Erlent
Svartbjörn fastur upp í tré Það er ekki oft sem nærri 200 kílóa birnir festast upp í trjám, en það gerðist í New Jersey í Bandaríkjunum í gær. Lögreglu brá heldur en ekki í brún þegar tilkynning barst um að svartbjörn sæti fastur í rúmlega 15 metra hæð. Fjölmargir íbúar söfnuðust saman undir trénu til að fylgjast með. Erlent 12.2.2007 19:30
Írak: Mikið mannfall í sprengjuárásum Minnst 80 týndu lífi og 150 særðust í þremur sprengjuárásum í miðborg Bagdad í Írak í dag. Árásirnar voru gerðar um leið og Írakar minntust þess að í dag er ár frá árásum á guðshús sjía-múslima í hinni helgu borg Samarra. Árásin þá varð kveikjan að blóðugum átökum trúarbrota í landinu sem engan enda virðast ætla að taka og hafa kostað þúsundir mannslífa í hverjum mánuði. Erlent 12.2.2007 19:15
Þýskur hryðjuverkamaður fær reynslulausn Þýskur dómstóll hefur ákveðið að láta Birgitte Mohnhaupt, einn forsprakka Rauðu herdeilda Baader-Meinhof, lausa úr fangelsi þar sem hún hefur mátt dúsa í nær aldarfjórðung. Ákvörðunin hefur þegar vakið deilur enda var Monhaupt á sínum tíma lýst sem hættulegustu konu Þýskalands. Erlent 12.2.2007 19:00
Samið við áhöfn Castor Star Samningar hafa tekist á milli áhafnar og eigenda flutningaskipsins Castor Star, sem hefur legið við bryggju á Grundartanga síðan á miðvikudaginn. Skipverjar fá laun sem þeir eiga inni og nýja samninga sem tvöfalda kjör þeirra. Erlent 12.2.2007 18:45
Páfinn gagnrýnir nútímavæðingu samfélagsins Páfinn hefur gagnrýndi í dag lög sem hann sagði ógna fjölskyldunni og samfélaginu. Þar átti hann við lög um fóstureyðingar og líknarmorð. „Engin mannleg lög geta komið í stað þeirra sem skaparinn skrifaði án þess að samfélagið verði valt á fótum sínum.“ sagði Benedikt páfi á ráðstefnu um náttúrulög, eða lög guðs. Kaþólska kirkjan telur þau vera bindandi. Erlent 12.2.2007 18:15
Kosningar í Túrkmenistan fóru vel fram Kosningar fóru fram í Túrkmenistan í gær og virðist sem þær hafi farið vel fram. Þó vantaði mikið upp á, samkvæmt vestrænum stöðlum, til þess að þær gætu talist frjálsar. Búist er við því að Kurbanguly Berdymukhamedov beri sigur úr býtum. Hann hefur verið forseti til bráðabirgða frá láti Saparmurat Niyazov, fyrrum einræðisherra landsins. Erlent 12.2.2007 18:00
Intel með nýjan ofurörgjörva Örgjörvaframleiðandinn Intel tilkynnti í dag að þeir hefðu náð að smíða örgjörva með 80 kjörnum. Örgjörvinn getur framkvæmt svokallað Teraflop, en það er að reikna trilljón skipanir á sekúndu. Þetta er langhraðasti örgjörvi sem hefur verið smíðaður. Erlent 12.2.2007 18:00
Flóðin ekki haft áhrif á starfsemi ÞSSÍ Um eitt hundrað manns hafa farist í flóðum í Mósambík á síðustu dögum en hermenn og hjálparstarfsmenn á þyrlum og bátum hafa flutt á brott um sextíu þúsund íbúa. Flóðin hafa enn sem komið er ekki haft nein áhrif á verkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Mósambík, að sögn Jóhanns Pálssonar umdæmisstjóra ÞSSÍ í Mapútó. Erlent 12.2.2007 17:45
Væn verðbólga Verðbólga á ársgrundvelli í Afríkuríkinu Zimbabwe er nú 1.593,6 prósent og er landið í raun gjaldþrota. Stjórnarstefnu Roberts Mugabes, forseta, er kennt um þessa skelfilegu stöðu, en hann hefur meðal annars rekið hvíta bændur af jörðum sínum og fengið þær svörtum skæruliðum sem ekkert kunna til verka. Erlent 12.2.2007 15:20
Íranar neita vopnasmygli Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, neitaði því í dag að Íranar sæju bardagasveitum í Írak fyrir fullkomnum vopnum. Hann sagði jafnframt að friður myndi ekki komast á í Írak, fyrr en bandarískar og aðrar erlendar hersveitir færu þaðan. Erlent 12.2.2007 15:07
Baader-Meinhof -miskunnarlausir morðingjar Birgitte Monhaupt, sem brátt verður látin laus í Þýskalandi, tilheyrði einum grimmustu hryðjuverkasamtökum sem stofnuð hafa verið í Evrópu. Rauði herinn, sem einnig var kallaður Baader-Meinhof gengið framdi illvirki sín á árunum 1970-1991. Á þeim árum frömdu samtökin 34 morð. Oft myrtu þau fólk sem hafði verið haldið í gíslingu mánuðum saman. Erlent 12.2.2007 14:38
LG-flatskjáir með innbyggðum hörðum disk LG setur brátt á markað sjónvörp með innbyggðum 160 GB hörðum disk. Sjónvarpið getur þá tekið upp all a þættina sem þú missir af. Kassettutækið fæddist og dó, vídeótækið fæddist og dó, og nú er farið að síga á seinni hlutann hjá DVD-spilurunum. Erlent 12.2.2007 14:20
Íhuga að slíta tengsl við Abbas Ísraelar eru að íhuga að slíta öll tengsl við Mahmoud Abbas, hinn hófsama forseta Palestínumanna, ef nýmynduð þjóðstjórn verður ekki við alþjóðlegum kröfum um að ríkisstjórn Palestínumanna viðurkenni tilverurétt Ísraelsríkis og afneiti ofbeldi. Erlent 12.2.2007 14:11
Tölvuleikir bæta sjón Hraðir tölvuleikir, þar sem mikið er um að vera, bæta sjón spilara um allt að 20 prósent. Loksins geta tölvuleikjaunnendur lagt „tölvuleikir bæta samhæfingu handa og augna“-afsökunina á hilluna og byrjað að dásama áhrif þeirra á sjónina. Vísindamenn við háskólann í Rochester í New York-ríki hafa nefnilega komist að því að það að spila tölvuleiki getur haft jákvæð áhrif á sjónina. Erlent 12.2.2007 13:59
Frumgerð flugbíls Terrafugia hefur sótt um einkaleyfi á fyrsta fjöldaframleidda flugbíl veraldar. Terrafugia var stofnað af nemendum Tækniskólans í Massachusetts og síðar gert að fyrirtæki. Hið eina sem fyrirtækinu er ætlað að framleiða er flugbíllinn Transition, sem er í raun flugvél með samanbrjótanlegum vængjum. Erlent 12.2.2007 13:44
Írak: Sprengjuárásir kostuðu minnst 80 manns lífið Talið er að minnst 80 hafi týnt lífi og 150 særst í þremur sprengingum á markaði í miðborg Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Ár er liðið í dag frá sprengjuárás á guðshús sjía-múslima í borginni Samarra. Erlent 12.2.2007 12:45
400 flóttamenn handteknir Nær 400 flóttamenn voru í morgun handteknir í Máritaníu en þeir voru á leið með fragtskipi til Kanaríeyja. Flóttamennirnir eru nú í haldi spænsku lögreglunnar. Fólkið er ýmist frá Afríku eða Asíu. Lögregla í Máritaníu og á Spáni samræmdu aðgerðir og stöðvuðu skipið á leið þess norður eftir vesturströnd Afríku. Erlent 12.2.2007 12:45
Varaforseti Saddam verður hengdur Hæstiréttur í Írak dæmdi í dag Taha Yassin Ramadan, fyrrum varaforseta Saddam Hussein, til dauða. Hann verður að líkindum hengdur fyrir lok mánaðarins. Ramadan var í nóvember dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðin í Dujail sem Saddam var dæmdur til dauða fyrir en eftir áfrýjun var ákveðið að hann skildi líka hengdur. Erlent 12.2.2007 12:43
Fóstureyðingarlöggjöf verður breytt í Portúgal Fóstureyðingarlöggjöf í Portúgal verður breytt þrátt fyrir að þjóðaratkvæðagreiðsla í gær um breytingar á henni hafi ekki verið bindandi. Núgildandi löggjöf hefur verið sú strangasta í Evrópu. Erlent 12.2.2007 12:30
Demókratar vara Bush við Demókratar á Bandaríkjaþingi hvetja Bush-stjórnina til að sýna aðgát þegar Íranar eru sakaðir um að ýta undir ofbeldi í Írak með vopnasmygli og fjármögnun uppreisnarhópa. Öruggar sannanir vanti og ekki sé góð reynsla af því að taka ákvarðanir sem byggi á vafasömum sönnunargögnum. Erlent 12.2.2007 12:15
Ekkert lát á óöld Minnst 59 fórust í tveimur bílsprengjuárásum á Shorja-markaðinn í Bagdad í morgun. Lögregla segir 150 til viðbótar hafa særst. Annars staðar í borginni fórust minnst fimm í annari bílsprengjuárás í morgun. Í gær fórust 30 í sjálfsmorðsárás á lögreglustöð í Tikrit, þar af 21 lögreglumaður. Erlent 12.2.2007 11:07
Liðsmaður Baader-Meinhof látinn laus Þýskur dómstóll hefur úrskurðað að sleppa skuli Birgitte Monhaupt, einum forsprakka Rauðu herdeilda Baader-Meinhof, en hún hefur setið í fangelsi í nær aldarfjórðung. Hún var árið 1982 dæmd í fimmfalt lífstíðarfangelsi fyrir mannrán, morð og hermdarverk. Erlent 12.2.2007 10:56
Obama svarar fyrir sig Barack Obama sem sækist eftir útnefningu demókrata fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum svarar John Howard forsætisráðherra fullum hálsi, en Howard sagði í gær að Obama væri draumaforseti Al Kaída og að loforð hans um að draga herlið Bandaríkjanna frá Írak væri loforð um að færa hryðjuverkamönnum sigur í stríðinu á silfurfati. Erlent 12.2.2007 10:41
Segir flensuna ekki komna frá Ungverjalandi Fuglaflensusmitið sem upp kom á kalkúnabúi Bernard Matthews í Suffolk á Englandi í síðustu viku er ekki komið frá Ungverjalandi. Þetta fullyrðir Andreas Dekany talsmaður landbúnaðarráðuneytisins í Ungverjalandi. Erlent 12.2.2007 10:32
Algjör hasshaus Belgiskur maður var handtekinn fyrir hassmygl frá Hollandi til heimalandsins, vegna þess að það var svo megn hasslykt af honum að aðrir farþegar í lestinni þoldu ekki við. Hollenskir lestarverðir létu belgisku lögregluna vita af manninum, og hans var beðið þegar lestin kom til Antwerpen. Erlent 12.2.2007 10:30
Reyna enn að ná saman um afvopnun Reynt verður áfram að ná samkomulagi í sex ríkja viðræðum um kjarnorkumál Norður-Kóreu. Í morgun var ákveðið að halda áfram, þó viðræðunum hafi átt að ljúka í gær. Viðræðurnar fóru vel af stað þegar þær hófust á fimmtudag en strönduðu á kröfum Norður-Kóreumanna um orkuaðstoð gegn kjarnorkuafvopnun. Erlent 12.2.2007 10:08
Strípalingar í vanda Þrír ungir strípalingar lentu í nokkrum vanda eftir að þeir höfðu hlaupið allsberir um fínann veitingastað í Washington. Þeir komu keyrandi að veitingastaðnum íklæddir einungis höttum og skóm. Til þess að vera vissir um að komast undan, skildu þeir bílinn eftir í gangi. Erlent 12.2.2007 10:02
Lögregla á hælum Zupljanin Lögregla í Bosníu réðist í morgun á heimili og vinnustað serbnesks bankastarfsmanns sem er grunaður um að hafa aðstoðað Stojan Zupljanin, grunaðan stríðsglæpamann, að felast. Zupljanin er einn sex Serba sem er eftirlýstur af Sameinuðu þjóðunum fyrir stríðsglæpi. Hann var ákærður árið 1999 fyrir glæpi gegn múslimum og Króötum í vesturhluta Bosníu í stríðinu 1992-95. Erlent 12.2.2007 09:56
Tveimur Þjóðverjum rænt Tveggja Þjóðverja er saknað í Írak og segir Frank-Walter Steinmeier utanríkisráðherra Þýskalands líklegt að þeim hafi verið rænt. Hann greindi ekki frá nöfnum mannana en sagði að allt yrði gert til að tryggja að þeim yrði bjargað. Erlent 12.2.2007 09:47
Fresta umdeildum framkvæmdum Umdeildum framkvæmdum við Al-Aqsa moskuna á musterishæðinni í Jerúsalem hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Framkvæmdirnar höfðu vakið reiði meðal Palestínumanna sem hafa mótmælt þeim harðlega undanfarna daga þannig að komið hefur til átaka á milli mótmælenda og lögreglu. Erlent 12.2.2007 09:19