Erlent

Kínversk kona í starf forstjóra WHO

Framkvæmdastjórn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar tilkynnti í morgun að Kínverjinn Margaret Chan yrði næsti forstjóri stofnunarinnar. Hún var valin úr fimm manna hópi sem framkvæmdastjórnin ræddi við í gær en í honum voru auk Chan fulltrúar Mexíkós, Japans, Kúveits og Spánar.

Erlent

Átök hafin að nýju í Darfur

Stjórnvöld í Súdan gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að hindra starfsmenn hjálparstofnana og blaðamenn í að komast til Darfur héraðs, að sögn mannréttindasamtaka.

Erlent

Tamíltígrar segja 45 látna og 125 slasaða á Sri Lanka

Tamíltígrarnir á Sri Lanka segja að 45 óbreyttir borgarar hafi látist og 125 slasast þegar stjórnarherinn skaut flugskeytum á flóttamannabúðir á austurhluta eyjunnar. Stjórnarherinn segir hins vegar að sprengjum hafi verið varpað á bækistöðvar skæruliða til að svara árásum sem þeir hafi gert á hermenn.

Erlent

Fangelsið ekki nógu fínt fyrir svikahrapp

Ástralski svikahrappurinn Peter Foster, sem meðal annars sá um íbúðakaup fyrir forsætisráðherrafrú Bretlands, fékk í dag að flytja sig á lúxushótel á Fiji eyjum, vegna þess að fangelsið þykir of subbulegt.

Erlent

Panama fær sæti í öryggisráði S.þ.

Panama hlaut í gær sæti í öryggisráði Samneinuðu þjóðanna. Mikil barátta hefur staðið um sætið en Venesúela og Guatemala sóttust einnig eftir því. Bandaríkjamenn studdu Guatemala gegn Venesúela. Guatemala hafði betur í nær öllum atkvæðagreiðslunum í allsherjarþinginu en náði ekki tilskyldu lágmarki, sem er tveir þriðju hlutar atkvæða.

Erlent

Demókratinn Webb lýsir yfir sigri í Virginíu

Talningu er að ljúka í Virginíuríki. Demókratinn Webb er með 1.170.564 atkvæði, eða 50% og repúblikaninn George Allen hlaut 1.162.717 atkvæði eða 49% þegar búið er að telja 99% atkvæða. Munurinn er aðeins 7847 atkvæði. Svo mjótt er á mununum í kosningum til öldungadeildar bandaríska þingsins í Virginíufylki að hugsanlega þarf að telja á ný. Það myndi þýða að ekki ræðst fyrr en í desember hvor flokkurinn hefur meirihluta í öldungadeildinni. Munurinn er núna nokkuð innan við hálft prósent og því gæti farið svo að farið verði fram á endurtalningu atkvæða.

Erlent

Skipar ísraelska hernum að hætta árásum á Beit Hanoun

Varnarmálaráðherra Ísraels hefur skipað hernum að hætta sprengjuárásum á palestínska bæinn Beit Hanoun, þar sem 18 íbúar létust í nótt í árás á íbúðahverfi. Ismail Hanieyh, leiðtogi Hamas-samtakanna hefur slitið viðræðum við Fatah-hreyfinguna um sameinaða stjórn vegna sprengjuárásanna.

Erlent

Demókrati öldungadeildarþingmaður í Missouri

Fréttastofa BBC segir frá því að demókratar hafi unnið eitt öldungadeildarsæti til viðbótar af repúblikönum, í Missouri-fylki. Enn er hnífjafnt í baráttunni um tvö öldungadeildarsæti: í Tennessee og Virginíu og getur farið á hvorn veginn sem er. Þessi tvö fylki ráða því hvor flokkurinn fær meirihluta í öldungadeild bandaríska þingsins.

Erlent

35 manns látnir í sjálfsmorðssprengjuárás í Pakistan

Sjálfsmorðssprengjuárás varð að minnsta kosti 35 hermönnum að bana í NV-Pakistan í morgun. 20 til viðbótar eru særðir. Maður sem vafði um sig víða slá hljóp inn í æfingabúðir hermannanna og bar með sér mikið töluvert sprengiefni því sprengingin var kröftug.

Erlent

Repúblikanar halda enn meirihluta í öldungadeild en mjótt er á munum

Demókratar hafa unnið þrjú af þeim sex öldungardeildarsætum sem þeir þurfa til að ná meirihluta í deildinni: í Pennsylvaníu, Rhode Island og Ohio. Einnig ná þeir að halda þeim sætum sem repúblikanar ógnuðu í New Jersey og Maryland. Mjótt er á mununum í Tennessee, Missouri og Virginíu, fylkjunum sem munu skera úr um hver fer með meirihlutann í öldungadeildinni.

Erlent

Úrslit: Demókratar með meirihluta í fulltrúadeildinni

Hvíta húsið hefur staðfest að demókratar eru búnir að tryggja sér meirihluta í neðri deild bandaríska þingsins. Þetta er þetta í fyrsta skipti síðan 1994 sem demókratar hafa meirihluta í fulltrúadeildinni. Erlendar fréttastofur segja demókrata hafa grætt meira en þau 15 þingsæti sem upp á vantaði.

Erlent

Demókratar á siglingu

Spár sjónvarpsstöðva í Bandaríkjunum benda til þess að Demókratar hafi unnið þrjú sæti af Repúblikönum, af þeim fimmtán sem þeir þurfa til að ná meirihluta í fulltrúadeildinni. Demókratar hafa náð öldungadeildarþingsætum í Pensilvaínu, Ohio og á Rhode Island. Repúblikanar leiða hins vegar mjög naumt kapphlaupin um öldungadeildarsætin í Tennessee og Virginíu.

Erlent

Liberman búinn að tryggja sér þingsæti samkvæmt spám

Joseph Lieberman hlýtur endurkjör í fjórða sinn sem öldungadeildarþingmaður Bandaríkjaþings. Lieberman er óháður þingmaður en stuðningur hans við Íraksstríðið kostaði hann stuðning Demókrataflokksins. Samkvæmt spám ABC og NBC fréttastofanna hefur Lieberman sigrað Demókratann Ned Lamont.

Erlent

Demókrötum spáð sigri í 3 af 7 lykilríkjum

Baráttan um meirihlutann í Öldungadeildinni er geysispennandi. Demókrötum er nú spáð sigri í þremur af lykilríkjunum sjö í þessum slag, Ohio, Pennsylvaníu og New Jersey, að sögn sjónvarpsstöðvanna CBS og CNN. Demókratar þurfa því aðeins að vinna þrjú þeirra til viðbótar til að ná meirihlutanum og síðan 14 þingsæti til að ná meirihluta í fulltrúadeild þingsins.

Erlent

Fyrstu úrslit Demókrötum í hag

Demókratar hafa strax unnið nokkra snemmbúna sigra í baráttunni Bandaríkjaþing. Demókratinn Bob Cadey Jr. sigraði í Pensilvaníu í baráttunni um öldungadeildarþingsæti. Í Indíana hefur Demókratinn Brad Ellsworth sigraði Repúblikanann John Hostettler í baráttu um fulltrúardeildarþingsæti.

Erlent

Útgöngukannanir ABC og CNN ill tíðindi fyrir Repúblíkana

Útgöngukönnun CNN á kjörstöðum í Bandaríkjunum sýnir að spillingamál eru einna efst í huga kjósenda sem kosningamál í bandarísku þingkosningunum. 42% kjósenda í könnuninni sögðu að spilling í Washington væri málefni sem þeim þætti sérlega mikilvægt. Niðurstaðan staðfestir neikvæðan hug margra kjósenda til stjórnmálamanna eftir tíð hneykslismál í höfuðborginni, en Repúblíkanar hafa verið viðriðnir flest þeirra að undanförnu.

Erlent

CBS spáir demókrata sigri í lykilríkinu Ohio

Kjörstöðum hefur nú verið lokað eða eru að loka í flestum ríkjunum í austurhluta Bandaríkjanna. Farið er að birta fyrstu útgönguspár og sjónvarpsstöðvarnar eru byrjaðar spá niðurstöðum í einstökum kjördæmum. CBS sjónvarpsstöðin spáir Demókrötum nú t.d. sigri í einu lykilríkjanna í baráttunni um meirihluta í Öldungadeildinni.

Erlent

Fleiri miðaldra karlmenn drekka sig til dauða

Fjöldi þeirra miðaldra karlmanna sem drekka sig til dauða hefur meira en tvöfaldast frá árinu 1991. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Hagstofa Bretlands birti í dag. Aukning á dauðsföllum tengdum áfengisdrykkju hefur orðið hvað mest í hópi karlmanna á aldrinum 35 ára til 54 ára.

Erlent

Býst við að dauðadómnum verði framfylgt innan árs

Nouri Maliki, forsætisráðherra Íraks, býst við að dauðadómnum yfir Saddam Hussein verði framfylgt innan árs. Fréttastofan BBC greinir frá þessu en Maliki býst ekki við að horfið verið frá því að framfylgja dómum vegna þrýstings þar um.

Erlent

Umsátrinu lokið

Ísraelski herinn hefur dregið lið sitt til baka frá bænum Beit Hanoun á Gazaströndinni eftir sex daga langt umsátur. Fimmtíu Palestínumenn og einn Ísraeli liggja í valnum eftir umsátrið.

Erlent

Vandræði á kjörstöðum

Villur í tölvuforritum og reynsluleysi starfsfólks hafa valdið seinkunum á kjörstöðum í þingkosningunum í Bandaríkjunum. Seinkanir hafa orðið í Indíanafylki, Ohio og Flórída þar sem neyðst hefur til þess, á sumum kjörstöðum, að grípa til pappírsatkvæðaseðla.

Erlent

Tekist á um málefni samkynhneigðra

Heitar umræður standa nú yfir á Lögþingi Færeyja um lagafrumvarp sem miðar að því að bæta réttarstöðu samkynhneigðra. Þingheimur skiptist í tvær jafnstórar fylkingar og því er afar erfitt að spá um afdrif málsins.

Erlent

Búist við spennandi kosninganótt

Bandaríski demókrataflokkurinn fær meirihluta í fulltrúadeildinni í þingkosningunum í dag ef marka má skoðanakannanir. Því er spáð að repúblíkanar haldi meirihluta sínum í öldungadeild. Kosningabaráttan hefur verið hörð og hafa demókratar tapað niður nokkru forskoti á síðustu dögum kosningabaráttunnar. Bandaríkjamenn gengu að kjörborðinu í dag til að kjósa milli frambjóðenda til beggja þingdeilda. Kosið er um öll 435 þingsæti í fulltrúadeild og 33 öldungadeildarþingsæti, eða þriðjung þeirra. Auk þess er kosið um fylkisstjóra í 36 fylkjum. Einnig eru greidd atkvæði í nokkrum ríkjum um lagasetningar innan þeirra, meðal annars um hjónabönd samkynhneigðra, rannsóknir á stofnfrumum úr fósturvísum og lágmarkslaun. Þess fyrir utan líta margir á kosningarnar nú sem atkvæðagreiðslu um stefnu Bush stjórnarinnar í Írak og á ýmsum öðrum sviðum. Einhverjir kjósendur sögðust hafa greitt atkvæði gegn ástandinu í Írak, aðrir sögðu þörf á að breyta til í þingdeildunum. Aðrir sögðu þörf á staðfestu í stefnu gagnvart Írak og það viðhorf endurspeglaði val þeirra. Bush Bandaríkjaforseti greiddi atkvæði í Crawford í Texas. Aðspurður sagðist hann búinn að gera upp hug sinn þar sem hann gekk inn á kjörstað í Crawford í Texas. Forsetinn hefur farið fylkjanna á milli síðustu daga til að styðja flokkssystkini í baráttunni við demókrata. Ekki hafa þó allir tekið honum fagnandi og sem dæmi þurfti Bush einn að brýna kjósendur flokksins í Flórída í gær þar sem frambjóðandi repúblíkana til fylkisstjóra þar kaus að reka endahnútinn á kosningabaráttu sína fjarri forsetanum. Hilary Clinton er einn öldungardeildarþingmanna berst fyrir sæti sínu nú. Hún sagðist vonast eftir góðri kosningaþátttöku þar sem margt sé í húfi. Hún segist vona að demókratar fái meirihluta í þingdeildunum. Ekki er þó líklegt að þingmanninum verði að ósk sinni hvað varðar kjörsókn því ekki er búist við að hún fari yfir 40%. Fyrstu kjörstöðum verður lokað um klukkan ellefu í kvöld að íslenskum tíma og má búast við fyrstu tölum upp úr miðnætti. Nánar verður fjallað um kosningarnar í Íslandi í dag hér á eftir og fylgst með úrslitum hér á visir.is

Erlent