Erlent

Útlit fyrir að Hillary nái endurkjöri

Allt stefnir í að Hillary Rodham Clinton nái endurkjöri sem öldugadeildarþingmaður fyrir New York í næsta mánuði. Ástand mála mun gott í New York, hún vinsæl meðal flestra, jafnvel þeirra sem kusu hana ekki fyrir 6 árum. Kjósendur í New York segjast flestir ætla að kjósa hana í forsetakosningunum 2008 verði hún í kjöri.

Erlent

Mary krónprinsessa Danmerkur með barni

Mary krónprinsessa Danmerkur og Frederik prins eiga von á öðrum erfingja, samkvæmt tilkynningu frá dönsku konungsfjölskyldunni. Áætlað er að Mary fæði barnið í byrjun maí á næsta ári.

Erlent

Tvö bresk börn látin vegna eitrunar, foreldrarnir í dái

Tvö bresk börn fundust látin á hótelherbergi á grísku eyjunni Korfú í morgun. Foreldrar þeirra lágu við hlið þeirra, meðvitundarlaus en enn með lífsmarki. Frumrannsókn lögreglu bendir til að börnin hafi látist af völdum eiturs og rannsakar lögreglan nú hvort eitrað hafi verið fyrir fjölskyldunni. Talið er að börnin hafi verið látin í 8-9 klukkutíma þegar herbergisþerna kom að fjölskyldunni.

Erlent

Arabar útlægir frá Níger

Stjórnvöld í Níger hafa rekið fjölda araba frá landinu, mest hirða með hjarðir sínar. Þeim hefur verið fylgt að landamærunum við Tsjad og þeir sendir yfir landamærin. Embættismaður við landamærin sagði að þarna væri verið að framkvæma umdeilda ákvörðun um að reka um 150 þúsund Mahamid araba frá landinu.

Erlent

Léttklæddar konur biðja um að þeim sé nauðgað

Æðsti klerkur múslima, í Ástralíu, hefur vakið mikla reiði með því að segja að léttklæddar konur biðji um að þeim sé nauðgað. Jafnréttisráðgjafi ríkisstjórnarinnar vill að klerkurinn verði rekinn úr landi.

Erlent

Ritstjórar Jyllands-Posten sýknaðir af kæru vegna Múhameðsmyndanna

Héraðsdómur í Árósum í Danmörku hefur sýknað 2 ritstjóra Jyllands-Posten í einkamáli sem sjö samtök múslíma í Danmörku höfðuðu vegna skopmyndanna sem birtust af Múhameð spámanni fyrir tæpu ári síðan. Dómarinn úrskurðaði, að þó að múslimar víða um heim hefðu móðgast vegna myndanna, þá væri ósannað að myndunum hafi verið ætlað að særa múslima.

Erlent

Alræmdur fjöldamorðingi tekinn af lífi í Flórída

Danny Harold Rolling, einn alræmdasti fjöldamorðingi Flórídaríkis, var tekinn af lífi með banvænni sprautu í fangelsi í Flórída í gærkvöld. Rolling var árið 1994 dæmdur til dauða eftir að hann viðurkenndi að hafa myrt fimm nemendur í háskólabænum Gainsville í Flórída á hrottalegan hátt árið 1990, en hann notaði veiðihníf við morðin.

Erlent

Loftlagsbreytingar geti leitt til heimskreppu

Ef ríki heimsins grípa ekki til aðgerða gegn loftlagsbreytingum er hætta á mikilli heimskreppu á öldinni. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu sem fyrrverandi aðalhagfræðingur Alþjóðabankans hefur unnið fyrir bresk yfirvöld um áhrif loftlagsbreytinga á efnahagkerfi heimsins.

Erlent

Bretar að taka til í kjarnorkuverum sínum

Bresk nefnd sem var sett á laggirnar í apríl 2005 og sér um úreldingu gamalla kjarnorkuvera, sagði í morgun að það myndi kosta um 65 milljarða punda, sem samsvarar 8.300 milljörðum íslenskra króna, að hreinsa svæðin sem kjarnorkuverin hefðu verið á.

Erlent

400 á sjúkrahús vegna áfengiseitrunar

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Pskov héraði í Vestur-Rússlandi þar sem 400 manns hafa verið lagðir inn á sjúkrahús síðustu þrjár vikurnar og 15 hafa látist eftir að hafa drukkið áfengi blandað lyfjum. Lyfin eru stórhættuleg í sambland við áfengi og hafa því margir fengið að kenna á eitrunaráhrifum.

Erlent

Samkynhneigðir megi giftast í New Jersey

Hæstiréttur í New Jersey úrskurðaði í gær á þann veg að samkynhneigðum skuli heimilt að giftast í ríkinu. Dómstóllinn fól löggjafanum að breyta lögum í þessa veru en setti þeim 180 daga frest.

Erlent

Lokaumferð forsetakosninga í Brasilíu fer fram um um næstu helgi

Lokaumferð forsetakosninga í Brasilíu fer fram um næstkomandi helgi. Forseti Brasilíu, Lula da Silva, sem er að reyna að ná kjöri í annað sinn og mótframbjóðandi hans, Geraldo Alckmin, gagnrýndu stefnu hvors annars í efnahagsmálum Brasilíu er þeir héldu sína síðustu kjörfundi fyrir kosningar.

Erlent

Fimm bandarískir hermenn létust í Írak

Einn bandarískur sjóliði og fjórir bandarískir landgönguliðar létust í árás í gær í Anbar-héraði í vesturhluta Íraks. Bandaríski herinn tilkynnti þetta í morgun en ekki kom fram hvort allir fimm hefðu látist í sömu árás. Það sem af er mánuðinum hafa 95 bandarískir hermenn látist í Írak, sem er hæsta dánartíðni í 12 mánuði.

Erlent

Pattstaða í kosningu til öryggisráðs S.þ.

Pattstaða er nú í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna þar sem illa gengur að fylla fimmta lausa sætið í öryggisráðinu. Eftir fjörutíu og eina umferð hefur Gvatemala dágott forskot á Venesúela með allt að 109 atkvæði gegn 72 atkvæðum. Þetta dugir hins vegar ekki til þar sem Gvatemala þarf aukinn meirihluta, tvo þriðju allra atkvæða, til að niðurstaða fáist.

Erlent

Kveiktu í strætó í úthverfi Parísar

Hópur hettuklæddra ungmenna, rak í nótt farþega út úr strætisvagni í úthverfi í vesturhluta Parísar og kveikti síðan í honum. Enginn slasaðist í eldinum en strætóinn er gerónýtur þrátt fyrir að slökkviliðsmenn hafi slökkt fljótt og vel í honum.

Erlent

Ofurfyrirsæta handtekin

Breska lögreglan handtók í dag ofurfyrirsætuna Naomi Campbell. Lögregla handtók hin 36 ára gömlu fyrirsætu þar sem hún var stödd í húsi í Westminster í Lundúnum. Hún var þegar færð til yfirheyrslu. Ekki er vitað hver ástæðan er fyrir handtökunni.

Erlent