Erlent

Tamíltígrar hafna hjálpargagnalest, vilja láta opna veginn

Tamíltígrar á Sri Lanka höfnuðu í dag boði stjórnvalda á Sri Lanka um að senda eina einstaka bílalest með hjálpargögn til norðurhluta eyjunnar sem hefur verið einangraður síðan í ágúst og krefjast þess í staðinn að þjóðvegurinn milli suður- og norðurhluta eyjunnar verði opnaður að fullu á ný.

Erlent

Drulludallurinn kominn útældur til hafnar

Skemmtiferðaskip með nærri 700 fárveika farþega og starfsfólk lagði að bryggju í Flórída í gærkvöldi, eftir vægast sagt eftirminnilega ferð, þó hún hafi varla verið nein skemmtiferð. Á 16 daga ferð yfir Atlantshafið kvörtuðu 530 farþegar og 140 af starfsfólkinu undan niðurgangi og ælupest, hrjáðir af noro-veirunni sem hefur gert Íslendingum lífið leitt undanfarið.

Erlent

Mikil mótmæli skipulögð í Danmörku

Nemendur í viðskiptaskólum vítt og breitt í Danmörku leggja niður nám og umfangsmikil mótmæli eru skipulögð í Kaupmannahöfn í dag, þar sem nemendur munu ganga í breiðfylkingu að þinghúsi Dana í Kristjánsborgarhöllinni. Þetta er hluti af miklum mótmælum og verkföllum framhaldsskólanema og nú viðskiptaskólanema vegna bágs fjárhags framhaldsskólanna í Danmörku.

Erlent

Allsherjarverkfall lamar þjóðfélagið í Bangladess

Allsherjarverkfall er nú í gildi í Bangladess til stuðnings fylkingu stjórnarandstöðuflokka sem krefst þess að ný kjörnefnd verði skipuð fyrir þingkosningar á næsta ári, vegna meintrar spillingar í núverandi kjörnefnd. Forsetinn hélt neyðarfund með bráðabirgðaríkisstjórn í gær en án árangurs.

Erlent

Rússneski njósnarinn nýtur lögregluverndar á sjúkrahúsi

Rússneski njósnarinn Alexander Livtinenko fær lögregluvernd á sjúkrahúsi í Bretlandi þar sem hlúð er að honum eftir að eitrað var fyrir honum í kvöldmat í London. Hann hafði þá snætt með leyndardómsfullum Ítala, sem sagðist hafa undir höndum upplýsingar sem tengdust morðinu á rannsóknarblaðamanninum Önnu Politkovskayu.

Erlent

Telur að brotthvarf Bandaríkjamanna dragi úr ofbeldi í Írak

Utanríkisráðherra Sýrlands sagði í gær að ef ákveðið og tilkynnt yrði hvenær Bandaríkjamenn hyrfu á brott frá Írak, þá myndi draga úr ofbeldinu í landinu. Sýrlenski utanríkisráðherrann er nú í opinberri heimsókn í Írak, sem telst til nokkurra tíðinda, því löndin slitu stjórnmálasambandi árið 1982.

Erlent

Vilja aukið viðskiptafrelsi

Aðildarríki APEC vilja viðræður um aukið frjálsræði í alþjóðaviðskiptum. Ríkin sammæltust um að kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu yrði að stöðva.

Erlent

Sænska stjórnin óvinsæl

Ríkisstjórn bandalags hægri- og miðflokkanna í Svíþjóð er nú orðin óvinsælli en bandalag stjórnarandstöðuflokkanna. Þetta kemur fram í niðurstöðum skoðanakönnunar sem birtar voru í gær.

Erlent

Teknir með 10.000 töflur

Ungverska landamæralögreglan handtók í gær tvo króatíska ríkisborgara fyrir stórfellt eiturlyfjasmygl. Mennirnir reyndu að smygla 10.000 e-pillum auk nokkurs magns af spítti. Söluvirði efnanna er talið um 11 milljónir.

Erlent

Smeygði sér fremst á biðlista

Göran Persson, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, smeygði sér fremst á tuttugu ára biðlista eftir leiguíbúð í miðborg Stokkhólms með einu símtali nýlega. Persson og eiginkona hans, Anitra Steen, fá því leiguíbúðina afhenta í byrjun næsta árs. Langt á undan öllum öðrum. „Óþolandi,“ segir formaður leigusamtakanna, Barbro Engman, við sænska dagblaðið Aftonbladet.

Erlent

Páfi ræddi um Mið-Austurlönd

Ástandið í Mið-Austurlöndum var helsta umræðuefni Þýskalandsforseta, Horst Koehler, og Benedikts páfa XVI þegar þeir hittust í Vatíkaninu á laugardag.

Erlent

Réttmætar sjálfbærar veiðar

Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin World Conservation Trust hafa lýst yfir stuðningi við sjálfbærar hvalveiðar Íslendinga. Samtökin hafa höfuðstöðvar í Sviss og beita sér fyrir „sjálfbærri nýtingu villtra auðlinda náttúrunnar til sjós og lands sem leiðar til náttúruverndar“, eins og segir í fréttatilkynningu.

Erlent

Berjast saman gegn offitu

Sáttmáli um sameiginlega baráttu gegn offitu hefur verið undirritaður af fulltrúum Evrópulanda Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Í sáttmálanum er kallað eftir aukinni samstöðu á milli opinberra aðila, frjálsra félagasamtaka, einstaklinga og fjölskyldna.

Erlent

Drápu trylltan nashyrning

Breskir hermenn, sem villtust við heræfingar í Kenía á föstudag, drápu hvítan nashyrning sem réðst að þeim. Hvítir nashyrningar eru í útrýmingarhættu og aðeins um 170 eftir í Kenía, en hermennirnir sögðust ekki hafa átt annarra kosta völ.

Erlent

Sautján létust í sjálfsmorðssprengjuárás

Sautján verkamenn létust og fjörtíu og níu særðust í sjálfsmorðssprengjuárás suður af Bagdad höfuðborg í Íraks í dag. Róstursamt hefur verið í landinu í dag en að minnsta kosti tuttugu og fjórir vopnaðir menn, klæddir í lögreglubúningum, stormuðu inn á heimili aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraks og rændu honum.

Erlent

Liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi

Breska lögreglan rannsakar hverjir eitruðu fyrir fyrrverandi forystumanni rússnesku leyniþjónustunnar sem leitaði hælis í Bretlandi fyrir sex árum. Hann liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi.

Erlent

Ekki endurlífgun ef fæðist 18 vikum fyrir tímann

Breskir sérfræðingar leggja til að læknar þar í landi grípi ekki til endurlífgunartilrauna á börnum sem fæðast 18 vikum fyrir tímann eða fyrr. Tillagan hefur vakið miklar deilur í Bretlandi. Andstæðingar benda á að læknum beri að lina þjáningar en ekki deyða sjúklinga.

Erlent

Fordæmir ályktun SÞ

Ísraelar fordæma þá ákvörðun Sameinuðu þjóðanna að rannsaka atburðina í Beit Hanoun á Gaza-svæðinu fyrir hálfum mánuði þegar hátt í tuttugu almennir borgarar týndu lífi í loftárás Ísraelshers á íbúðarhús. Ísraelsher hætti við árás á hús á Gaza í morgun þegar mörg hundruð Palestínumenn slógu skjaldborg um það.

Erlent

Aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraka rænt

Vopnaðir menn rændu í dag aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraka þar sem han var staddur á heimili sínum. Ráðherrann, Síjinn Ammar al-Saffar, situr í ríkisstjórn Nuri al-Malaki og er í Dawaflokknum.

Erlent

Eitrað fyrir njósnara

Breska lögreglan rannsakar nú hvernig eitrað hafi verið fyrir rússneskum njósnara sem leitaði hælis í Bretlandi fyrir sex árum. Hann liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi.

Erlent

Gefin saman í ítölskum miðaldakastala

Hollywood-stjörnurnar Tom Cruise og Katie Holmes gengu í það heilaga á Ítalíu í gær. Þetta var staðfest um kl. 19:30 í gærkvöldi. Fjölmargar stjörnur voru viðstaddar athöfnina en knattspyrnukappinn David Beckham varð frá að hverfa að kröfu þjálfara síns hjá Real Madrid.

Erlent

Bretar og Pakistanar taka höndum saman

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Pervez Musharraf, forseti Pakistans, samþykktu á fundi sínum í morgun að styrkja samstarf ríkjanna í baráttunni við hryðjuverkamenn. Blair og Musharraf hittust til fundar í Lahore í Austur-Pakistan.

Erlent

Sjálfsvígsárás í Hillah

Minnst 22 féllu og rúmlega 40 særðust þegar bílsprengja sprakk nærri hópi farandverkamanna í bænum Hilla í Suður-Írak í morgun. Að sögn lögreglu var sendibíl ekið að hópnum og sprakk bíllinn í loft upp þegar mennirnir flykktust að honum. Flestir hinna látnu voru sjíar. Árásir sem þessar eru tíðar í Hillah.

Erlent

Myrti föður, sambýliskonu og son

Ódæðismaðurinn sem myrti þrjá úr fjölskyldu sinni í Noregi í gær ræddi við einn ættingja sinn í síma rétt áður en hann svipti sig lífi. Norska lögreglan upplýsti þetta í morgun. Ekki fæst þó gefið upp hvern hann ræddi við eða um hvað. Fórnarlömb mannsins voru faðir hans, sambýliskona og fjórtán ára sonur.

Erlent

Hættu við árás

Ísraelsher hætti við loftárás á hús í Jabalya-flóttamannabúðunum á Gaza-svæðinu í morgun. Mörg hundruð Palestínumenn höfðu slegið skjaldborg um húsið.

Erlent

Beckham mætti ekki

Hollywood-stjörnurnar Tom Cruise og Katie Holmes gengu í það heilaga í gær. Athöfnin fór fram í miðaldakastala í Bracciano á Ítalíu. Við athöfnina var farið að kennisetningum Vísindakirkjunnar sem Cruise tilheyrir. Margt frægra var við athöfnina en knattspyrnukappinn David Beckham varð frá að hverfa því hann var kallaður aftur til Spánar. Hann mun hafa haldið til Rómar í óþökk þjálfara síns hjá Real Madrid. Viktoría kona hans mætti því ein í brúðkaupið.

Erlent

Svipti sig lífi eftir dráp á fjölskyldu sinni

Lögregla í Noregi telur sama manninn vera ábyrgan fyrir þremur morðum sem áttu sér stað í Vestfold fylki í Noregi í gær. Morðinginn tók líf sitt eftir að lögregla hafði tvívegis skotið hann í fótinn á flótta. Þetta kom fram á vef Aftenposten.

Erlent

Samstarf gegn hryðjuverkum

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fór til Pakistan í gær til viðræðna við Pervez Musharraf, forseta landsins, um hvernig hægt sé að stemma stigu við för hryðjuverkamanna milli landanna. Einnig bar stríðið í Afganistan á góma.

Erlent

Líbía lætur 19 fanga lausa

Stjórnvöld í Líbýu slepptu nýlega nítján arabískum föngum úr haldi, að sögn sýrlenskra mannréttindasamtaka. Fangarnir höfðu setið í fangelsi í sextán ár, en þeir sættu lífstíðardómi fyrir samsæri um að steypa yfirvöldum af stóli. Tveir höfðu þegar dáið í fangelsi.

Erlent