Erlent

Vilja að Saddam verði hengdur

Íranar hvöttu í dag til þess að dauðadómurinn yfir Saddam Hussein verði látinn standa og að hann verði hengdur fyrir ódæðisverk sín. Ein milljón manna féll í átta ára stríði, sem hófst þegar Saddam réðst inn í Íran árið 1980.

Erlent

Kókaínfarmur á Atlantshafi

Breskt herskip stöðvaði í dag dráttarbát á Atlantshafi og handtók áhöfnina, þegar í ljós kom að farmurinn var eitt koma þrjú tonn af kókaíni.

Erlent

Heiðursmorð með bareflum og rafmagni

Jórdanskur maður hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt sautján ára dóttur sína með því að berja hana margsinnis í höfuðið, með barefli og hleypa svo rafmagni í hana. Þetta gerðist síðastliðinn föstudag.

Erlent

Alvarlegir þurrkar í Ástralíu

John Howard forsætisráðherra Ástralíu kallaði saman neyðarfund stjórnmálaleiðtoga og vísindamanna í Canberra í dag vegna mjög alvarlegra þurrka í heimsálfunni. Þurrkurnir hafa staðið í sex ár og eru þeir mestu sem vitað er um sögu Ástralíu. Ef fram heldur sem horfir mun mikilvægasta vatnakerfi álfunnar, í Murray-Darling dalnum, þorna upp á hálfu ári. Það sér um 70 prósentum af öllu ræktarlandi Ástralíu fyrir vatni. Meðal tillagna til að ráða bót á neyðarástandinu eru áætlanir til að spara vatn og tryggja skipti á vatni milli landssvæða.

Erlent

Óvíst hvort réttarhöldum yfir Saddam lýkur fyrir hengingu

Saddam Hussein mætti fyrir dómara í morgun, tveimur dögum eftir að dauðadómur var kveðinn upp yfir honum. Að þessu sinni snerust réttarhöldin um fjöldamorð hans á 180 þúsund Kúrdum á árunum 1986-1989 en óvíst er hvort þeim verður lokið áður en dauðadómnum verður fullnægt.

Erlent

Tvísýnt um úrslit

Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til beggja þingdeilda. Baráttan er hörð og tvísýnt um úrslit. Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað mjög á forskot Demókrata og ólíklegt að þeir nái meirihluta í báðum þingdeildum. Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til beggja þingdeilda. Baráttan er hörð og tvísýnt um úrslit. Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað mjög á forskot Demókrata og ólíklegt að þeir nái meirihluta í báðum þingdeildum. Kosið er um öll fjögur hundruð þrjátíu og fimm þingsæti í fulltrúadeild og þrjátíu og þrjú öldungadeildarþingsæti, eða þriðjung þeirra. Auk þess verður kosið um ríkisstjóra í þrjátíu og sex ríkjum. Einnig eru greidd atkvæði í nokkrum ríkjum um lagasetningu þar um hjónabönd samkynhneigðra, rannsóknir á stofnfrumur úr fósturvísum og lágmarkslaun, svo eitthvað sé nefnt. Auk þess er ekki síst litið á kosningarnar sem atkævðagreiðslu um stefnu Bush stjórnarinnar, meðal annars í Írak. Bandaríkjaforseti hefur komið fram á kosningafundum fyrir flokksbræður sína síðustu daga og tók þátt í kosningabaráttunni fram á síðustu mínútu. Ekki voru þó allir frambjóðendur flokksins sáttir við framlag forsetans og vildu margir hverjir fjarlægja sig frá honum vegna Íraksmálsins. Sem dæmi kaus frambjóðandi flokksins til fylkisstjóra í Flórída, væntanlegur arftaki Jeb Bush í embætti, að halda síðasta kosningafund sinn fjarri forsetanum sem var mættur til að styðja flokksbróður sinn þar. Bush lét það þó ekki á sig fá og hélt fund án frambjóðandans. Forsetinn sagðist sannfærður um að Repúblíkanar færu með sigur af hólmi í dag enda væri stefna flokksins í skatta- og öryggismálum sú rétta. Ekki virðist þó áhuginn mikill fyrir kosningunum meðal almennings og ekki búist við að kjörsókn fari yfir fjörutíu prósent. Kannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað á fylgi Demókrata síðustu daga og ólíklegt talið að þeir nái meirihluta í báðum deildum. Líklegast er að Repúblíkanar haldi meirihluta sínum í Öldungadeildinni en Demókratar nái yfirhöndinni í fulltrúadeildinni. Fjöldi Bandaríkjamanna hefur þegar kosið utan kjörfundar en þeir sem eiga það eftir kjósa í dag í sinni heimabyggð á þar til gerðum kosningavélum. Dómsmálaráðuneytið bandaríska hefur sent um áttahundruð og fimmtíu kosningaeftirlitsmenn til á sjöunda tug borga og bæja víða um Bandaríkin. Þeirra er að gæta þess að farið sé að lögum og reglum og grípa í taumana ef kosningavélar eru sagðar bila eða gefa sig.

Erlent

Þjóðverjar hafna hærri sköttum á bjór

Þjóðverjar segjast munu beita neitunarvaldi til þess að koma í veg fyrir að skattar á áfengi verði hækkaðir um 31 prósent í aðildarríkjum Evrópusambandsins. Þýsk stjórnvöld óttast viðbrögð bjórdrykkjumanna heimafyrir, ef skatturinn verður hækkaður.

Erlent

28 handteknir vegna barnaklámhrings í Róm

Ítalska lögreglan handtók í gær minnst 28 manns sem grunaðir eru um að tengjast barnaklámshring sem misnotuðu börn Roma sígauna í Róm. Að sögn lögreglunnar fengu börn sem bjuggu í búðum farsíma eða nýtísku strigaskó í skiptum fyrir kynlíf. Fórnarlömbin eru á aldrinum 8-13 ára.

Erlent

Alvarlegt rútuslys í Noregi

Á þriðja tug manna er slasaður, þar af sjö alvarlega, eftir að rúta með um 40 pólskum verkamönnum ók út af þjóðvegi við bæinn Ulsberg í Þrændalögum í Noregi í morgun og valt.

Erlent

Hjarta eins og í níræðum manni

Jackass stjarnan Steve-O segist vera hættur að nota kókaín eftir að læknir hans sagði að hjartað í honum væri eins og í níræðum manni, og hann næði ekki fertugsaldri.

Erlent

Fær ekki að passa Tony Blair

Breskur lögreglumaður, sem er múslimi, hefur höfðað mál vegna þess að hann var fluttur úr lífvarðasveit, sem meðal annars passar upp á Tony Blair, forsætisráðherra.

Erlent

Bandaríkjamenn munu ekki breyta umhverfisstefnu í bráð

Þeim sem vonuðu að Bandaríkjamenn sæju að sér í umhverfismálum og minnkuðu útblástur gróðurhúsalofttegunda verður ekki að ósk sinni í bráð. Fulltrúi Bandaríkjanna á umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Nairobi í Kenía tilkynnti í dag að svo yrði ekki í forsetatíð Bush Bandaríkjaforseta.

Erlent

Kjördagur í Bandaríkjunum

Bandaríkjamenn ganga til kosninga í dag og kjósa sér þingmenn í báðum deildum þingsins. Frambjóðendur nýttu síðasta tækifærið til að koma skilaboðum sínum til kjósenda í gærkvöld. Síðustu skoðanakannanir sýndu að Repúblikanar höfðu saxað mjög á forskot Demókrata og dvínuðu því sigurvonir þeirra, um að fella meirihluta Repúblikana í báðum þingdeildum.

Erlent

Ortega hefur öruggt forskot

Allt bendir til þess að Daníel Ortega, fyrrum byltingarleiðtogi í Níkaragva, vinni öruggan sigur í forsetakosningum í landinu. Þegar rúm 60% atkvæða hafa verið talin hafa 39% atkvæða fallið honum í skaut og hefur hann 8 prósentustiga forskot á aðalkeppinaut sinn.

Erlent

Abbas og Haniyeh funda áfram í dag

Mahmoud Abbas og Ismail Haniyeh, leiðtogar Hamas og Fatah fylkinganna í Palestínu, funda á ný í dag, eftir að þeim mistókst að leggja lokahönd á samkomulag um að hópur sérfræðinga myndi sameiginlega stjórn fylkinganna tveggja sem tekur við af ríkisstjórn Hamas-flokksins.

Erlent

Saddam enn í réttarsal, nú vegna þjóðarmorðs á Kúrdum

Saddam Hússein, fyrrverandi forseti Íraks, er kominn aftur inn í réttarsal í Bagdad, tveimur dögum eftir að hann var dæmdur til dauða fyrir glæpi gegn mannkyni. Nú svarar hann til saka fyrir annað mál: hann er ákærður fyrir hlut sinn í þjóðarmorði á Kúrdum í Norður-Írak á síðari hluta 9. áratugar 20. aldarinnar.

Erlent

Ísraelsher dregur sig frá Beit Hanoun

Ísraelski herinn dró sig frá palestínska bænum Beit Hanoun í dögun í morgun eftir sex daga árásir sem heryfirvöld sögðu beint gegn skæruliðum en sem urðu tugum óbreyttra borgara að bana. Ísraelski herinn segist hafa náð markmiðum sínum með árásunum.

Erlent

Meirihlutinn telur það til góða ef Demókratar sigra kosningarnar

Meirihluti Bandaríkjamanna telur að ef Demókratar ná meirihluta á þingi þá muni efnahagsmálum landsins, þróuninni í Írak og baráttunni gegn hryðjuverkum miða í rétta átt. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem fréttastöðin CNN lét gera og birti í dag. Þingkosningar í Bandaríkjunum fara fram á morgun.

Erlent

Rafmagn fór af Evrópu

Norska skemmtiferðaskipið Norwegian Pearl slökkti um helgina ljósin í Evrópu. Milljónir manna í 12 löndum misstu rafmagnið. Skipið var að sigla upp eftir ánni Ems, í Þýskalandi. Ákveðið var að rjúfa straum á mikilvægri rafleiðslu þar sem skipið er afar stórt. Það varð til þess að yfirspenna varð á öðrum leiðslum og þær sló út. Við það fór rafmagnið af stórum hluta Frakklands, Spánar, Ítalíu, Portúgal, Austurríkis og fleiri landa.

Erlent

Ísjakar undan strönd Nýja Sjálands

Yfirvöld á Nýja-Sjálandi hafa sent frá sér viðvörun til sjófarenda vegna mörg hundruð ísjaka undan strönd landsins. Töluverð hætta er talin geta skapast nærri jökunum þar sem veður á svæðinu mun versna.

Erlent

Lögfræðiteymi í bandaríska kosningaslaginn

Bæði repúblikanar og demókratar í Bandaríkjunum eru búnir að safna saman hópum lögfræðinga, sem eiga að leggja fram kærur ef úrslit verða einhversstaðar í vafa í þingkosningunum sem fram fara á morgun.

Erlent

Útgöngubanni aflétt að hluta til í Bagdad

Íröksk yfirvöld hafa aflétt útgöngubanni í höfðuborginni Bagdad að hluta til en því var komið á áður en Saddam Hussein, fyrrverandi forseti landsins, var dæmdur til dauða í gær fyrir glæpi gegn mannkyni. Óttast var að til uppþota kæmi í kjölfarið í höfuðborginni en allt hefur verið með kyrrum kjörum í dag.

Erlent

Bandaríkin segjast standa sig vel í loftslagsmálum

Aðalsamningamaður Bandaríkjanna í umhverfismálum segir að Bandaríkin standi sig betur í því að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda en mörg önnur lönd. Hann á ekki von á því að bandaríkjamenn undirgangist Kyoto samkomulagið, meðan núverandi ríkisstjórn situr í Washington.

Erlent

Þingmönnum synjað um kött gegn músaplágu

Yfirvöld hafa synjað beiðni breskra þingmanna um að fá kött, til þess að takast á við mikla músaplágu í þinghúsinu. Mýsnar hrjá bæði háa og lága; þær skoppa um á milli skrifborða blaðamanna, jafnt og í testofu þinghússins.

Erlent

Fimmti hver Dani fylgjandi dauðarefsingu

Fimmti hver Dani er fylgjandi því að taka aftur upp dauðarefsingar í landinu samkvæmt nýrri könnun sem rannsóknarstofnunin IFKA hefur gert. Sagt er frá því á vef Jótlandspóstsins að dauðarefsing hafi verið endanlega tekin úr lögum í Danmörku árið 1993 en í dag séu um 20 prósent þjóðarinnar sem telji að refsa skuli fyrir sum brot með dauðadómi.

Erlent