Erlent

Scaramella ekki í lífshættu

Mario Scaramella, ítalski öryggissérfræðingurinn sem fundaði með Alexander Litvinenko daginn sem hann veiktist, fékk mun minni skammt af geislavirka efninu pólóníum í sig en Litvinenko og hefur efnið engin áhrif haft á heilsu Scaramella. Sjúkrahús í Lundúnum þar sem Scaramella var prófaður sagði þetta í tilkynningu nú fyrir skömmu.

Erlent

South Park er heimspekilegur þáttur?

Nýlega var gefin út heimspekibók sem fjallar um South Park sjónvarpsþættina. Hún er hins vegar ekki að gera lítið úr þáttunum heldur fjallar bókin um að South Park þættirnir séu í raun og veru mjög í ætt við heimspeki kunnra fræðimanna eins og John Stuart Mills, sem skrifaði Frelsið, og Sókratesar.

Erlent

Evrópusambandið og Rússar ræðast við

Búist er við því að stórveldafundur verði í næstu viku þar sem rætt verður um hvernig þær refsiaðgerðir sem á að setja á Íran verði en þetta sögðu utanríkisráðherrar Rússlands og Evrópusambandsins, Sergey Lavrov og Javier Solana, í dag. Rússar hafa gefið til kynna að þeir séu því fylgjandi að settar verði þvinganir á Íran til þess að koma í veg fyrir að þeir þrói kjarnavopn.

Erlent

Pólóníum í ættingja Litvinenkos

Leifar af geislavirka efninu pólóníum hafa fundist í kvenkyns ættingja Alexander Litvinenko, hinum fyrrverandi rússneska njósnara, sem var myrtur í síðasta mánuði. Hún er þó ekki talin vera í bráðri hættu þar sem magnið sem í henni fannst var það lítið og var hún ekki lögð inn á sjúkrahús.

Erlent

SÞ að sjá um kosningar í Nepal

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna brást fljótt við hjálparbeiðni frá stjórnvöldum og uppreisnarmönnum í Nepal um að samtökin myndu taka að sér að sjá um væntanlegar kosningar þar í landi sem og umsjón með herjum og vopnum beggja aðila.

Erlent

Rússar og Aserar deila

Forseti Asera, Ilham Aliyev, sagði í dag að Aserbaídsjan myndi draga mikið úr olíuflutningum sínum í gegnum rússneskt landsvæði vegna þess að Rússar ætla sér að minnka það gas sem Aserbaídsjan fær frá þeim. Tilkynningin frá Rússum kom stuttu eftir að Aserar ákváðu að auka gasframleiðslu sína til þess að mæta aukinni gasþörf í Georgíu eftir að Rússar minnkuðu sendingar sínar þangað.

Erlent

Á fimmta hundrað manns taldir af

Óttast er að yfir 400 manns hafi farist þegar fellibylurinn Durian gekk yfir Filippseyjar í gær. Við rætur eldfjallsins Mayon lentu heilu þorpin undir miklum aur- og grjótskriðum.

Erlent

Hundruð þúsunda mótmæltu

Staða líbönsku ríkisstjórnarinnar veiktist enn frekar í dag þegar hundruð þúsunda stuðningsmanna Hizbollah-samtakanna fylktu liði í Beirút og kröfðust afsagnar hennar. Fólkið ætlar ekki að láta af mótmælum fyrr en stjórnin er öll.

Erlent

Glæpamenn vegna heilagalla

Líffræðilegur galli í blóðflæði í heilanum, frekar en andlegt ástand, gæti útskýrt af hverju sumt fólk verður glæpasjúkt. Vísindamenn frá Kings College í London fylgdust með viðbrögðum sex síbrotamanna, sem höfðu framið morð, nauðganir og alvarlegar líkamsárásir, á meðan þeim voru sýndar myndir af hræddum andlitum.

Erlent

4 milljarðar í skaðabætur

Rómversk-kaþólska kirkjan í Los Angeles, sem er sú stærsta sinnar tegundar í Bandaríkjunum, hefur sæst á að borga 60 milljónir dollara, eða um 4 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur í alls 45 kynferðisafbrotamálum sem höfðuð voru gegn prestum hennar.

Erlent

Norðmenn að veiða 1.052 hvali á næsta ári

Norskir hvalveiðimenn fengu í dag leyfi til þess að veiða allt að 1.052 hvali á næsta ári sem er mesti kvóti undanfarna tvo áratugi. Greenpeace fordæmdi veiðarnar og sögðu kvótann tilgangslausann þar sem aðeins hefðu veiðst um 546 hrefnur á þessu ári.

Erlent

Bush hittir leiðtoga síta í Írak

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, mun á mánudaginn halda fund með einum helsta leiðtoga síta múslima í Írak, Abdul Aziz al-Hakim. Munu viðræðurnar fara fram í Hvíta húsinu í Washington. Mikil spenna og átök hafa verið undanfarið á milli súnní og síta múslima í Írak og er þetta liður í átaki Bush varðandi ástandið í Írak.

Erlent

Hundruð þúsunda mótmæla í Líbanon

Hundruð þúsunda Líbana fóru út á götur Beirút í dag til að mótmæla sitjandi ríkisstjórn Fúad Siniora, sem nýtur stuðnings Bandaríkjamanna og kröfðust afsagnar hans.

Erlent

Pólon finnst í líkama annars manns

Talsvert magn af póloni 210, efninu sem varð njósnaranum fyrrverandi Alexander Litvinenko að bana, hefur fundist í líkama Marios Scarabella, ítalsks fræðimanns sem þekkti Litvinenko. Þeir snæddu hádegisverð daginn sem Litvinenko var lagður inn á sjúkrahús með eitrunareinkenni.

Erlent

Aldrei fleiri fallið í Írak en nú í nóvember

Fjöldi látinna í Írak virðist hafa aukist um 44% í nóvembermánuði frá metmánuði í október. Fram kemur í upplýsingum frá íraska heilbrigðisráðuneytinu að 1.850 manns létust í átökum í Írak í nóvember, sem er þrisvar sinnum fleiri en í janúar.

Erlent

Grímuklæddur maður stakk barn til bana

Grímuklæddur maður stakk grunnskólabarn til bana í skóla í Hollandi í dag. Lögregla neitar að svo stöddu að gefa nokkrar upplýsingar aðrar en þær að barnið hafi dáið eftir ofbeldisglæp og að árásarmaðurinn sé í varðhaldi. Íbúi nærri skólanum segir að maðurinn hafi verið faðir fórnarlambsins en það hefur ekki fengist staðfest.

Erlent

Tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs liggja fyrir

Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs liggja nú fyrir. Fulltrúar landanna í dómnefnd hafa tilnefnt 12 bækur eftir norræna höfunda. Í ár eru tilnefnd verk bæði frá Færeyjum og málsvæði Sama. Engar tilnefningar bárust frá Grænlandi. Handhafi Bókmenntaverðlaunanna 2007 verður valinn á fundi dómnefndarinnar á Íslandi í byrjun mars.

Erlent

Tveir úkraínskir ráðherrar látnir fjúka

Úkraínska þingið samþykkti í dag vantraustsstillögur með öruggum meirihluta bæði á utanríkisráðherrann Borys Tarasyuk og innanríkisráðherrann Yuri Lutsenko. Báðir eru þeir nánir samstarfsmenn Yuschenkos forseta, en forsetinn og appelsínugula byltingin hans hafa glatað mestu af þeim vinsældum sem kom Yuschenko til valda árið 2004.

Erlent

Þúsundir hermanna í viðbragðsstöðu í Beirút

Þúsundir líbanskra hermanna og lögreglumanna eru þegar komnir á vaktina í miðborg Beirút, þar sem Hisbollah-hreyfingin hefur kallað stuðningsmenn sína til sitjandi mótmæla gegn ríkisstjórninni, eða þess sem eftir er af henni, sem nýtur stuðnings Vesturlanda. Mótmælin byrja formlega klukkan eitt eftir hádegi að íslenskum tíma.

Erlent

Verkfall í almenningssamgöngum á Ítalíu

Starfsmenn almenningssamgangna um gjörvalla Ítalíu eru í eins dags verkfalli í dag, sem hamlar neðanjarðarlestakerfum, sporvögnum og rútusamgöngum. Þetta hefur hins vegar ekki áhrif á lestarsamgöngur í landinu. Síðast fór samgöngustarfsfólkið í verkfall þann 17. nóvember og þar á undan þann 6. október.

Erlent

Alþjóðlegi alnæmisdagurinn í dag

Í dag er alþjóðlegi alnæmisdagurinn. Sjúkdómurinn sem greindist fyrst fyrir tuttugu og fimm árum er orðinn eitt af stærstu heilbrigðisvandamálum okkar tíma. Tuttugu og fimm milljónir manna hafa látist úr alnæmi og fjörtíu milljónir til viðbótar sýkst.

Erlent

Miðasala hafin á Hróarskeldu

Þeir sem misstu af miðum á Hróarskelduhátíðina síðasta sumar geta nú drifið sig á netið og tryggt sér aðgang að sælunni næsta sumar. Uppselt var á hátíðina í fyrra, en þó ekki fyrr en nær dró hátíðinni. Ekkert hefur verið gefið upp um þau atriði sem verða á hátíðinni þó að skipuleggjendurnir hugsi langt fram í tímann og stærstu atriðin séu bókuð með a.m.k. árs fyrirvara.

Erlent

Snjóbylur veldur usla í Bandaríkjunum

Fyrsti snjóbylur vetrarins gekk yfir miðvesturríki Bandaríkjanna í gær með tilheyrandi töfum á umferð bæði í lofti og á landi. Þá var einnig gripið til þess að loka skólum vegna ofankomu og frosts sem náði allt frá Texas og Oklahoma til Michigan.

Erlent

Maliki telur írakskar sveitir tilbúnar um mitt ár

Sérstök nefnd á vegum bandarískra stjórnvalda í málefnum Íraks leggur til að hluti af hersveitum Bandaríkjanna verði kallaður heim sem allra fyrst og að aukin völd verði færð í hendur írakskra öryggissveita án þess þó að tilgreina það frekar.

Erlent