Erlent

Tugþúsundir á mótmælafundi

Ehud Olmert situr á milli Tzipi Livni utanríkisráðherra og Shimon Perez varaforsætisráðherra á þingi í gær.
Ehud Olmert situr á milli Tzipi Livni utanríkisráðherra og Shimon Perez varaforsætisráðherra á þingi í gær. MYND/AP

Tugþúsundir Ísraela tóku í gær þátt í mótmælafundi í Jerúsalem, þar sem afsagnar Ehuds Olmerts forsætisráðherra var krafist. En Olmert, sem sætir harðri gagnrýni fyrir það hvernig hann hélt á málum í stríðinu við Hizbolla-skæruliða í Líbanon í fyrra, virðist hafa tekist að hrinda uppreisn gegn sér í eigin flokki.

Olmert hefur heitið því að fylgja „til síðasta smáatriðis“ ráðleggingum þeim sem beint er til stjórnvalda í niðurstöðum nýbirtrar skýrslu um öll þau mistök sem gerð voru í tengslum við stríðið í fyrrasumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×