Erlent
Sprengja N-Kóreumenn vetnissprengju næst? Erlent 13.10.2006 17:06 Ver verðlaunafénu til góðgerðamála Mohammad Yunus, sem hlaut í morgun friðarverðlaun Nóbels á ásamt Grameen-smálánabankanum sem hann stofnaði, hyggst verja verðlaunafénu, um 95 milljónum króna, til góðgerðamála. Erlent 13.10.2006 16:46 Dýrasti veitingastaður heimsins Erlent 13.10.2006 15:54 Bandaríkin styðja andstæðinga Hamas Erlent 13.10.2006 15:36 Sprengdi Norður-Kórea bara dínamít ? Erlent 13.10.2006 15:13 Bandaríkjamenn útiloka hernað gegn Norður-Kóreu Erlent 13.10.2006 14:34 Bráðnandi jökulhettur ógna lífi í Afríku Erlent 13.10.2006 14:13 Danskir múslimaklerkar vilja frið Erlent 13.10.2006 13:42 « ‹ ›
Þrír létust í hríðarbyl í New York Þrír létust og þúsundir eru án rafmagns í Buffalo eftir að hríðarbylur gekk yfir New York ríki í gær. Rúmlega 60 sm snjór féll í miklu þrumuveðri á fimmtudag og föstudag, en það eru mestu snjóar í október síðan veðurstofan byrjaði mælingar fyrir 137 árum. Rafmagnsfyrirtæki áttu í miklum erfiðleikum að bæta úr rafmagsleysinu þar sem starfsmenn þeirra festust í snjónum eins og aðrir. Erlent 14.10.2006 20:45
Kidman rödd kvenna í Kosovo Kvikmyndaleikkonan og óskarsverðlaunahafinn Nicole Kidman hóf ferð um Kosovo í dag til að styrkja málefni kvenna í landinu og auka skilning á réttindum þeirra. Þetta er fyrsta embættisverk hennar sem velgjörðarsendiherra Sameinuðu Þjóðanna. Hún flaug frá Ítalíu til Pristinu, höfuðborgar Kosovo, eftir að hafa kynnt nýjust kvikmynd sína “Fur” á kvikmyndahátíð Rómaborgar. Erlent 14.10.2006 20:30
Ropandi beljur auka gróðurhúsaáhrif Vísindamenn í Bretlandi vinna nú að rannsóknum á áhrifum metangass sem kýr hleypa út í andrúsloftið þegar þær ropa, á hlýnandi loftslagi. Þar í landi reiknast vísindamönnununum til að í breskar kýr framleiði 3% af gróðurhúsaáhrifum í Bretlandi. Kýr auki þess vegna á hlýnun loftslags. Erlent 14.10.2006 20:15
Öryggisráð SÞ samþykkir refsiaðgerðir gegn N-Kóreu Bandaríkin, Bretland og Frakkland komust hjá ágreiningi við Rússland og Kína um refsiaðgerðir gegn Norður Kóreu og samþykktu öll 15 aðildarríki öryggisráðsins nýja ályktun. Hún felur í sér að Norður Kórea eyðileggi öll kjarnorkuvopn, gjöreyðingarvopn og langdrægar flaugar, en útilokar hernaðaraðgerðir gegn landinu. Erlent 14.10.2006 18:38
Sjálfsmorð eftir ímyndað morð unnustu Pakistanskur maður framdi sjálfsmorð fyrir utan hús unnustu sinnar í Karachi þegar hann hélt að hann hefði ráðið henni bana af gáleysi. Maðurinn var vopnaður byssu og skaut í sífellu af henni í loftið fyrir utan hús hennar í þeirri von að fá athygli unnustunnar og fá hana til að giftast sér tveim mánuðum fyrr en áætlað hafði verið. Erlent 14.10.2006 17:37
Skjóta Tíbeta á flótta Rúmenskir kvikmyndatökumenn náðu því á mynd þegar kínverskir landamæraverðir skutu á hóp Tíbeta sem var fótgangandi á leið yfir til Nepals. Tveir létu lífið. Kínversk stjórnvöld viðurkenna að átök hafi átt sér stað, en halda því fram að fólkið hafi ráðist á landamæraverðina. Erlent 14.10.2006 17:29
Titringur í ríkisstjórn Reinfeldts Viðskiptaráðherra Svíþjóðar Maria Borelius hefur sagt af sér eftir einungis eina viku í embætti. Hún hefur viðurkennt að hafa ráðið barnfóstrur án þess að borga skatta og önnur launatengd gjöld. Forsætisráðherrann Fredrik Reinfeldt greindi frá því í útvarpsviðtali að þau hefðu komist að samkomulagi um afsögnina. Erlent 14.10.2006 15:22
Háskalegur dauðdagi flottur Stjórnvöld í Suður-Afríku reyna nú að koma böndum á nýjasta æðið hjá ungmennum í landinu. Það er svokölluð lestareið þar sem unglingar standa ofaná hraðlestum og reyna að forðast að lenda á rafmagnslínum. Fjölmargir hafa þegar látist eða stórslasast. Það eru einkum ungir karlmenn sem stunda þennan stórhættulega leik. Erlent 14.10.2006 13:01
Sprengju líklega komið fyrir í farangri Spænsk kona sem handtekin var í Mexíkó um síðustu helgi, hefur verið ákærð fyrir að ætla að flytja sprengiefni til Spánar. Spænski konsúllinn í Cancún segir næsta víst að sprengiefnunum hafi verið komið fyrir í farangri hennar. Um sé að ræða unga stúlku sem var með eiginmanninum í brúðkaupsferð í Cancun, hún komi frá litlu þorpi í Galisíu og reki eigin hárgreiðslustofu. Erlent 14.10.2006 12:45
Sönnun á kjarnorkutilraun N-Kóreu Bandaríkin hafa tilkynnt að geislavirkni hafi mælst í loftsýnum sem tekin voru úr sérhannaðri flugvél bandaríkjahers daginn eftir kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna. Sýnin voru tekin nálægt staðnum sem neðanjarðarsprengingin átti sér stað. Þetta staðfestir að kjarnorkutilraunin fór fram, en getgátur voru uppi um það síðustu daga að einungis hefði verið um dýnamítsprengingu að ræða. Erlent 14.10.2006 10:15
Ban kjörinn nýr aðalritari SÞ Allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna kaus í gær Ban Ki-Moon nýjan aðalritara Sameinuðu Þjóðanna. Ban tekur við af Kofi Annan um áramótin, en Annan hefur gengt starfinu í áratug. Ban er fyrrverandi utanríkisráðherra Suður Kóreu. Á fyrsta blaðamannafundi Ban eftir kjörið sagðist hann styðja þær refsiaðgerðir sem Bandaríkjamann hafa lagt fyrir öryggisráðið. Erlent 14.10.2006 09:49
Geislavirk efni nærri tilraunastað Frumrannsóknir bandarískra sérfræðinga sýna að geislavirk efni hafi fundist nærri þeim stað þar sem Norður-kóreumenn segjast hafa sprengt kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á mánudaginn. Heimildarmaður í bandaríska stjórnkerfinu hefur staðfest þetta bæði við Reuters-fréttastofuna og CNN í kvöld. Erlent 13.10.2006 23:49
365 þúsund Írakar á vergangi Mörg þúsund Írakar flýja nú heimaland sitt á degi hverjum. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna segir þetta stöðuga og lágværa brottflutninga. Þeim Írökum sem leita hælis á Vesturlöndum fjölgi dag frá degi. Auk alls þessa séu 365 þúsund Írakar á vergangi og þeir verði aðeins fleiri eftir því sem á líði. Erlent 13.10.2006 23:01
Nýr megrunardrykkur reynist umdeildur Sérfræðingar í heilbrigðisgeiranum gera lítið úr fullyrðingum Coca-Cola og Nestle um að nýr drykkur frá þeim hjálpi fólki við að létta sig drekkið það þrjár 30 millilítra dósir á dag. Erlent 13.10.2006 22:17
Sýknaður af ákæru um að rjúfa friðhelgi einkalífs Díönu og Dodis Franskur dómstóll hefur sýknað breskan ljósmyndara af ákæru um að hafa skert friðhelgi einkalífs Díönu prinsessu af Wales og Dodi Fayeds. Jason Fraser tók myndir af parinu þar sem þau kysstust á snekkju við ítölsku Rívíeruna í ágúst árið 1997, nokkrum dögum áður en þau týndu lífi í bílslysi í París. Það var faðir Dodis, auðjöfurinn Mohamed Al Fayed, sem kærði Fraser. Dómsorð í málinu hefur enn ekki verið birt opinberlega. Erlent 13.10.2006 21:35
Meðferð á föngunum í Guantanamo rannsökuð Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur fyrirskipað rannsókn á meintri illri meðferð á föngum í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu eftir að fréttir bárust af því að fangaverðir stærðu sig af því að hafa barið og misþyrmt föngum þar. Erlent 13.10.2006 21:04
Vilja aftur að samningaborðinu Norður-kóreumenn eru tilbúnir til að snúa aftur að samningaborðinu og ræða næstu skref í kjarnorkudeilu sinni við vesturveldin. Alexander Alexeyev, vara-utanríkisráðherra Rússlands, sagði þetta í viðtali við Itar-Tass fréttastofuna síðdegis í dag. Ekki kemur fram í fréttinni að stjórnvöld í Pyongyang setji nokkur skilyrði fyrir því að hefja viðræður á ný eftir tæplega eins árs hlé. Erlent 13.10.2006 20:21
Ban Ki-Moon næsti framkvæmdastjóri SÞ Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna skipaði í kvöld Ban Ki-Moon, utanríkisráðherra Suður-Kóreu, í embætti framkvæmdastjóra samtakanna. Hann tekur við af Kofi Annan um næstu áramót. Erlent 13.10.2006 19:30
Bandaríkjamenn milda ályktun til öryggisráðsins Bandaríkjamenn hafa sent öryggisráði Sameinuðu þjóðanna nýja og mildari ályktun um aðgerðir gegn Norður-Kóreumönnum, en andstaða var við fyrri tillögur frá Rússum og Kínverjum. Í nýju ályktuninni eru viðskiptahöft milduð og ekki gert ráð fyrir hernaðaraðgerðum. Erlent 13.10.2006 18:05
Enn eitt hneykslið hjá Repúblíkönum Fyrsti bandaríski þingmaðurinn hefur nú játað á sig mútuþægni í máli Jack Abramoffs, fulltrúa þrýsihóps sem hefur verið sakfelldur fyrir að bera fé á þingmenn. Bob Ney er fulltrúadeildarþingmaður Repúblíkanaflokksins frá Ohio. Hann dró framboð sitt til þingkosninganna í næsta mánuði til baka í ágúst þegar ljóst var að bandaríska dómsmálaráðuneytið hafði hafið rannsókn á tengslum hans við Abramoff. Ney mun segja af sér þingmennsku á næstu dögum. Erlent 13.10.2006 18:04
Verðlaunaféð fer í sjúkrahús og matvælaverksmiðju Bangladessbúinn Mohammad Yunus og Grameen smálána-bankinn sem hann stofnaði og veitir fátækum lán, deila með sér friðarverðlaunum Nóbels í ár. Verðlaunaféð, um 100 milljónir króna, mun Yunus nota til að koma á fót verksmiðju sem framleiðir ódýr matvæli með miklu næringargildi auk þess að koma á fót í heimalandi sínu sjúkrahúsi sem sérhæfir sig í augnaðgerðum. Erlent 13.10.2006 17:45
Dæmdur fyrir að styðja Hamas Bandaríkjamaðurinn Mohamed Shorbagi hefur játað á sig fyrir dómi í Bandaríkjunum að hafa veitt Hamas-samtökunum fjárstuðning. Shorbagi, sem er 42 ára, er imam í mosku í Georgíu-ríki. Í lok sumars var hann ákærður fyrir að styðja erlend hryðjuverkasamtök og gæti átt yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi. Bandarísk stjórnvöld skilgreina Hamas sem hryðjuverkasamtök. Erlent 13.10.2006 17:32
Ver verðlaunafénu til góðgerðamála Mohammad Yunus, sem hlaut í morgun friðarverðlaun Nóbels á ásamt Grameen-smálánabankanum sem hann stofnaði, hyggst verja verðlaunafénu, um 95 milljónum króna, til góðgerðamála. Erlent 13.10.2006 16:46