Erlent

Geta ekki unnið fyrir hið opinbera

Atvinnumálaráðherra Danmerkur, Claus Hjort Frederiksen, segir að konur sem neiti að taka í hönd karlmanns eða hylji andlit sitt geti ekki unnið fyrir hið opinbera. Umræðan um konur í múslimskum klæðnaði hefur farið hátt í Danmörkun undanfarna daga.

Erlent

Breski verkamannaflokkurinn tapar miklu fylgi

Verkamannaflokkurinn breski hefur tapað miklu fylgi í sveitastjórnarkosningum í Englandi sem fram fóru í gær. Þá tapaði hann einnig fylgi í þingkosningum í Skotlandi og Wales. Engu að síður tapaði hann ekki jafn miklu fylgi og stjórnmálaskýrendur höfðu spáð.

Erlent

Tveir hermenn reyndu flugrán á Kúbu

Tveir kúbverskir hermenn reyndu í nótt að ræna flugvél á flugvellinum í Havana á Kúbu. Þeir tóku foringja úr hernum í gíslingu og tóku hann af lífi stuttu síðar. Mennirnir tveir voru að reyna að flýja úr hernum. Lögregla reyndi þá að frelsa gísla sem hermennirnir höfðu í haldi og eftir langan skotbardaga náði lögregla að yfirbuga þá.

Erlent

Mótmælendur kröfðust afsagnar Olmerts

Hundrað þúsund manns komu saman í miðborg Tel Aviv í Ísrael í gærkvöldi til að krefjast afsagnar Ehuds Olmerts, forsætisráðherra landsins, vegna stríðsins í Líbanon í fyrra. Svört skýrsla um stríðsreksturinn var rædd á Ísraelsþingi í gær.

Erlent

Frambjóðendur repúblikana taka þátt í kappræðum

Fyrstu kappræður frambjóðenda repúblikana fóru fram í Bandaríkjunum í gær. Stríðið í Írak og réttindi til fóstureyðingar voru á meðal þeirra efna sem mest var rætt um. Kappræðunum lauk með almennum stuðningi við stríðið í Írak.

Erlent

Rætt um öryggisástandið í Írak í Egyptalandi í dag

Í dag fara fram í Egyptalandi umræður um öryggisástandið í Írak. Í Egyptalandi er nú alþjóðleg ráðstefna um málefni Íraks og er þetta síðari dagurinn. Nágrannar Íraks, Sýrland og Íran, munu ræða við fulltrúa Evrópusambandsins og þjóða í G8 hópnum.

Erlent

Úrslitin ráðast á sunnudag

Á sunnudaginn ræðst hvort sósíalistinn Segolene Royal eða hægrimaðurinn Nicolas Sarkozy verður forseti Frakklands næstu árin. Kosningabaráttan náði hámarki í sjónvarpskappræðum á miðvikudaginn.

Erlent

Hvetur Frakka til að kjósa ekki

Jean-Marie le Pen, hinn aldni leiðtogi franskra þjóðernissinna, hvetur fólk til að sitja heima í seinni umferð forsetakosninganna um helgina. Hann tapaði í fyrri umferð kosninganna fyrir sósíalistanum Ségolène Royal og hægrimanninum Nicolas Sarkozy.

Erlent

Tugþúsundir á mótmælafundi

Tugþúsundir Ísraela tóku í gær þátt í mótmælafundi í Jerúsalem, þar sem afsagnar Ehuds Olmerts forsætisráðherra var krafist. En Olmert, sem sætir harðri gagnrýni fyrir það hvernig hann hélt á málum í stríðinu við Hizbolla-skæruliða í Líbanon í fyrra, virðist hafa tekist að hrinda uppreisn gegn sér í eigin flokki.

Erlent

Írakar óska skuldaeftirgjafar

Á tveggja daga alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin er í Egyptalandi og ætlað er að safna hugmyndum, fé og öðrum stuðningi við stöðugleika og uppbyggingu í Írak, átti Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, viðræður við starfsbróður sinn frá Sýrlandi og var það fyrsti fundur háttsettra fulltrúa landanna tveggja um árabil.

Erlent

Þingkosningar ákveðnar 22. júlí

Tyrkneska þingið samþykkti í gær að þingkosningar færu fram hinn 22. júlí næstkomandi, en ákveðið var að boða til þeirra nokkrum mánuðum fyrr en ella til að leysa stjórnarkreppu sem upp er komin í landinu vegna vaxandi spennu milli hersins, „varðhunds“ veraldlegra gilda í tyrkneskum stjórnmálum, og stjórnarflokksins sem á rætur að rekja til íslamistahreyfingar.

Erlent

Fréttir af falli óbreyttra borgara rannsakaðar

Bandaríski herinn rannsakar nú ásakanir þess efnis að fjöldi óbreyttra borgara hafi fallið í átökum bandarískra hermanna og talibana í afganistan. Talsmenn á vegum Sameinuðu þjóðanna og afganskra stjórnvalda segja að um 50 óbreyttir borgarar hafi fallið í bardögum á föstudag og sunnudag í síðustu viku.

Erlent

Obama fær vernd lífvarðarsveitar forsetans

Barack Obama, sem sækist eftir að vera frambjóðandi demókrata í bandarísku forsetakosningunum hefur verið settur undir verndarvæng lífvarðarsveitar forsetans. Ástæður þess að frambjóðandinn fær þessa vernd eru ekki ljósar en bón þess efnis mun hafa komið úr hans eigin herbúðum.

Erlent

Fjölmenn mótmæli í Tel Aviv

Tugir þúsunda mótmælenda, jafnvel um hundrað þúsund, komu saman í miðborg Tel Aviv í Ísrael nú síðdegis til að krefjast afsagnar Ehuds Olmerts, forsætisráðherra, vegna stríðsins í Líbanon í fyrra.

Erlent

Vill fá skuldir Íraks felldar niður

Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, hefur farið þess á leit við þjóðir heims að þær felli niður skuldir íraska ríkisins. Þetta kom fram í ræðu hans við upphaf ráðstefnu um málefni Íraks sem hófst í Sharm el-Sheik í Egyptalandi í dag og lýkur á morgun.

Erlent

Sarkozy stóð sig betur að mati kjósenda

Franskir kjósendur telja flestir að hægrimaðurinn Nicolas Sarkozy hafi haft betur í baráttu sinni við sósíalistann Segolene Royal í sjónvarpskappræðum í gærkvöldi. Royal missti stjórn á skapi sínu og sagði Sarkozy það til marks um að hún ætti ekkert erindi í forsetaembættið. Kosið verður á sunnudaginn.

Erlent

Frakkar spara vatnið

Gripið hefur verið til vatnsskömmtunar í sjö af 96 sýslum Frakklands og þar í landi óttast menn sumarþurrka. Landbúnaðarráðuneytið segir að nú þegar sé neikvæð staða á vatnsbirgðum í nokkrum sýslum.

Erlent

100 tonna risaeðla í Ástralíu

Steingervingar af tveim risastórum risaeðlum hafa fundist í Ástralíu. Eðlurnar eru af tegundinni Titanosaurus og langstærsta tegund sem fundist hefur í landinu til þessa. Þær hafa verið um 100 tonn að þyngd og milli 26 og 35 metra langar. Þær reikuðu um sléttur Ástralíu fyrir 98 milljónum ára.

Erlent

Myndin sem hneykslaði Íran

Strangtrúaðir í Íran eru í uppnámi vegna þess að forseti landsins Mahmoud Ahmadinejad faðmaði að sér gamla kennslukonu sína og kyssti á hönd hennar. Dagblaðið Hizbolla segir að annað eins hafi ekki sést síðan á dögum keisaratímabilsins.

Erlent

Neydd til að fæða dauðvona barn

Sautján ára gömul írsk stúlka berst nú fyrir því fyrir hæstarétti á Írlandi að fá að fara til Bretlands til þess að láta eyða fóstri sem á sér engar lífslíkur þótt hún fæði það. Fóstrið er svo vanþroskað á höfði að það vantar á það bæði stóran hluta af höfuðkúpunni og heilanum. Læknar telja það mest geta lifað í þrjá daga eftir fæðingu.

Erlent

Danir ætla að banna blæjur

Danska ríkisstjórnin vill setja lög sem gera atvinnurekendum kleift að banna múslimakonum að ganga með slæður eða búrka í vinnunni. Kveikjan að þessu er að barnfóstra í Óðinsvéum neitaði að taka af sér slæðuna við gæslu barna. Bæjarstjórnin þar leitaði til stjórnvalda þar sem hún var ekki viss um að hún hefði heimild til þess að úrskurða í málinu.

Erlent

Felldu upplýsingafulltrúa al-Kaída í Írak

Bandaríski herinn í Írak skýrði frá því í dag að þeir hefðu fellt upplýsingafulltrúa al-Kaída í Írak. Talsmaður hersins sagði að hann hefði verið viðriðinn mannránið á bandarísku blaðakonunni Jill Carroll og fleiri útlendingum.

Erlent

Brjóst í pósti

Eins og margar danskar vændiskonur er Kirsten með heimasíðu. Þar er meðal annars að finna myndir af henni. Nýlega fékk Kirsten bréf frá fyrirtæki sem heitir "Helth Care Danmark." Þar segir meðal annars: "Með tilliti til líkamsbyggingar og hæðar yrðir þú gríðarlega flott með stærri barm, C 75, viljum við gera þér tilboð og ráðleggingar. Hringdu til okkar til að fá tíma."

Erlent

Telja Sarkozy hafa staðið sig betur

Franskir kjósendur telja að Nicolas Sarkozy hafi haft betur í baráttu sinni við Sególene Royal í kappræðum þeirra í frönsku sjónvarpi í gær. Þetta kemur fram í könnun sem birt var í dag. Hún var gerð eftir kappræðurnar sem voru líflegar og spennandi. Í henni sögðu 53% aðspurðra Sarkozy hafa staðið sig betur en aðeins 31% völdu Sególene.

Erlent

Færast nær friðarsamkomulagi

Stjórnvöld í Úganda og Uppreisnarher drottins (Lord's Resistance Army) færðust í gærkvöldi einu skrefi nær því að binda endi á tveggja áratuga borgarastyrjöld í landinu. Báðir aðilar skrifuðu þá undir annan hluta friðarsamkomulags en þeir sættust á vopnahlé á síðasta ári.

Erlent

Heigullinn af Titanic fær uppreist æru

Hinn illræmdi skúrkur frá Titanic slysinu hefur nú fengið uppreist æru með bréfi sem einkaritari hans skrifaði skömmu eftir slysið. Sir Cosmo Duff Gordon var hataður og fyrirlitinn í Bretlandi eftir að Titanic sökk. Því var haldið fram að hann hefði borgað fyrir að komast um borð í björgunarbát, og mútað áhöfn hans til að snúa ekki aftur að skipinu til þess að bjarga fleiri farþegum.

Erlent

Traktor keyrði tvisvar yfir ungling

Traktor keyrði í tvígang yfir austurrískan ungling – fyrst eftir að hann datt af og svo aftur þegar ökumaðurinn bakkaði til að athuga hvar pilturinn væri. Hinn 17 ára Hubert Hochstetter datt af traktornum þegar Josef Mittringer 22 ára félagi hans keyrði hann eftir vegi við þorpið Kainisch í Austurríki. Hann hafnaði undir afturhjólum traktorsins sem vegur um þrjú tonn.

Erlent