Erlent

Óttast farsóttir

Mikil flóð í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, hafa kostað níu mannslíf og hrakið tvö hundruð þúsund manns af heimilum sínum. Gríðarleg úrkoma hefur verið á þessum slóðum að undanförnu enda stendur regntímabilið sem hæst.

Erlent

Þúsund fallnir á einni viku

Íraska ríkissstjórnin kennir stuðningsmönnum Saddams Hussein um hryðjuverkið í Bagdad í gær sem kostaði 135 mannslíf. Um eitt þúsund manns hafa látið lífið undanfarna viku í sjálfsmorðsárásum, skotárásum og bardögum á milli hermanna og uppreisnarmanna að því er Reuters-fréttastofan hermir.

Erlent

Lögregluþjónn lést í fótboltaóeirðum

Ítalska knattspyrnusambandið hefur hótað því að fresta öllum knattspyrnuleikjum í landinu um óákveðinn tíma eftir að lögreglumaður týndi lífi og yfir 70 manns slösuðust í óeirðum á leik á föstudagskvöld. Óeirðirnar brutust út fyrir utan leikvanginn á leik Sikileyjarliðanna Catania og Palermo.

Erlent

Bush ætlar ekki að bregðast við

George W. Bush Bandaríkjaforseti hyggst ekki bregðast við svartri skýrslu sérfræðinganefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar með því að gangast undir alþjóðlegar skuldbindingar. Ríkisstjórnir um heim allan eru sammála um það að eitt brýnasta verkefni sem heimurinn stendur frammi fyrir sé að bregðast snarlega við og draga úr hlýnun loftslags.

Erlent

Hundrað létust í sprengjuárás

Í það minnsta 105 létust og 225 særðust í gær í einni mannskæðustu árás sem gerð hefur verið í Bagdad frá því að Íraksstríðið hófst. Sjálfsvígssprengjumaður í vöruflutningabíl sprengdi sjálfan sig á Sadriya-útimarkaðinum í hverfi sjía í miðborginni og olli gríðarlegri eyðileggingu.

Erlent

Að minnsta kosti 20 látnir

Að minnsta kosti 20 manns létust í miklu óveðri sem gekk yfir Flórída í fyrrinótt. Ríkisstjórinn í Flórída, sem fór um hamfarasvæðið í gær, lýsti ástandinu þannig að það væri eins og sprengja hefði sprungið á svæðinu.

Erlent

Nautasæði nýtt sem hárnæring

Hárgreiðslumaður í Knightsbridge-hverfinu í London býður viðskiptavinum sínum upp á nýstárlega næringarmeðferð þar sem sæði úr nautum leikur stórt hlutverk.

Erlent

Marglit og daun-ill snjókoma

Björgunarsveitir hafa verið sendar til Omsk-héraðs í Síberíu eftir að illa þefjandi, marglitur snjór féll á um 100 ferkílómetra svæði fyrr í vikunni.

Erlent

Merkel á ferð um Miðausturlönd

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, kom í dag til Kaíró á fyrsta degi sínum í ferðalagi um Miðausturlönd þar sem hún mun ræða stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs.

Erlent

Aðgerðasinnar leggja aftur undir sig hús í Kaupmannahöfn

Lögreglan í Kaupmannahöfn handtók undir kvöld um 80 aðgerðasinna sem lagt höfðu undir sig hús í norðvesturhluta borginnar. Hópurinn, sem berst fyrir nýjum samkomustað í borginni í kjölfar þess að Æskulýðshúsinu svokallaða var lokað, lagði húsið undir sig skömmu eftir hádegi í dag en það eru í eigu Kaupmannahafnarborgar.

Erlent

Mannskæðasta árás ársins í Írak

Hvíta húsið lýsir sjálfsmorðsárásinni í Bagdad í dag þar sem um 135 manns létu lífið og á þriðja hundrað særðist sem grimmdarverki gegn saklausum borgum og heitir því að hjálpa írökskum yfirvöldum að koma á lögum og reglum í borginni.

Erlent

Segist munu binda enda á stríðið í Írak sem forseti

Hillary Clinton, sem hefur boðið sig fram sem forsetaefni demókrata í kosningunum 2008, segist munu binda enda á stríðið í Írak ef hún verði fyrir valinu sem forsetaefni flokksins. Þessu lýsti hún yfir á fundi með átta öðrum sem vonast eftir því að verða forsetaefni demókrata í kosningunum.

Erlent

Stjórnarskrárvarinn réttur til að blóta

Dómstóll í Michigan-ríki í Bandaríkjunum hefur komist að því að lögreglumaður hafi brotið gegn tjáningarfrelsisákvæðum stjórnarskrárinnar með því að handtaka mann fyrir að blóta á almennum borgarafundi.

Erlent

Alþjóðleg umhverfislögregla

Jacques Chirac, Frakklandsforseti, skorar á þjóðir heims að setja umhverfismál í forgang á alþjóðavettvangi. Fjörutíu og sex ríki styðja tillögu Chiracs um nýja umhverfisstofnun sem gæti jafnvel knúið ríki til að framfylgja alþjóðasáttmálum um loftslagsmál.

Erlent

Tuttugu látnir eftir óveðrið í Flórída

Tuttugu hafa nú fundist látnir eftir að óveður gekk yfir miðhluta Flórída í gær. Ríkisstjórinn í Flórída, Charlie Crist, fór um hamfarasvæðið í dag og sá hundruð húsa, fyrirtækja og kirkna í rúst.

Erlent

Ákærðir fyrir að njósna um Egypta í þágu Ísraels

Ríkissaksóknari í Egyptalandi hefur ákært Egypta með kanadískt ríkisfang og þrjá Ísraela fyrir njósnir í þágu Ísraels. Fram kom í máli saksóknarans í dag að Egyptinn, Mohammed Essam el-Attar, hefði verið handtekinn en að hinir þrír væru í Tyrklandi og Kanada og að handtökuskipun hefði verið gefin út á hendur þeim.

Erlent

Veiktust af völdum eiturefnaleka í Kína

Einn lést og yfir 120 hafa verið fluttir á sjúkrahús eftir að andað sér gufum frá eitruðum úrgangi sem lak úr flutningabíl í Hubei-hérðaði í Mið-Kína. Frá þessu greindi kínverska ríkissjónvarpið í dag.

Erlent

Mikið mannfall í bílsprengjuárás í Bagdad

45 eru látnir og 95 særðir eftir að vörubíll fullur af sprengiefni sprakk við fjölfarinn markað í miðborg Bagdad í dag. Sprengingin varð í Sadriya-hverfinu þar sem sjíar eru fjölmennir en sprengjuárásir hafa áður verið gerðar þar.

Erlent

Ráðast gegn talibönum í Musa Qala

Afganskar hersveitir munu með stuðningi hersveita NATO ráðast til atlögu við talibana í bænum Musa Qala í suðurhluta Afganistans að því er fráfarandi yfirmaður NATO-liðsins greindi frá í dag.

Erlent

Átök þrátt fyrir yfirlýst vopnahlé

Til átaka hefur komið milli stuðningsmanna Fatah-hreyfingarinnar og Hamas-liða á Gasaströndinni í dag þrátt fyrir yfirlýst vopnahlé. Tólf særðust snemma í morgun átökum og þá sökuðu Fatah-liðar Hamas um að hafa rænt 40 öryggisvörðum á eftirlitsstöðvum á Gasa.

Erlent

Mannfall í röð bílsprengjuárása í Kirkuk

Fimm eru sagðir látnir og um 40 særðir eftir röð bílsprengjuárása í Kirkuk í Norður-Írak í dag. Sjö sprengjur munu hafa sprungið á nokkrum stöðum í borginni á tveimur klukkustundum og beindust þær meðal annnar að skrifstofum tveggja kúrdískra stjórnmálaflokka sem lokaðar voru í dag.

Erlent

Hundrað þúsund manns flýja heimili sín vegna flóða í Djakarta

Fimm hafa fundist látnir og hundrað þúsund hafa yfirgefið heimili sín vegna flóða í Djakarta, höfuðborg Indónesíu. Þar hefur ringt án afláts í tvo daga og eru stórir hlutar borgarinnar á floti og hefur björgunarlið þurft að notast við báta til að koma nauðstöddum til aðstoðar.

Erlent

Allir vilja breytingar nema Bush

Ríkisstjórnir um allan heim segja brýnt að bregðast snarlega við til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eftir að svört skýrsla sérfræðinganefndar Sameinuðu þjóðanna birtist í gær. Ekki þó George Bush Bandaríkjaforseti sem hyggst ekki gangast undir alþjóðlegar skuldbindingar.

Erlent