Erlent

Correa fær að halda stjórnarskrárþing

Forseti Ekvador, Rafael Correa, vann í dag mikinn sigur á andstæðingum sínum í þinginu. Þingið samþykkti loks beiðni hans um að fá leyfi til þess að endurskrifa stjórnarskrá landsins. Þingið hafði ávallt verið á móti þeim hugmyndum Correa en hann hefur ekki eiginlegan þingflokk á bak við sig. Hann biðlaði þess í stað til almennings sem mótmæli afstöðu þingmanna og í dag samþykkti þingið loks tillögu Correa.

Erlent

Lausn í kjarnorkudeilu Norður-Kóreumanna

Langvinnri deilu um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreumenn virðist nú lokið með fyrsta skrefi stjórnvalda í Pyongyang að kjarnorkuvopnalausum Kóreuskaga. Samkvæmt nýju samkomulagi verður áætlunin lögð á hilluna í skiptum fyrir eldsneyti.

Erlent

Hvíldarbelgir vinsælir í Bandaríkjunum

Það er ekki amalegt að geta tekið sér miðdegislúr í vinnunni til að hlaða batteríin fyrir átök síðdegisins. Fyrirtæki í Bandaríkjunum hefur hannað sérstaka hvíldarbelgi sem nú eru kynntir hjá hverju stórfyrirtækinu á eftir öðru þar í landi.

Erlent

Ætlar að deyja með reisn

Þrítug bresk kona berst nú fyrir því að læknar í Bretlandi veiti henni meðferð sem mun draga hana til dauða. Hún þjáist af tveimur alvarlegum sjúkdómum og læknar segja hana ekki lifa út árið. Sjálf segist hún vilja ráða brottfarartíma sínum og deyja með reisn.

Erlent

Hvalaverndarsinnar mættu ekki

Nær helmingur aðildarþjóða Alþjóðahvalveiðiráðsins situr ekki aukafund þess í Japan. Þar á að reyna að bæta ákvarðanatökuferli innan ráðsins. Á sama tíma harðna átök verndarsinna og japanska flotans í Suður-Íshafi.

Erlent

al-Kaída að verki í Alsír

Hryðjuverkahópur tengdur al-Kaída hefur lýst ábyrgð á sprengingum í Alsír í dag á hendur sér. Alls sprungu sjö sprengjur í námunda við fjórar lögreglustöðvar. Talið er að sex manns hafi látist og 13 slasast í sprengingunum. Sprengjurnar sprungu samtímis. Sjónvarpsstöðin al-JAzeera skýrði frá þessu í dag.

Erlent

Ólöglegir innflytjendur geta fengið kreditkort

Bank of America er byrjaður að bjóða kreditkort til viðskiptavina sinna sem hafa ekki kennitölu. Undanfarin ár hafa bankar boðið reikninga og jafnvel lán til fólks sem ekki hefur kennitölu . En kreditkort hefur það ekki getað fengið fyrr en nú.

Erlent

Írak lokar landamærum sínum

Írakar ætla að loka landamærum sínum við Sýrland og Íran til þess að reyna að koma í veg fyrir þá öldu ofbeldis sem gengið hefur yfir landið að undanförnu. Einnig á að lengja útivistarbann sem hefur ríkt í höfuðborginni á kvöldin. Báðar aðgerðirnar eru hluti af nýju skipulagi Íraka og Bandaríkjamanna sem á að binda endi á ofbeldið í landinu.

Erlent

Ekki hægt að stöðva Írana

Íranar eiga eftir að geta auðgað nóg af úrani til þess að nota í kjarnorkusprengju og það er lítið hægt að gera til þess að koma í veg fyrir það. Þetta kemur fram í innanhússkýrslu Evrópusambandsins. Financial Times sagði frá þessu á vefsíðu sinni í dag.

Erlent

Þjóðverjar sammála Putin

Tveir af hverjum þremur Þjóðverjum eru sammála Vladimir Putin, forseta Rússlands, um að Bandaríkjamenn stefni að því að verða allsráðandi í heiminum. Putin lét þessi orð falla á ráðstefnu um öryggismál, í Munchen, um helgina. Þetta er samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var fyrir þýska sjónvarpsstöð.

Erlent

„Íranir eru á móti þróun kjarnavopna“

Íranir eru á móti allri þróun kjarnavopna og eru alltaf tilbúnir til viðræðna um kjarnorkuáætlun sína sem er friðsamleg. Þetta sagði Mahmoud Ahmadinejad forseti Írans í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina ABC í morgun.

Erlent

Fjórir fórust í tilræðum í Alsír

Minnst fjórir fórust í sprengjutilræðum við lögreglustöðvar í Alsír í morgun. Ráðist var á þrjár lögreglustöðvar. Á þessu svæði eru átök milli múslimskra skæruliða og öryggissveita algeng og síðast í desember fórust tveir í sjálfsmorðsárás. Talið er líklegt að skæruliðar hafi staðið að árásunum í morgun.

Erlent

Pólitísk skilaboð send með blóði sakleysingja

Nú er ljóst að minnst þrír fórust og tuttugu til viðbótar særðust í sprengjuárásum á tvær smárútur nærri bænum Bikfaya í Líbanon í morgun. Samkvæmt fregnum fyrr í dag var mannfallið meira en nú vilja líbönsk stjórnvöld ekki staðfesta að fleiri en þrír hafi látist en segja vel mögulegt að talan hækki.

Erlent

"Hoppa svo"

Nær einn af hverjum þrem Bretum heldur að konur geti forðast þungun eftir kynmök með því að hoppa upp og niður, strax að þeim loknum. Þetta kom fram í nýrri könnun bresku fjölskylduráðgjafarinnar, sem telur að nauðsynlegt sé að auka kynfræðslu í skólum.

Erlent

Samræmd tilræði í Alsír

Sprengt var við minnst þrjár lögreglustöðvar nærri Algeirsborg í Alsír nú í morgun. Allt lítur út fyrir að þetta séu samræmdar árásir. Ekki hafa borist fregnir af mannfalli. Á þessu svæði eru átök milli múslimskra skæruliða og öryggissveita algeng og síðast í desember fórust tveir í sjálfsmorðsárás.

Erlent

Ætla að loka kjarnaofni

Norður-Kórea hefur samþykkt afvopnun gegn orkuaðstoð. Fulltrúi sendinefndar Kína í viðræðum sex ríkja um kjarnorkumál Norður-Kóreu kynnti nú rétt áðan samning sexveldanna. Samkvæmt heimildum BBC hafa stjórnvöld í Pyongyang samþykkt að slökkva á kjarnaofni í Yongbon í skiptum fyrir 50 þúsund tonn af olíu.

Erlent

Borgar sig að blunda

Að leggja sig í eftirmiðdaginn getur minnkað hættu á hjartasjúkdómum, sérstaklega hjá ungum heilbrigðum karlmönnum. Í grískri rannsókn sem tekið hefur sex ár kemur fram að þeir sem blunda í um hálftíma um miðjan dag minnst þrisvar í viku eru 37% ólíklegri til að látast af völdum hjartakvilla.

Erlent

Níu fórust í sprengingum í Líbanon

Níu fórust í tveimur sprengingum nærri bænum Bikfaya í Líbanon í morgun. Sprengjuárásunum virðist hafa verið beint að farþegarútu á leið til bæjarins. Enn hafa ekki borist fréttir af því hversu margir særðust í árásinni eða hverjir standa að henni. Flestir íbúar Bikfaya eru kristnir.

Erlent

Norður-Kórea láti af kjarnorkuáætlunum

Samningamenn sex ríkja í viðræðum um kjarnorkumál Norður-Kóreu hafa náð samkomulagi, sem bíður nú lokasamþykkis ríkisstjórna ríkjanna. Þetta sagði Christopher Hill aðal samningamaður Bandaríkjastjórnar eftir að viðræðunum lauk í gærkvöldi. Samkomulagið bíður nú samþykki ríkisstjórna sexveldanna.

Erlent

Byssumaður banaði fimm

Byssumaður skaut fimm manns til bana í verslanamiðstöð í Utah-ríki í Bandaríkjunum í gær. Hann féll svo sjálfur, en ekki er vitað enn hvort það var fyrir eigin hendi eða byssukúlum lögreglumanna sem reyndu að stöðva hann.

Erlent

Hörð átök um hvalveiðar

Sea Shepherd-liðar sigldu í gær á japanskt hvalveiðiskip og sköðuðu það svo illa að það þurfti að halda til hafnar. Stjórnvöld í Japan segja Sea Shepherd stunda hryðjuverk.

Erlent

Tölva sem byggir á skammtafræði afhjúpuð á morgun

Kanadíska fyrirtækið D-Wave hefur greint frá því að á morgun muni það sýna fyrstu tölvuna sem byggir á skammtafræði. Tölvur í dag byggjast upp á því að í örgjörvum þeirra eru send merki sem annað hvort tákna 1 eða 0. Tölvur sem byggja á lögmálum skammtafræði senda hins vegar merki sem geta verið 1 og 0 á sama tíma. Það gerir tölvunni kleift að sjá um allt að 64 þúsund útreikninga í einu sem er margfalt meira en tölvur gera í dag.

Erlent

FBI týndi 160 fartölvum

160 fartölvur, þar af tíu sem innihéldu leynileg gögn, týndust í meðförum starfsmanna Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) frá febrúar 2002 til september 2005. Ein af tölvunum innihélt upplýsingar sem gæti hjálpað fólki að bera kennsl á leyniþjónustumenn. Á sama tíma týndust 160 vopn. FBI gat ennfremur ekki sagt með vissu hvort að 51 af þeim fartölvum sem týndust hefðu innihaldið leynileg gögn.

Erlent

Ban Ki-moon reynir að stilla til friðar

Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hringdi í dag í leiðtoga Ísraela, Palestínu og Sádi-Arabíu til þess að hvetja alla aðila að sættast á þjóðstjórn Palestínu og viðurkenna Ísrael. Ban lýsti líka áhyggjum sínum yfir þeim atburðum sem nú eiga sér stað við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem en ísraelsk yfirvöld eru nú að vinna að endurbótum á svæðinu.

Erlent

Grunur um að al-Kaída hafi verið að verki

Tvær sprengingar urðu í dag við herstöð Bandaríkjamanna rétt fyrir utan Tókíó í Japan. Enginn meiddist í þeim en þeir sem rannsaka málið líta svo á að um hugsanlega hryðjuverkaárás hafi verið um að ræða.

Erlent

Haniyeh biður alþjóðasamfélagið um stuðning

Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, sagði í dag að Bandaríkin og önnur lönd sem eru að reyna að miðla málum í Mið-Austurlöndum ættu að hefja aðstoð við Palestínu að nýju. Hann sagði að alþjóðasamfélagið ætti að styðja við bakið á hinni nýmynduðu þjóðstjórn og virða þannig vilja palestínsku þjóðarinnar.

Erlent

Herlögum lýst yfir í Gíneu

Forseti Gíneu, Lansana Conte, lýsti yfir herlögum í landinu í dag til þess að reyna að binda endi á þá ofbeldisöldu sem hefur heltekið landið undanfarna daga. Stéttarfélög hafa staðið fyrir mótmælum gegn Conte í tæpan mánuð.

Erlent