um framhald aðgerða frá því í sumar hafi verið að ræða, en 14. júní var ráðist inn í 140 hús í 13 löndum Evrópu og leiddi það til þess að ríflega 130 manns sættu rannsókn vegna tengsla sinna við barnaklámsefni. Erlent 21.9.2005 00:01
Segja Issac framseldan á morgun Ítalir munu á morgun framselja einn mannanna, sem grunaðir eru misheppnuð sprengjutilræði í Lundúnum 21. júlí, til Bretlands. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir heimildarmönnum innan dómskerfis Ítalíu. Hamdi Issac var handtekinn í Róm viku eftir sprengingarnar og fóru Bretar þegar fram á framsal hans. Málið fór fyrir dóm á Ítalíu sem úrskurðaði fyrr í mánuðinum að Issac, sem einnig gengur undir nafninu Osman Hussein, skyldi framseldur. Erlent 21.9.2005 00:01
Mikill viðbúnaður vegna Rítu Mikill viðbúnaður er í Texas vegna Rítu. Fólk sem býr við ströndina hefur verið hvatt til að flýja heimili sín. Þúsundir eru þegar farnar að huga að brottflutningi frá Galveston og borgarstjórinn í Houston hefur beint því til borgarbúa að búa sig undir það versta. Erlent 21.9.2005 00:01
Segja faraldur í Indónesíu Yfirvöld á Indónesíu segja að upp sé kominn fuglaflensufaraldur í landinu. Í nótt lést fimm ára stúlka í Djakarta sem jafnvel er talin hafa smitast af fuglaflensu. Sex manns á sama spítala eru taldir vera með flensuna. Þegar hefur verið staðfest að fjórir hafi látist af völdum flensunnar í landinu undanfarna mánuði. Erlent 21.9.2005 00:01
Fellibylurinn Ríta stefnir á Texas Öllum íbúum Galveston í Texas hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín vegna fellibylsins Rítu sem stefnir óðfluga þangað eftir að hafa farið fram hjá Florida Keys eyjaklasanum í gær. Ríta er nú orðin annars stigs fellibylur og styrkist óðum. Jafnvel er óttast að hún nái fjórða stigi á næstu sólarhringum þegar hún gæti farið yfir Texas eða Louisiana. Erlent 21.9.2005 00:01