Erlent

Þingkosningar ákveðnar 22. júlí

Recep Tayyip Erdogan. Gagnrýndur fyrir að tilnefna flokksbróður í forsetakjöri.
Recep Tayyip Erdogan. Gagnrýndur fyrir að tilnefna flokksbróður í forsetakjöri. MYND/AP

Tyrkneska þingið samþykkti í gær að þingkosningar færu fram hinn 22. júlí næstkomandi, en ákveðið var að boða til þeirra nokkrum mánuðum fyrr en ella til að leysa stjórnarkreppu sem upp er komin í landinu vegna vaxandi spennu milli hersins, „varðhunds“ veraldlegra gilda í tyrkneskum stjórnmálum, og stjórnarflokksins sem á rætur að rekja til íslamistahreyfingar.

Svo fór að dagsetningin var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum, en áður höfðu talsmenn stjórnarandstöðunnar, hins veraldlega Lýðveldisflokks, lýst efasemdum um að heppilegt væri að halda kosningar þegar hálf þjóðin er í sumarleyfi og þar með ólíklegri en ella til að mæta á kjörstað. Upprunalega stóð til að kosið yrði í nóvember, þegar fimm ára kjörtímabili þingsins lýkur.

Stjórnarkreppan hófst í síðustu viku er Recep Tayyip Erdogan forsætisráðherra tilnefndi Abdullah Gul utanríkisráðherra forsetaefni, en Gul er náinn bandamaður Erdogans úr hinum íslamsk-sinnaða Réttlætis- og þróunarflokki. Kjarni deilunnar snýst um ótta margra um að stjórnarflokkurinn kunni að misnota völd sín yfir bæði þinginu og forsetaembættinu til að grafa undan veraldlegum grundvelli lýðveldisins. -




Fleiri fréttir

Sjá meira


×