Erlent
Pabbi Línu fær nýjan titil Erlent 7.12.2006 10:38 Lavrov segir eitrunarmálið ekki skaða samskipti Breta og Rússa Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði í dag að eitrunarmálið hefði ekki skaðað stjórnmálatengsl Bretlands og Rússlands. Erlent 7.12.2006 10:15 Indíánar kaupa Hard Rock Seminole Indíánar í Florida hafa keypt Hard Rock veitingahúsa- og spilavítakeðjuna fyrir tæpa sjötíu milljarða króna. Seljandi er breska Rank samsteypan. Erlent 7.12.2006 10:10 Ísraelska hermanninum brátt sleppt Ísraelska hermanninum sem var rænt af palestínskum vígamönnum í júní verður hugsanlega sleppt á næstunni en þetta sagði Hosni Mubarak, foresti Egyptalands, í blaðaviðtali í morgun. Erlent 7.12.2006 09:53 Hnífaárásum fjölgar í Lundúnum Hnífaárásum í Lundúnum hefur fjölgað á ný, eftir að hafa fækkað í kjölfar mikils átaks gegn hnífaburði, í sumar. Bannað er að bera hnífa í Bretlandi og á meðan á átakinu stóð var yfir eitthundrað þúsund hnífum skilað inn til lögreglunnar, víðsvegar um landið. Erlent 7.12.2006 09:52 « ‹ ›
Evrópusambandið hafnar tilboði Tyrkja Evrópusambandið hefur hafnað tilboði Tyrkja um að opna eina höfn og einn flugvöll fyrir umferð til og frá Kýpur. Tyrknesk stjórnvöld lögðu tilboðið fram í þeirri von að það myndi liðka fyrir inngöngu Tyrklands í Evrópusambandið, en aðildarviðræðum var nýlega hætt og þá meðal annars vegna afstöðu Tyrkja til Kýpur. Erlent 8.12.2006 06:58
Kaffiárgangurinn '77 frá Brasilíu Brasilíumenn treysta nú á að árgangasnobb vínáhugamanna geti smitast yfir í kaffi og kaffisekkirnir seljist dýrar eftir því sem þeir eru eldri. Brasilíumenn eiga nefnilega sitt kaffifjall eins og Íslendingar hafa átt fjöll af ýmsum landbúnaðarafurðum, - og kaffiverð er með hæsta móti um þessar mundir. Erlent 7.12.2006 22:55
Rasið ekki um ráð fram í Írak Bandarískur hershöfðingi ráðlagði stjórnvöldum í dag að auka ekki þjálfun íraskra öryggissveita í einum rykk nema að íhuguðu máli. Skýrsla Íraksnefndar sem birt var í gær mælir með því að þjálfun hersveita verði aukin upp í 10-20 þúsund sveitir, frá 3.000-4.000 núna. Erlent 7.12.2006 22:39
Fyrrum forsætisráðherra segir að eitrað hafi verið fyrir sér Yegor Gaidar, fyrrverandi þingmaður í Rússlandi, sem einnig gegndi embætti forsætisráðherra um skamma hríð árið 1992, segist sannfærður um að andstæðingar rússneskra yfirvalda hafi eitrað fyrir sér. Það sé skýringin á skyndilegum og alvarlegum veikindum hans þann 24. nóvember. Erlent 7.12.2006 22:06
Klinsmann mun ekki þjálfa Bandaríkjamenn Jürgen Klinsmann dró sig út úr viðræðum um framtíð hans sem landsliðsþjálfari Bandaríkjamanna í fótbolta í dag. Ágreiningur um völd og peninga höfðu hamlað viðræðunum sem höfðu staðið yfir í nokkra mánuði, en svo virtist sem eitthvað væri að draga saman með Klinsmann og fótboltayfirvöldum vestra i vikunni. Erlent 7.12.2006 21:38
Bretaprins sparar bensínið Umhverfisvitundin er í tísku núna í Bretlandi og kóngafólkið gengur á undan með góðu fordæmi. Karl Bretaprins ætlar að leggja einkaþotum og -þyrlum og taka sér frekar far með áætlunarflugfélögum, lestum eða sparneytnum bílum. Erlent 7.12.2006 21:22
Samband milli malaríu og alnæmis Vísindamenn telja að tengsl séu á milli útbreiðslu malaríu og alnæmisveirunnar í Afríku. Í niðurstöðum þeirra sem birtast í nýjasta tímariti vísindatímaritsins Science kemur í ljós að þeir sem sýktir eru af malaríu séu mun líklegri til að sýkja bólfélaga sinn af HIV-veirunni við kynmök. Erlent 7.12.2006 20:01
Mikið magn sprengiefna í miðaldabæ í Svíþjóð Tíu hús voru rýmd í miðaldaborginni Visby í Svíþjóð eftir að lögreglan fann mikið magn sprengiefna í húsi þar í borg í gærkvöldi, þar sem góðkunningi lögreglunnar var til húsa. Auk sprengiefna fundust í húsinu eldfim efni og eiturlyf. Visby er stærsta borg eyjunnar Gotlands, sem er undan suðausturströnd Svíþjóðar. Erlent 7.12.2006 20:00
Vitni í Litvinenko-málinu ekki við dauðans dyr Lögfræðingur heldur því fram að Dmitry Kovtun, eitt aðalvitna í morðrannsókn á Alexander Litvinenko, sé ekki í lífshættu og ber til baka fréttir frá því vyrr í dag, af því að hann hafi fallið í dá í dag og sé við dauðans dyr. Andrei Romashov er lögfræðingur annars mikilvægs vitnis í morðrannsókninni og segist hann hafa talað við Kovtun í kvöld. Erlent 7.12.2006 19:42
Staðfest að lögregla elti drengina í dauðann Rannsóknarskýrsla innra eftirlits frönsku lögreglunnar gagnrýnir lögreglumenn fyrir vangá sem á síðasta ári eltu tvo drengi inn í rafmagnsskúr þar sem þeir létu lífið, segir lögmaður fjölskyldna drengjanna. Skýrslan var birt í dag og segir þar að lögreglumennirnir hafi ekki gripið til nauðsynlegra varúðarráðstafana. Erlent 7.12.2006 19:30
Líf á Mars? Vísindamenn hafa fundið merki um rennandi vatn á Mars. Uppgötvunin eykur verulega líkur á að líf sé að finna á rauðu plánetunni enda er vatn ein af höfuðforsendum þess. Erlent 7.12.2006 18:57
Óttast að tugmilljónir séu tapaðar Óvissa ríkir um sölu á íslenskum landbúnaðarvörum í Bandaríkjunum eftir að verslanakeðjan Whole Foods, sem er sú stærsta í heiminum á sínu sviði, ákvað að hætta markaðssetningu á þeim vegna hvalveiða Íslendinga í atvinnuskyni. Tugmilljónir króna eru farnar í súginn segir forstjóri matvælafyrirtækisins Norðlenska. Erlent 7.12.2006 18:45
Bush vill ekki tala við Írana eða Sýrlendinga Bush Bandaríkjaforseti vill ekki sjá viðræður við Íran og Sýrland á næstunni, eftir fund hans með Blair, forsætisráðherra Bretlands, í Hvíta húsinu í dag. Leiðtogarnir tveir voru sammála um að stefnubreytingar væri þörf í Írak en voru ekki yfir sig hrifnir af að vingast við gamla fjandmenn. Erlent 7.12.2006 18:11
Annar Rússi í lífshættu vegna geislunar Annar Rússi, Dmitry Kovtun, er í lífshættu vegna póloneitrunar, sem er sama geislavirknin og varð njósnaranum fyrrverandi, Alexander Litvinenko, að bana þann 24. nóvember. Rússneska Interfax-fréttastofan hefur þetta eftir ónefndum heimildarmönnum. Dmitry Kovtun hitti Litvinenko þann 1. nóvember, sama dag og eitrað var fyrir Litvinenko. Erlent 7.12.2006 17:44
Vitnaleiðslur um dauða Díönu fyrir opnum dyrum Vitnaleiðslur fyrir réttarrannsókn á dauða Díönu prinsessu af Wales munu fara fram fyrir opnum dyrum, samkvæmt kröfu Mohameds al Fayeds, föður Dodis al Fayeds, sem einnig lést í slysinu. Þar verður ákveðið hvenær réttarhöld hefjast, sem og hvort dauðsföll Dodis og Díönu verða rannsökuð saman eða í sitt hvoru lagi. Erlent 7.12.2006 17:30
Mary J. Blige tilnefnd til flestra Grammy-verðlauna R&B söngkonan Mary J. Blige trónir á toppnum með flestar tilkynningar fyrir Grammy verðlaunin en tilnefningarnar voru tilkynntar í dag. Rokksveitin kaliforníska Red Hot Chili Peppers er tilnefnd til sex verðlauna. Úrslitin sjálf verða tilkynnt með glamúr og glans í Los Angeles í Kaliforníu þann 11. febrúar næstkomandi. Erlent 7.12.2006 17:15
Brasilískir Kárahnjúkar Umhverfisverndarsinnar, fiskimenn, gúmmíkvoðusafnarar og Indíánar í vesturhluta Brasilíu hafa tekið höndum saman í baráttu gegn byggingu 560 milljarða króna vatnsorkuvers. Erlent 7.12.2006 16:35
Af hverju ljúga hjólreiðamenn að löggunni ? Þýskur hjólreiðamaður hefur viðurkennt, fyrir lögreglunni, að hann hafi logið þegar hann sagði að sex unglingar hefðu ráðist á sig, og veitt sér áverka. Maðurinn kvaðst hafa barist á móti og tekist að hrekja árásarmennina á flótta. Þeir hefðu hlaupið í gegnum limgerði og horfið. Erlent 7.12.2006 15:50
Gleðilega sekt Hvað gefur maður þeim sem á allt, í jólagjöf ? Ef þið byggjuð í Hollandi, væri til dæmis hægt að gefa gjafakort sem nær yfir sektir fyrir hraðakstur og önnur umferðarbrot. Erlent 7.12.2006 14:12
Sveinki meðal fiskanna í sædýrasafni í Tókýó Fiskarnir í einu af sædýrasöfnum Tókýóborgar fengu skemmtilega heimsókn í morgun. Þar var á ferðinni sjálfur jólasveinninn sem hafði brugðið sér í kafarabúning til að vitja þeirra. Erlent 7.12.2006 13:15
Framkvæmdastjórn ESB segir framlag Tyrkja jákvætt Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir þá ákvörðun tyrknesku ríkisstjórnarinnar um að opna hafnir sínar á Kýpur jákvætt framlag til aðildarviðræðnanna sem nú standa yfir. Erlent 7.12.2006 13:00
Bush og Blair ræða um Írak í dag Hernaðurinn í Írak verður aðalumræðuefnið á fundi þeirra George Bush og Tony Blair í Washington í dag. Skýrsla ráðgjafarnefndar Bandaríkjaforseta segir ástandið þar afar slæmt en enn þá sé tími til úrbóta. Erlent 7.12.2006 12:30
Múslimaráð Sómalíu hafnar þátttöku friðargæsluliða Múslimaráðið sem ræður ríkjum í stórum hluta Sómalíu hefur hafnað því að Sameinuðu þjóðirnar sendi þangað friðargæslulið og segjast ætla að berjast gegn því af öllu afli ef til þess kemur. Erlent 7.12.2006 11:53
Ísraelar hafa ekki áhyggjur af skýrslu Íraksnefndarinnar Forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, útilokaði í dag viðræður við Sýrland í náinni framtíð og bjóst hann heldur ekki við því að verða var við aukinn þrýsting frá Bandaríkjunum þess efnis þrátt fyrir skýrslu Íraksnefndarinnar sem kom út í gær en hún bendir á að ef einhver árangur á að nást í friðarumleitunum í Mið-Austurlöndum verði að huga að málefnum Ísraels. Erlent 7.12.2006 11:04
Mútuþægni mikið vandamál í þróunarlöndum Obinberir starfsmenn sem þiggja mútur eru gríðarlegt vandamál í þróunarlöndunum og jafnvel nokkrum Evrópusambandslöndum samkvæmt nýrri könnun sem frjálsu félagasamtökin Transparency International stóð að. Erlent 7.12.2006 10:45
Lavrov segir eitrunarmálið ekki skaða samskipti Breta og Rússa Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði í dag að eitrunarmálið hefði ekki skaðað stjórnmálatengsl Bretlands og Rússlands. Erlent 7.12.2006 10:15
Indíánar kaupa Hard Rock Seminole Indíánar í Florida hafa keypt Hard Rock veitingahúsa- og spilavítakeðjuna fyrir tæpa sjötíu milljarða króna. Seljandi er breska Rank samsteypan. Erlent 7.12.2006 10:10
Ísraelska hermanninum brátt sleppt Ísraelska hermanninum sem var rænt af palestínskum vígamönnum í júní verður hugsanlega sleppt á næstunni en þetta sagði Hosni Mubarak, foresti Egyptalands, í blaðaviðtali í morgun. Erlent 7.12.2006 09:53
Hnífaárásum fjölgar í Lundúnum Hnífaárásum í Lundúnum hefur fjölgað á ný, eftir að hafa fækkað í kjölfar mikils átaks gegn hnífaburði, í sumar. Bannað er að bera hnífa í Bretlandi og á meðan á átakinu stóð var yfir eitthundrað þúsund hnífum skilað inn til lögreglunnar, víðsvegar um landið. Erlent 7.12.2006 09:52